Víkurfréttir - 21.10.1999, Qupperneq 2
Nýr valkostur!
NÝTT HELGARBLAÐ
VÍKURFRÉTTA
í NÆSTU VIKU.
LÁTTU OKKUR VITA
UM GOTT EFNI!
- Tvö jb/öð á viku!
Jón Gunnarsson Löggiltur fasteigna- og skipasali
Hafnargata 27 - 230 Keflavík
símar 421 1420 og 421 4288 - fax 421 1593
Netfang: fasteign-asberg@simnet.is
si r
tí„ JL n3
Austurgata 18, Kellavík.
80m3 neðri hæð í tvíbýli með
2 svenh. Ibúð mikið endur-
nýjuð að innan. 4.800.000.-
Ásabraut 1, Keflavík.
Mjög góð 3ja herb. íbúð á
efri hæð sem er mikið
endurnýjuð. 4.900.000,-
Þuríöarbraut 9. Itolungav.
138m; einbýli með 4 svefnh.
og 62nr bílskúr. Mjög góð
eign á góðum stað. Tilboö.
Suöurgata 1. Sandgerði.
83m! n.h. í tvíbýli með sér-
inngangi. Eign í góðu
ástandi. Skipti á bíl koma til
greina. Tilboð.
Eyjavellir 1, Kellavík.
I25m’ raðhús með 50m; bíl-
skúr ásamt 18m2 sólhúsi og
sólpalli sem er nýlegur. Hús í
góðu ástandi. 10.500.000.-
Austurgata 26, Keflavík.
3ja herb. neðri hæð í tvíbýli í
góðu ástandi. Laus fljótlega.
4.500.000.-
Silfurtún 12, Garði.
92m! efri hæð með 3 svefnh.
Eign í góðu ástandi, skipti á
eign í Garði. 7.200.000,-
Heiðarból 6, Keflavík.
78m: íbúð á 2. hæð í fjölbýli.
Ibúð í góðu ástandi og getur
losnað fljótlega. 5.700.000.-
Borgarvegur 52, Njarðvík.
130m; einbýli með 4 svefnh,
og 28m; bílskúr. Eign í góðu
ástandi og góðum stað. Sk.
á minni eign. 11.200.000.-
Starmói 4, Njarðvík.
143m; einbýli með 56m; bíl-
skúr. 5 svefnherbergi. Eign í
mjög góðu ástandi og góðum
stað. 14.7004)00,-
Munu bæjanbúan niðungneiða tíma í
Reykjaneshöllinni fynin utanbæjanfólk?
-bæjarfulltrúar ósammála um kostnaö og verðlagningu
Bæjarfulltrúar deildu hart um
verðlagningu á tímum og
kostnað við rekstur Reykja-
neshallarinnnar á bæjarstjóm-
arfundi s.l. þriðjudag. Minni-
hlutinn mótmælti niður-
greiðslunr á tímum í Reykja-
neshöllinni og sagði að full-
trúar meirihlutans væru þar
með að nota útsvar bæjarbúa
til að borga leigu fyrir utan-
bæjarfólk. Þeir mótmæltu ein-
nig kostnaði við byggingu og
rekstur „Hallarinnar”, sem
þeir segja vera bruðl á al-
mannafé. Meirihlutinn mót-
mælti þessum málflutningi og
sagði kostnað við Reykjanes-
höllina vera sambærilegan við
önnur íþróttahús í bæjarfélag-
inu. Þeir neituðu því jafnframt
að hafa sýnt ábyrgðaleysi í
þessu umdeilda máli.
Sólundun á fé
skattgreiðenda
í bókun, sem fulltrúar J-listans
lögðu fyrir fundinn, kom fram
að miðað við fulla nýtingu á
húsinu mun tíminn þurfa að
kosta 21.700 kr. til að hægt
verði að standa undir kostnaði
á rekstri Reykjaneshallarinnar.
Miðað við tillögu markaðs-
ráðs á tíminn að kosta 9000
kr. sem þýðir að Reykjanes-
bær mun þurfa að niðurgreiða
hvern tíma í húsinu um
11.000 kr.
í bókuninni segir orðrétt: „Nú
þegar hafa knattspymufélög á
Reykjavíkursvæðinu falast
eftir tímum í knattspymuhús-
inu þegar það opnar. Sú hug-
mynd að Reykjanesbær niður-
greiði starfsemi íþróttafélaga
og fleiri í Reykjavík og öðrum
nágrannasveitarfélögum okk-
ar um kr. 11-13 þúsund krónur
á hverja klukkustund er með
öllu ábyrgðarlaus og sólundun
á fé skattgreiðenda hér í bæ.”
