Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 10
■ Borgarafundur í Grindavík um löggæslumál: Lögreglustöðinni í Grindavík verður ekki lokað - segir Jón Eysteinsson sýslumaður og bendir á sólarhringsvakt alla vikuna Dómsmálaráðherra hélt fyrstu ræðu og fór um víðan völl í sínu máli. Hún sagði að búið væri að taka ákvörðun í þessu máli og að því yrði ekki breytt. Það olli Grindavíkingum sem á fundinum vom miklum vonbrigðum. Jón Eysteinsson sýslumaður sagði að þær breytingar hafi orðið á lögregluliðinu undanfarin ár vegna tölvuvæðingar og aukinnar skráningar, að þurft hafi að styrkja þær deildir lögreglunn- ar sérstaklega sem sjái um þann þátt. Hefur þá verið gripið til þess ráðs að taka menn af vökt- um og setja þá bak við skrifborð, en þetta hefur leitt af sér að vakt- imar hafa veikst og verið stund- "I Atvinna Flugleióir óska eftir aó ráða starfsfólk í sumarafleysingar í farþegaþjónustu í Flugstöó Leifs Eiríkssonar á Kefl avíku rfl ugve 11 i. Leitaó er eftir fólki sem hefur góóa samskiptahæfileika og þjónustulund Umeraóræóa hlutastörf. Aldurstakmark er 20 ára Nauósynlegt er aó viókomandi hafi góóa tungumálakunnáttu. Umsóknareyðublöó liggjaframmi á skrifstofu félagsins í Flugstöó Leifs Eiríkssonar og er umsóknarfrestur til og meó 24. febrúar 2000. Starfsmenn Flugleióa eru lykillinn aó velgengni félagsins. Vió leitum eftir duglegum og ábyrgum starfsmönnum sem eru reióubúnir að takast á vió krefjandi og spennandi verkefni. Flugleióir eru reyklaust fyrirtæki og hlutu heilsu- verólaun heilbrigóisráóuneytisins vegna einarðrar stefnu félagsins og forvarna gagnvart reykingum. Flugleióir eru feróaþjónustufyrirtæki og leggja sérstaka áherslu á aó auka skilning á þörfum markaóar og vióskiptavina og þróa þjónustu sína til samræmis við þessar þarfir. FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur feröafélagi ICELANDAIR ,0/0 Borgarafundur uni löggæslu- mál var haldinn í Festi sl. fimmtudag á vegum bæjar- stjórnar Grindavíkur, að viðstöddum Sólveigu Péturs- dóttur dómsmálaráðherra, Jóni Eysteinssyni sýslumanni, Guðmundi Guðjónssyni frá Ríkislögreglustjóra og yfir- lögregluþjóni í dómsmála- ráðuneytinu Fundinn sátu einnig Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn, starfsmenn sýslumannsembættisins og lögreglumenn. Heimamenn voru fjölmcnnir á fundinum og augljóst að Grindvíkingum er ekki sama um hvernig þessi mál þróast. um næstum óstarfhæfar vegna mannfæðar, sérstaklega ef mikið er um veikindi eða önnur forfoll. „Mér ber sem lögreglustjóra í umdæminu, sem nær yfir Grindavíkurkaupstað, Vatns- leysustrandarhrepp, Reykjanes- bæ, Sandgerðisbæ og Gerða- hrepp, að tryggja að fullnægjandi löggæslu sé haldið uppi á öllum stöðum, en ekki einungis í Keflavík eða í Grindavík. Þó verður eins og Grindvíkingar hafa bent á að taka tillit til ann- arra þátta svo sem fjölda að- komumanna og annarrar starf- semi sem getur aukið umfang löggæslu og nefni ég þar sérstak- lega umferð sem fylgir stærsta ferðamannastað á Islandi, Bláa lóninu. Þá þarf ekki að minna Grindvíkinga á þær hættur sem fylgja akstri á Grindavíkurvegi og Reykjanesbraut eins og við höfurn svo sorglega verið minnt á undanfamar vikur. Auðveldlega er hægt að efla eftirlit með því að sameina liðin og nýtast þá betur stakir lögreglumenn eftir því sem liðið er fjölmennara. Sönnunargildi framburðar eins lögreglumanns er ekki eins sterkt eins og tveggja og ber þvt' að stefna að því að ævinlega séu tveir menn saman í eftirliti. Ef koma ætti á sólar- hringsvöktum í Grindavík með núverandi skipulagi þyrfti að fjölga lögreglumönnum í Grinda- vík um fjóra og yrði liðið því 8 menn. Það er ljóst að beiðni um slíka fjárveitingu yrði ekki vel tekið, enda verður fjárveitinga- valdið að gæta nokkurs jafnræðis gagnvart landsmönnum þegar peningum er úthlutað í lög- gæslu“. Megin breytingar Sólarhringsvakt veröi komið á í öllu umdœminu. Löggœslu verði jafiiað í