Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 22
Skipt á Gunnleif og Bjarka Keflavík og KR gengu formlega frá skiptum á markvörðunum, Gunnleifi Gunnleifssyni og Bjarka Guðmundssyni. Gunnleifur kemur til Keflavíkur en Bjarki fer í Vesturbæinn. Skipti þeirra em þó misjöfn. Gunnleifur sem var varamarkvörður KR verður aðalmarkvörður Keflavíkur en Bjarki mun keppa um markavarðastöðuna í KR við Kristján Finnb ogason. ÍRB leigir Höliina Reykjanesbær og Iþróttabandalag Reykjanesbæjar hafa gert með sér tímabundinn leigusamning á Reykjaneshöllinni. Samningurinn tók gildi 18. janúar s.l. en rennur út 31. maí n.k. og verður þá endurskoð- aður. íþróttabandalag Reykjanesbæjar greiðir Reykjnesbæ 4900 kr. á klukkustund fyrir hálfan völl. 2. ilokkur í 2. sæti 2. flokkur Keflavíkur gekk betur en úrvalsdeildarliði Keflavíkur í Islandsmótinu í innanhússknappstymu á dögunum. 2. flokkurinn lék til úrslita gegn Fram og tapaði 1:3. Tvo af bestu leikmönnum Keflavíkur vantaði en í Reykjavíkunnótinu fyrir skömmu þar sem Keflavtk var gestalið lágu Framarar gegn Keflvíkingum. Veröur Landsmót UMFI2004 í Reykjanesbæ? Iþrótta- og ungmennafélag Keflavíkur hefur sótt um að halda Lands- mót UMFI2004. Um mitt síðasta sumar var óskað eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFI um að taka að sér undirbúning og fram- kvæmd 24. Landsmóts UMFI og skilafrestur umsókna var 31. desem- ber 1999. Fjórir aðilar sóttu um að halda mótið að þessu sinni. Á stjómarfundi Ungmennafélags Islands 28.-29. janúar 2000 voru teknar fyrir þær umsóknir sem bárust og innan skamms munu hefjast viðræð- ur við þá aðila og þau sveitarfélög sem hlut eiga að máli. í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvar mótið verður haldið. Næsta Landsmót verður haldið á Egilstöðum dagana 12.-15. júlí 2001. Sigurbjörn Elvarsson bílasali Ég byrja daginn snemma í Stúdeói Huldu. Það gefur mér kraft og vellíðan yfir daginn. ZStúdíé \V \ UMFN -KFI Sunnudaginn 13. febrúar kl. 20 í íþróttahúsinu Njarðvík » >9 Loðnufrysting Starfsfólk vantar í loðnu og hrognafrystingu okkar í Grindavík á komandi vertíð. Mikil vinna. Fyrirhugað er að komið verði á akstri til og frá vinnu á Suðurnesjum. Upplýsingar hjá Hjalta í símum 426 7905 og 893 9714 og hjá Ævari í símum 426 7902 og 861 7061 Samherji h/f Fiskimjöl og Lýsi Grindavík Keflavíkurstúlkur urðu bikarmeist- arar í körfu í tíunda sinn á tólf ámm eftir sigur á ÍS í Höllinni sl. laugardag. Þær gerðu það sem þær höfðu predikað í fjölmiðlum fyrir leikinn, einbeittu sér og gáfu engin grið. Strax í upphafi gáfu þær Birna Valgarðsdóttir (16 stig, 7 fráköst og 3 stolnir) og Anna María Sveinsdóttir (17 stig, 9 fráköst og 4 stolnir) tóninn, vörnin stal knettinum og skilaði auðveldum körfum. Áður en Stúdínur náðu andanum var leikurinn tapaður. I hálfleik var orðinn helmingsmunur 39-20 og þrátt fyrir að pressulausar engu-að-tapa-lengur IS-stúlkur næðu að minnka muninn var sigurinn aldrei í hættu og tíunda bikartitlinum landað, þeim fyrsta á nýrri öld, 59-48. Fyrir leikinn var mikið rætt um að þrátt fyrir ætlaða yfirburði Keflavíkur skipti ein- beitingin og dagsformið