Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 16
Brunavarnir Suðurnesja Lausar stöður í slökkviliði Slökkvilið Brunavarnir Suðurnesja auglýsir lausar stöður slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um er að ræða þrjár stöður í fasta- liði slökkviliðs og 9 stöður í útkallsliði slökkviliðsins. Umsækjendur skulu uppfylla eftir- farandi skilyrði reglugerðar um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna: Vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir og háttvísir. Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. Hafa aukin réttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. Umsækjendur skulu að auki ofangreindra skilyrða leggja fram sakavottorð. Umsækjendur um stöður í fastaliði slökkviliðs þurfa að geta hafið störf mánudaginn 4. október 1999. Umsækjendur í útkallsliði hefja störf eftir samkomulagi við slökkvi- liðsstjóra þó ekki seinna en í janúar 2000. Áhugasamir athugið að staðfesta verður eldri umsóknir skriflega. Umsóknareyðublöð liggja á varð- stofu slökkviliðs að Hringbraut 125. Skriflegum umsóknum skal skila fyrir föstudaginn 17. september 1999 til skrifstofu slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja. Brunavarnir Suðurnesja Hringbraut 125 230 Keflavík. Sími:421-4748 - Fax:421-4578 Netfang: bs@simnet.is HAFNARGÖTU 29 • KEFLAVÍK Starfskraftur óskast Óskum eftir starfskrafti í hlutastarf. Kostur að vera 30 ára eða eldri. Upplýsingar aðeins veittar á staðnum. McDonald's auglýsir laus störf i veitingastofum í Kringlunni, Austurstræti oq Suburlandsbraut. McDonald's býbur spennandi starf, starfsþjálfun og möguleika á skjótri launahækkun fyrir duglegt fólk. Ekki er krafist sérstakrar menntunar heldur áhuga oa vilja til þess ab læra og vera hluti af skemmtilegum starfshóp. Umsóknareybublöb er hægt ab fá send eba sækja þau á veitingastabina. Frekari upplýsingar veita, Magnús í síma 581 1414 (netfang: magnus@lyst.is), Vilhelmí síma 551 7400 (netfang vilhelm@lyst.is) eba Pétur i síma 551 7444 (petur@lyst.is). McDonald's Kringlunni (frá 30. sept.) Austurstræti, Suðurlandsbraut Atvinna Subway óskar eftir fólki til starfa. Höfum í boði heilsdags- og hlutastörf. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Subway, Vatnsnesvegi 12 .SUBUJflV* Fjölbreytt dagskrá Dagur símenntunar var haldinn um land allt laugardaginn 28. ágúst sl. Tilgangurinn var að vekja athygli á menntun sem æviverki og sem Ijárfestingu til framtíðar sem getur bætt af- komu einstaklinga, fyrirtækja og samfélagsins í heild. Miðstöð sfmenntunar á Suðurnesjum. MSS, sá um dagskrá hér á svæðinu sem hófst á landsvísu með fjarfundi í Verslunarháskólanum í Reykjavík. Dagur símenntunar var svo haldinn með lifandi dagskrá í Reykjanesbæ, Sandgerði, Grindavík og hjá Hitaveitunni og í Bláa Lóninu frá kl 13 til 17. Að sögn Skúla Thoroddsens, forstöðumanns MSS sem sá um framkvæmd dagsins hér Suðumesjum „tókst Dagur símenntunar vel en aðsókn hefði rnátt vera meiri á öllum stöðunum. Sérstakelga var það ánægjulegt að Hita- veitan, Bláa Lónið og Samkaup skyldu hafa haft eigin dagskrá”. I Kjama var lifandi tónlist sem léttsveit Tónlistaskólans sá um. Þar var ljúffengt ávaxtaborð á boðstólnum og kynning á nýjum heilsusamlegum ávaxta- drykkjum á vegum Samkaupa. Auk þess gátu gestir rætt símenntun og sumir notuðu tækifærið til að skrá sig á námskeið hj MSS og Tölvu- skólanum eða kíktu á Intemetið og litu við á Bókasafninu. Munum eftir börnum á leið í skólann! Nú í byrjun september hefst skólastarf at' krafti í grunn- skólum bæjarins og því er rétt að minna ökumenn á þær hættur sem geta skapast þegar mikill fjöldi bama er á leið í skólann. Sérstaklega þarf að hafa varann á sér við biðskýli og varast að fara fram úr strætisvagni þegar hann er kyrrstæður. Lítil börn eiga það til að hlaupa fyrirvara- laust fram eða aftur fyrir vagninn og það skapar mikla slysahættu ef ökumenn reyna að smeygja sér framhjá. Lögreglan mun gera átak í að fylgjast með umferðinni á morgnana og um eftirmiðdaginn. Bílstjórar eru beðnir um að sýna ungum veg- farendum nærgætni og strætis- vagnabtlstjórum þolinntæði, þannig að allir komist heilu og höldnu á áfangastað. 16 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.