umdœminu. Lögregluliðið verði sameinað í eitt öflugt lið. Fjölgað verði um tvo lögreglumenn á vöktum. Fœkkað verði um einn í skrif- stofuliði. Þá verði settar ýmsar verk- lagsreglur er tengjast stjómun sem miða að bœtlri yfirstjóm. Jg bind miklar vonir við þetta skipulag og horfi ég sérstaklega til forvama, en með stærra liði getum við lagt aukna áherslu á þann þátt. Þegar liðið er ekki stærra en það er í dag er lítið svi- grúm til að sinna öðm en útköll- um, en forvarnir vilja sitja á hakanum. Hér í Grindavík hefur verið unnið frábært starf á sviði for- varna og þið eruð fyrirmynd annarra t.d. á sviði útivistarmála. Samstarf lögreglunnar og bæjaryfirvalda heldur áfram á sömu braut og mun Sigurður Ágústsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn, sinna því eins og hingað til hér í Grindavfk, en við viljum jafn- framt að hann taki að sér Vatnsleysustrandarhrepp og nái þar jafngóðum tökum á forvam- armálum, en hreppurinn hefur óskað eftir meiri löggæslu", sagði Jón ennfremur.. Mikil ólga er hjá Grindvíkingum vegna skipulagsbreytinga hjá lögreglunni og er skiljanlegt að ekki séu allir á eitt sáttir. Á næstu mánuðum og ámm verða miklar skipulagsbreytingar í lög- gæslu á íslandi og sagðist sýslu- maður þá horfa til nýs íjarskipta- kerfis sem tekið verður í notkun í sumar. Með þessum breytingum mun vægi varðstöðva minnka því allar upplýsingar verður hægt að fá úr tölvu í lögreglu- bifreiðunum sjálfum. Þá má ein- nig hugsa sér að einföld skýrslu- gerð verði unnin í lögreglu- bifreiðunum samhliða því sem rætt er við þann aðila sem af- lB»l Björtj Thorarensen fulltrúi hjá dómsmálaráðuneyti hvíslar eitthverju að Jóni Eysteinssyni sýslumanni. Þórir q ______IVlaronsson ytirlögregluþjónn fylgist með.__ Samþykkt bœjarstjórnar Grindavíkur Svohljóðandi ályktun var sam- þykkt á fundir bæjarstjórnar Grindavíkur 2. febrúar s.l.: „Bæjarstjórn telur þær tillögur sem Sýslumaðurinn í Keflavík hefur kynnt til breytinga á skipan lögreglu á Suðumesjum séu ekki til þess fallnar að framangreind markmið náist. Bæjarstjóm skorar á Sýslumann- inn í Keflavík að hverfa frá fýrir- huguðum breytingum. Bæjarstjóm samþykkir að óska eftir liðsinni dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóra, sýslumanns og þingmanna kjördæmisins til þess að staðfest verði í lögum, eða reglugerð ef heimild er til þess, að lögreglulið skuli vera staðsett í Grindavík. Að sjálf- stæði Lögreglunnar í Grindavík verði tryggt með sérstökum fjár- veitingum. Bæjarstjóm fagnar hugmyndum um að svæði Grindavíkurlögregl- unnar verði stækkað og leggur áherslu á að endurskipulagt vaktakerfi að nóttu og fram á morgun, með tveimur mönnum, verði tekið upp að nýju til við- bótar núverandi vaktakerfi." Fundargerðin var borin undir atkvæði í bæjastjórn og samþykkt einróma og síðar borin undir atkvæði á borgarafundi og hlaut sömu afgreiðslu þar. Samþylckt íþrótta- og œskulýðsnejndar Á fundi íþrótta- og æskulýðs- nefndar Grindavíkur þann 1. febrúar 2000 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur mótmælir þeirri ákvörðun sýslumannsins í Kefla- vík að færa vaktir lögreglunnar í Grindavík til KeflavQcur. Það að vinna fomvamarstarf verður ekki unnið með akstri í gegnum bæj- arfélagið eins og stefiit er að. Á vegum nefndarinnar hefur verið starfsmaður í 50% starfi við for- vamir í grunnskólanum í góðu samstarfi við lögregluna í Grindavík. Þessu forvamarstarfi yrði kastað á glæ ef að þessum breytingum yrði og hlýtur slíkt að flokkast undir mikla tíma- skekkju. Við sem bæjarbúar og foreldrar glímum við vaxandi vímuefnavanda eins og önnur samfélög í þessu landi. Þess vegna getum við ekki sætt okkur við að þessi ákvörðun standi. Þá leyfum við okkur að minna á að ríkisstjóm Islands hefur stefnt að því að bæta en ekki skerða for- vamir. Virðingarfyllst, íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur 10

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.