öllu í bikamum og það kom á daginn. Á 100% einbeitingu áttu Kefl- víkingar alls kostar við ÍS og hreinlega áfall að sjá þvílíkan getumun á tveimur liðum í efri bluta sömu deildar og mátti sjá í upphafi leiks. Auk þeirra Bimu og Ónnu Maríu léku þær Alda Leif Jónsdóttir, Kristín Blöndal, Erla Þorsteinsdóttir og Kristín Þórarinsdóttir allar vel. Aðrir leikmenn liðsins léku of stutt til að verða dæmdir af frammistöðunni. Anna María besti leikmaðurinn Sumir hafa verið svo lengi á toppnum að mörgum finnst sem þessir leikmenn hljóti hreinlega að vera á risaeðlualdrinum. Anna María Sveinsdóttir er einn jjessara leikmanna en hún varð þrítug á þessu tímabili. Á þessu tímabili hefur hún ekki leitt Keflvíkinga í öllum tölulegum staðreyndum og margir haft orð á að nú væri kempan „aldna” farin að gefa eftir. í bikarúrslitaleiknum blés hún á þessar raddir, var besti leikmaður liðsins, stigahæst, frákastahæst og með bestu skotnýtinguna. LitU risinn Alda Alda Leif Jónsdóttir, Stúdínan fyrrverandi, hefur heldur betur breytt um ham milli tímabila. Stúíkan, sem þekkt var helst af þriggja stiga skotum og sóknarleik almennt hefur tekið hlutina öðram tökum í ár. 1 leiknum um helgina skoraði hún 3 stig (allt víti), tók 6 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og varði 5 skot, einu fleiri en allt ÍS- liðið. Með því urðu þau Alda og Alexandre Emiolinskij jafningjar, tveir risar. Bima í hóp bestu Bima Valgarðsdóttir hefur oft verið talin óþekkta stærðin í leik Keflvíkinga. Hún sé annaðhvort í stuði eða úti á hól að..Á þessu tímabili hefur hún eytt af öllum vafa. Hún er einfaldlega orðinn einn hættulegasti sóknarleikmaður landsins, leikmaður sem getur snúið töpuðum leik í unnin eða skilið andstæðinginn eftir í svaðinu með sárt ennið og skítugan botninn, ef þannig má að orði komast. Kannski hættum við Teitur á sama tíma Eg vil ekki meina að önnur lið séu tnörgum árum á eftir okkur en aftur á móti eigum við alltaf stelpur sem taka við jregar ein- hverjar hætta og við byggjum liðið alltaf á heimamönnum þó svo að 1-2 „utanaðkomandi”. Ég held að ég sé alveg sátt við að við Teitur eigurn stigametið saman. Við emm bara jafngóð!!!!!! Nei við höfum kanski verið aðalhlekkimir í okkar liðum í mötg ár og spilað kanski flesta bikamrslitaleiki fyrir okkar félög án þess að ég sé viss en ég hef ömgglega tekið þetta í fleiri leikjum en hann. Ég á nú eftir að ræða við Teit unt framhaldið hvort við hættum bæði í vor en það kernur í ljós. Kiddi hefur staðið sig vel í vetur það var gott að fá nýtt blóð í þetta “utanbæjarmann” jretta er allt á uppleið hjá okkur”, sagði Anna María Sveinsdóttir, kampakát með tí- unda bikarinn á síðustu tólf ámm. Atvinnuhúsnæði til leigu í Sandgerði +255m2 með kæli og lyftarageymslu. ♦ 450m2á 2. hæð. Nýinnréttað. Þurrkklefi. Góð starfsmannaaðstaða og skrifstofa. ♦ Óinnréttað rými á 2. hæð. Býður uppá ýmsa möguleika. ♦ Geymsluhúsnæði á 2. hæð. Ýmsir stærðarmöguleikar. ♦ Vörulyftur og afnot aflyftara. Gerum tilboð í geymslu á brettavöru, lágmark 30 bretti. Hagstætt verð, leitið upplýsinga. Sími 588 7050 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.