Baggi á bæj'arfélaginu
Bæjarfulltrúar minnihlutans
bentu einnig á að sú niðurfell-
ing sem bærinn hyggst gera á
fasteignagjöldum Reykjanes-
hallarinnar, muni nema um 6
milljónum króna á ári. Leiga
Reykjanesbæjar til Verkalls er
27 milljónir á ári og annar
rekstarkostnaður u.þ.b.17
milljónir króna. Kostnaður
verður þá um 50 milljónir
króna á ári. „Knattspymuhús-
ið mun vægast sagt verða
sveitarfélaginu mjög erfiður
baggi næstu 35 árin", segir í
bókun minnihlutans.
Málefnalegt gjaldþrot
J-listans
Böðvar Jónsson (D) lagði ein-
nig fram bókun og í henni
segir liann að bókun fulltrúa
J-listans sýni fram á málefna-
legt gjaldþrot þeirra. „Rekstur
fjölnota íþrótthúss í Reykja-
nesbæ ntun kosta bæjarsjóð
sambærilega upphæð og kost-
ar að reka hvert hinna íþrótta-
húsanna sem í bænunt eru.
Meirihluti bæjarstjómar hefur
ekki og mun ekki sólunda fé
bæjarbúa. Allar yfirlýsingar
minnihlutans um ábyrgðaleysi
og bruðl er því vísað á bug”,
segir í bókuninni.
Tilboðið stendur í eitt ár
Ellert Eiríksson (D), bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, sagði
að verð á tíma í Reykjanes-
höllinni yrði ekki alltaf 9000
krónur. Hann lýkti þessu við
markaðssetningu hjá BT-tölv-
um, þ.e. að gjaldið væri lágt
til að íþróttafélögin kæmu og
kynntu sér aðstöðuna. „Ef
verðið væri of hátt þá myndu
þau ekki einu sinni athuga
málið”. sagði Ellert.
Jóhann Geirdal (J) spurði Ell-
ert þá hversu lengi þetta tilboð
ætti að standa og Ellert svar-
aði því til að það yrði í u.þ.b.
eitt ár. Jóhann sagði þá að
honum fyndist það ekki bera
vott um heilbrigða skynsemi
að leiguverð væri svo lágt því
það væri aðeins brot af rekstr-
arkostnaði.
„líkki ábyrgur rekstur
frú Jónína!”
Jóhann Geirdal bætti því við
að meirihlutinn hefði mark-
visst reynt að fela allar upp-
lýsingar unt kostnað og að
meirihlutinn hefði ekki reikn-
að nákvæmlega út hvað þessi
framkvæmd myndi kosta.
„Þetta er ekki ábyrgur rekstur
frú Jónína”, sagði Jóhann þeg-
ar hann beindi orðum til Jón-
ínu Sanders bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.
Rúnni Júll
vítaspyrnu-
kongurí
Reykjanes
höllinni
Ellert Eiriksson og Rúnar Júlílusson voru í sviðsljósinu þegar
Reykjaneshöllin var sýnö bæjarbúum sl. laugardag.
Reykjaneshöllin, hið nýja
fjölnota íþróttahús Reykja-
nesbæjar varð fokhelt sl. laug-
ardag og var „opið hús“ af því
tilefni með tilheyrandi fjöri.
Rúnar Júlíusson, poppari og
fyrrverandi knattspymumaður
sigraði í fyrstu vítaspyrnu-
keppni sem haldin var í hús-
inu en keppendur vom Ellert
Schram,_ forséti Iþróttasam-
bands íslands og Eggert
Magnússon frá Knatt-
spyrnusambandinu, Gunnar
Oddsson, knattspyrnumaður
og varabæjarfulltrúi og Ólafur
Thordersen, Njarðtaksmaður
og bæjarfulltrúi. í markinu var
enginn annar en Ellert
Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ. klæddur í
„súlubol". Ekki gekk mark-
varslan vel í full vöxnu mark-
inu en þá tók bæjarstjórinn til
sinna ráða og lét setja lítið
mark inn í það stóra. Þá gekk
mönnum ver að skora nema
Rúnari Júlíussyni og hampaði
liann sigri eins og fyrr segir
og fékk blómvönd að launum.
Fjöldi fólks mætti í nýja húsið
á laugardaginn og skoðaði
þetta gríðarmikla mannvirki
sem risið hefur við Krossmóa,
í nágrenni Nikkel-svæðisins.
Húsið verður tekið í notkun
18. febrúar kl. 14 en starfs-
menn Verkafls hf., dót-
turfyrirtækis íslenskra
aðalverktaka munu nota
tímann fram að því til að klára
það sem eftir er en það er
mest megnis innivinna .
Heildarflatarmál byggingarin-
nar er 8,344 fermetrar en í því
verður knattspyrnuvöllur í
fullri stærð með gervigrasi af
fullkomnustu gerð. Gert er
ráð fyrir áhorfendastæðum
fyrir 1000-1500 manns.
2
Víkurfréttir