Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 12
atvmnulíf Olsen Olsen í Jacksonville Þau hjónin Ævar Olsen og Edda Gunnarsdóttir verða ekki lengi án Olsen Olsen því fyrirhugaö er að opna sams konar stað í Avenue verslunarmiðstöð- inni í Jacksonville, Florida, og það ekki síðar en fyrstu vikuna í október. „Vifl förum út |)ann 7. september næstkomandi og ef allt gengur upp þá opnun við staðinn fyrstu vikuna í október" sagði Ævar Olsen. „Við höföum gert ráð fyrir að opna í september á næsta ári en síöustu daga hefur allt gengið eins og í ævintýri og Olsen Olsen í Ameríku að verða að veruleika. Við erum nú að söðla um eftir 5 ár á Hafnargötunni og viljum endilega koma á framfæri |>akklæti til allra Suðurnesjamanna fyrir þennan tíma og óskum á sama tíma Gunnari góðs gengis með barnið okkar, Olsen Olsen og Ég.‘‘ Auglýsingasíminn er 421 4717 Störf skólaliða Grunnskólinn í Sandgerdi auglýsir eftir skólaliðum veturinn 1999-2000. Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu Sandgerðis og í Grunnskólanum í Sandgerði. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar. Umsóknir berist á bæjarskrifstofu Sandgerðis. Umsóknarfrestur ertil 10. september. Skólastjóri Olsen Olsen Diner skiptir um eigendur: Gunnar Friðriksson nýr eigandi að Olsen Veitingastaðurinn vinsæli Olsen Olsen, að Hafnargötu 17, hefur eignast nýjan eig- anda og miðvikudaginn 1. september færist reksturinn í hendur veitinga- mannsins góðkunna Gunnars Friðrikssonar. Æg er búinn að vera rúmlega tvö ár utan veit- ingabransans og er mjög ánægður að vera mættur í slaginn aftur, ég hreinlega væri ekki í þessu öðruvísi. Þetta er afar vinsæll staður á mjög góðum stað og ég bjartsýnn á að rekstur- inn muni ganga vel. Það verður engu breytt, að minnsta kosti ekki til að byrja með. Ég erifi eitt- hvað af starfsfólki þeirra Ævars og Eddu en kem jafnframt til með að leita eftir fleira starfs- fólki.“ Hvert er kaupverðið? „Ég og Ævar höfum komist að samkomulagi um að kaupverðið verði ekki gefið upp en ég er að taka við fyrirtæki sem þau hjónin, Ævar og Edda skila frá sér á traustum grunni.“ McDonalds auglýsip eftin starfsfólki á Suðurnesjum McDolnald’s auglýsti í síðasta tölublaði VF og aftur núna eftir starfsfólki á veitingastaði sfna í Reykjavík. Meðal annars er auglýst eftir fólki á nýjan veitingastað sem opnar von bráðar í Kringlunni. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem veitingahús á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir starfsfólki hér í Víkurfréttum. Ekki tókst að hafa upp á upplýsingum um það hvort Suðumesjafólk hafi sótt í vinnu hjá þessum þekkta veit- ingastað í Reykjanvík. Blaðið hafði samband við ónefnt veitingahús í Keflavík og þar fengust þær upplýsingai' að erfitt væri orðið að fá starfsfólk hér syðra og oft stoppaði fólk stutt við, enda mikil atvinna í boði. I-------------- ! NÝTT FYRIF Mikill uppgangur hefur verið í stofn- un fyrirtækja hér á Suðurnesjum I undanfariö. Eitt þessara nýju fvrirtækja er Barna- ■ gantan að Iðavöllum 3 í I Kefiavík. Eigendur þess eru | hjónin Gunnar Ingimund- I arson, járnsmiður, og Linda I Gústafsdóttir úr Sandgerði. I_______________________________ Fiskmarkaðupinn hagnast Á Suðurnesjum og á Isafirði seldust 20.245 tonn fyrir 2.146 milljónir á fyrstu 6 mánuðum ársins. Magnið er svipað og á síðasta ári en verðmætið hefur aukist um 25%. Verðmæta- aukninguna má annars vegar skýra með að meðalverð á helstu tegundum, einkum þorski og ýsu. hækkaði veru- lega og vegna þess að sala á loðnu og öðrum ódýrum tegundum minnkaði. Hagnaður FMS fyrstu 6 mánuði ársins er 16.8 milljónir. Dóttur og hlutafélög FMS em: Fiskmark- aðurinn hf. í Hafnarfirði (100%), Reiknistofa fiskmark- aða hf.(88%), Fiskmarkaður Hornafjarðar hf. (78%), Um- búðamiðlun hf. (35%) og íslandsmarkaður hf. (28%). Samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri er hagnaður dóttur- og hlutafélaga FMS samtals 22.2 milljónir. Á síðasta ári sam- einaðist Fiskmarkaðurinn hf. í Hafnarfirði Fiskmarkaði Suð- umesja hf. og um leið voru öll hlutabréf í Faxalóni ehf.keypt. Þessi tvö félög höfðu verið í samstarfi áður og breytingin skapaði meiri hagræðingu en áður. Ávinningur aðgerðanna er farinn að sjást og hefur tekist að snúa rekstrinum í Hafnarfirði við og er hann nú í góðu horti. Vonast er til að á seinni hluta ársins skili hagræðingin sér enn betur inní rekstur FMS. Rekstur Umbúðamiðlunar hafði verulega neikvæð áhrif á rek- stur FMS á síðasta ári vegna mikils tapreksturs. Reksturinn var skorinn upp í desember á síðasta ári og hefur afkoman fyrstu 6 rnánuði ársins haft jákvæð áhrif á FMS. Nokkur hagnaður hefur verið á sölu hjá Reiknistofu fiskmarkaða hf. Samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri var hagnaður fyrir skatta á fyrstu 6 mánuðum ársins 6.8 milljónir en aðeins 5.1 milljónir allt árið í fyrra fyrir skatta. 12 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.