Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 15
Alda skemmd- arverka í ágúst Lögreglan í Keflavík hefur áhyggjur af öldu skemmdar- verka sem reið yfir Reykjanes- bæ í ágústmánuði. Fjöldi bif- reiða og vinnuvéla varð fyrir árásum skemmdarvarga sem í flestum tilfellum létu sér nægja að brjóta rúður og lakk bifreið- anna. Að sögn Karls Her- mannssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns, eru nokkur mál upplýst en grunur leikur á að sami aðili hafi verið að verki í ijolda tilfella. Hvatti Karl bæj- arbúa til að vera vel vakandi fyrir ferðum ókunnugra seint að kvöldi og undir morgun um helgar. Uppsagnir hjá Aðalverktökum Islenskir Aðalverktakir sendu um 40 starfsmönnum uppsagn- arbréf í vikunni. Þeir sem fengu þessi bréf eru flestir tengdir vélarekstri í jarðvinnu á vamarsvæðinu. „Fyrirsjáanleg verkefnastaða í jarðvinnu og vélarekstri innan vamarsvæða er með þeim hætti að ekki kernur á óvart að til uppsagna komi”, sagði Stefán Friðftnns- son forstjóri Islenskra Aðal- verktaka. „Á haustin fækkar jarðvinnuverkefnum og öðru sem kallar á svo stórar vélar. Reyndar er eitthvað af fólki frá okkur í verkefitum við Vatns- fellsvirkjun við Þórisós og sjaldan verið fleiri í jarðvinnu hjá IAV samsteypunni en nú. Undanfarið höfum við auglýst eftir fólki til að starfa við virkj- unina og vel hefur gengið að ráða fólk.” Fréttavakt Víkurfrétta 898 2222 Ferskleiki erokkarfag! Tökumað okkurveislur mhmmm ;/u //j VEISLUÞJÓNUSTA JJ1W Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Innritun er hafin Innritun nemenda í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er hafin. Innritun fer fram á skrifstofu skólans að Austurgötu 13 og verður sem hér segir: Fimmtudagur 2. september kl. 12 - 18: Innritun nemenda úr TK og TN frá síðasta skólaári. Föstudagur 3. september kl. 12 - 18: Innritun nemenda úr TK og TN frá síðasta skólaári. Mánudagur 6. september kl. 12 - 18: Innritun nýrra nemenda. Innritað er í allar deildir Þeir sem eiga inni umsóknir frá því f vor eða umsóknir á biðlista Tónlistarskólans í Keflavík og Tónlistarskóla Njarðvíkur þurfa að koma og staðfesta þær á ofan- greindum innritunartíma. Nemendur úr öðrum grunnskólum en grunnskólum Reykjanesbæjar og úr framhaldsskólum þurfa að afhenda stundatöflu við innritun. Ganga þarf frá greiðslu skólagjalda við innritun. Kennsla hefst mánudaginn 13. september Skólastjóri flílKFÉLHG KEFLAVíMIR Almennur félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn í Frumleikhúsinu lau- gardaginn 4. september kl. 14.00. Leikstjórinn Þröstur Guðbjartsson mætir á fundinn og kynnt verður haustverkefni félagsons. Allir áhugasamir velkomnir Stjórnin rrrrnTnwn A ðalgjaldkeri Landsbankinn í Keflavík óskar eftir að ráða aðalgjaldkera. Umsóknareyðublöð eru í afgreiðslu bankans. Umsóknarfrestur er til 9. september 1999. Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigurðsson aðs- toðarútibússtjóri ísíma 420 1200 Landsbanki Islands Keflavík Landsbankinn Esso Garði Bensíriafc/reiðslumaður óskast. Vaktavinna. 2-2-3 Upplýsingar veittar ó staðnum Atvinna Óska eftir að ráða starfskrafti til afgreiðslustarfa um er að ræða 60% starf. Upplýsingar á staðnum. Valgeirsbakari Til leigu Vegna flutnings OK samskipta ehf. er til leigu skrifstofuhúsnæði í miðbæ Keflavíkur að Tjarnargötu 2, 3. hæð, (Bústoðarhúsið). Góð aðstaða: Þrjú herbergi, eldhúskrókur, sér snyrting, geymsla og lyfta. Laust ca. 15. september nk. Upplýsingar gefur Ásgeir, í síma 421-3013. Til leigu 25m2 skrifstofuherbergi á Brekkustíg 39, Njarðvík. Upplýsingar gefur Jóhann R. Ben ísímum 421 1850 og 421 2379 Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.