Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 22
Stórhættulegt þríeyki í Grindavík Grétar búinn að skora 10 mörk Framherjar Grindvíkinga, Grét- ar Hjartarson og Scott Ramsey, og miðjumaðurinn Sinisa Kekic eru án efa skemmtilegasta og hættulegasta sóknarþríeyki sem Grindvíkingar hafa teflt fram í knattspymu. Sandgerðingurinn Grétar gæti orðið fyrsti Suður- nesjamaðurinn til að eignast gullskóinn síðan Keflvíkingur- inn Steinar Jóhannsson 1971 en hann skoraði 12 mörk í 14 leikj- um. Markakóngstitlar Suður- nesjamanna em allir í einni fjöl- skyldu því Jón Jóhannsson, bróðir Steinars, á hinn titilinn sem Suðurnesjamenn hafa fengið, skoraði 8 mörk í tíu leikjum það herrans ár 1966. Grétar er nú markahæstur í Landssímadeildinni en hann hefurskorað lOmörk. VF spurði Steinar hvemig hon- um litist á Grétar. „Eg hef ekki séð nema einn heilan leik, gegn Keflavík í síðustu viku. Mér fannst hann mjög skemmtileg- ur, hreyfanlegur og skilaði bolt- anum hratt og vel frá sér. Hann sýndi líka að hann er með góðar tímasetningar, var á réttum stað á réttum tíma“ sagði Steinar. Thermo Plus Europe á Islandi hf. Rafvirkjar - vélfræðingar - blikksmiðir - verkafólk Thermo Plus Europe á Islandi hf. óskar eftir ad ráda til starfa rafvirkja, vélfrædinga á kælitæknisvidi, blikk- smidi og verkafólk í samsetningarvinnu í verksmidju sína í Reykjanesbæ. I boði eru mjög áhugaverð störf fyrir metnaðarfulla einstaklinga. Thermo Plus Europe á Islandi hf. mun bjóða upp á samkeppnishæf kjör. Starfsþjálfun verður í boði fyrir viðkomandi starfsmenn. Ef þú ert reiðubúinn til að takast á við krefjandi starf og vega nýtt fyrirtæki til árangurs og bjartrar framtíðar, sendu þá umsókn til Thermo Plus Europe á Islandi hf., Iðjustíg 1, 260 Reykjanesbæ, eða á netfangið tomas@thermoplus.is Sundæfingar Innritun í alla hópa Sunddeildar U.M.F.N verður, fimmtudaginn 2. september kl. 16-l9og föstudaginn 3. september kl. 16-18.30 í íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Sunddeild U.M.F.N. Timamotasigur Grindvikinga Grindvíkingar skelltu Keflvíkingum í fyrsta sinn í Keflavík 3-2 og léttu á fallskýjunum sem grúft höfðu sig yfir útgerðarbæinn undanfamar vikur. Keflvíkingar misstu aft- ur á móti endanlega af möguleikanum á Evrópu- sæti. Keflvíkingar virtust sterkari en þó verður að segja eins og er að sóknartilburðir Grindvíkinga voru það eina sem fékk hjartað til að slá örar. Sóknir þeirra vom hraðar og stöðug hætta í kring- um þá Grétar Hjartarson, Scott Ramsey og Sinisa Kekic. Þrátt fyrir sóknarsnilli þessara pilta var það serbinn Stevo Vorkapic sem var bestur allra á vellinum, lék nær óaðfinnanlega í hjarta Grinda- víkurvamarinnar. Mörkin: Grindavík - Grétar Hjartarson (4. og 73 nn'n.), Scott Ramsey (63. mín) Keflavík - Evsteiim Hauksson (41. mín), Kristján Ilrooks (67. mín. vsp.). Unglingaþolfimi og Kripalu jóga Studeó Huldu hefur raðið til sín nýja leiðbeinendur og mun í kjölfarið auka við fjölbreytni þeirrar þjónustu sem í boði er. Hilma Sigurðardóttir, fimleika- drotming sem varð í 2. sæti í Is- landsmótinu í þolfuni í ár, mun kenna unglingaþolfimi fyrir pilta og stúlkur frá 12-16 ára „Þetta verður góð líkamsrækt þar sem líkaminn er þjálfaður frá toppi til táar og það er gam- an að koma með nýjar íþróttir í boltabæinn, hrista upp í einfald- leikanum" sagði Hilma. Matt- hildur Gunnarsdóttir, jógakenn- ari, mun bjóða viðskiptavinum upp á Kripalu- og Ashtanga jóga. Matthildur lauk kennara- réttindanámi frá Kripalu Center í Lennox, MA. í Bandaríkjun- um 1993 og lærði Ashtanga jóga, oftast nefnt Power jóga, hjá David Svenson, þekktum bandarískum jógakennara, sem m.a. birtist íslenskum sjón- varpsáhorfendum fyrir nokkmm ámm og gefið hefur út fjölda kennslumyndbanda. Þá mun Afríkumaðurinn Akeem kenna Afro-Kickbox, blöndu af afh'skum dansi og Kickbox æf- ingum þar sem lögð er áhersla á einbeitta hreyfmgu. Oli tryggði stigið með glæsiskoti Varamaðurinn Ólafur Ingólfs- son tryggði Grindvíkingum dýr- mætt stig í botnbaráttunni með glæsiskoti á 88. mínútu. Alveg eins og gegn Víkingum, fyrir skömmu, unnu Grindvíkingar upp tveggja marka forskot og vom líklegri á lokasekúndunum til að næla í öll þrjú stigin. Inn- koma þeirra Hjálmar Hall- grímssonar, Ólafs Ingólfssonar og Sveins Ara Guðjónssonar á 61 mín. virkaði eins og vítamín- j sprauta á heimamenn og Stevo Vorkapic minnkaði muninn á 67 mín. eftir að mark hatði leg- ið í loftinu í nokkra stund. Bæði lið fengu ágætis færi m.a. átti Kekic tvo góða skalla sem röt- uðu ekki á rammann áður en Ólafur setti boltann af löngu færi yfir Ólaf Þór Gunnarsson, markvörð IA, og tryggði þeim skiptan hlut með sínu fyrsta marki í sumar. Golfklúbbur Suðurnesja Op'in firmakeppni Laugardaginn 4. september á Hólmsvelli í Leiru. Leikfyrirkomulag: Tveir í sveit - betri bolti með fullri forgjöf eins og hún er í opnum mótum. Verðlaun verða veitt fyrir 10 fyrstu sætin, m.a. flugfarseðlar í millilandaflugi fyrir 1. sæti. Þátttökugjald fyrir hvert firma er kr. 15.000,- Innifalið eru góðar veitingar fyrir og eftir leik. Ræst verður frá kl. 08:00. Skráning er hafin í síma 421-4100. Félagar eru minntir á að skrá sig til leiks. 22 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.