Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 23
Topplið Grindvíkinga bætti rós í hnappagatið með því að leggja KR-inga 59-54 í úrslitaleik Renault-bikarkeppni KKÍ sl. laugrdag. Leikurinn var ekkert augnakonfekt, að undanskildum glæsilegum lokakafla Ermolinskijs, en var þrátt fyrir það afar spennandi. Mikil barátta og afar léleg sóknamýting einkenndi leikinn (samtals 11 af 46 úr þriggja stiga skotum) og aðeins þrír leikmenn nýttu meira en helming skottilrauna sinna, Pétur Guðmundsson 60%, Alexander Ermolinskij 50% og Keith Vassel 54%. Þegar öll sund virtust Grindvíkingum lokuð steig Ermolinskij fram fyrir skjöldu og breytti leiknum Grindvíkingum í hag, Guðlaugur Eyjólfsson kom með 5 mikilvæg stig í röð og ungir KR-ingar brotnuðu undan álaginu. Fögnuður Grindvíkinga var mikill í leikslok enda komnir með í magann af spenningi og allt útlit fyrir sigur Vesturbæinga þegar gamli maðurinn tók leikinn í sínar hendur. Stigahæstir voru Brenton 23, Pétur 13, Eyjólfur 10 og Ermolinskij 8. Hvcrgi betri nýting á úrslitaleiki Enginn slær Grindvíkingum við í árangri í bikarúrslitaleikjum. Þrisvar í úrslit, þrír bikartitlar til Grindavíkur. Að þessu sinni var kastið erfitt og folaldið lítt fyrir augað þótt eflaust verði úr fallegasti gæðingur þegar ffam líða stundir. Lokastaðan, 59-54, var aðeins sex stigum betri en úrslitin í kvennaboltanum (59-48) og mér til efs að áður hafi úrslitaleikur karla og kvenna unnist á sömu stigatölu. Hetja í sínum fyrsta bikarsigri Þeir vom nokkrir Grindvíkingamir sem urðu bikarmeistarar í fyrsta sinn en engum hefur þótt sigurinn jafn sætur og „gamla manninum” Alexandre Ermolinskij sem var Kylfingar öðmm fremur hetja leiksins. Eftir 35 mínútna sóknarmartröð Grindvíkinga tók Alex sig til, lokaði leið KR-inga að körfu Grindvíkinga og varði 5 skot á stuttum tíma. Liðið fékk sjálfstraustið, sneri leikinn úr höndum Keiths Vassel og hinna KR-inganna (sem þó lítið bar á) og heimti bikarinn til Grindavíkur. “- Þetta var fyrsti úrslitaleikurinn sem ég hef leikið á mínum 8 árum á Islandi. Andrúmsloftið minnti á leiki í Sovétríkjunum fyrir u.þ.b 15 árum síðan, stórt íþróttahúsið og mikið af fjörugum áhorfendum. Það var gaman að eiga þátt í að landa titlinum en ég vill nú lítið gera úr mínum hlut. Eg náði að verja nokkur skot og við það tók öll vömin við sér. Keith Vassel var orðinn þreyttur og kom sér ekki inn í leikinn og ég sá að ungu strákamir hjá KR urðu hræddir við að koma inn t' vítateiginn.” Golfklúbbur Suðurnesja hefur opnað æfingaaðstöðu I gamla þvottahúsi SBK við Hafnargötu í Keflavík. Opið er virka daga frá kl. 15-21 og um helgar frá kl. 11-15. Æfingar unglinga eru sem hér segir: Stúlkur mánud. og fimmtud. kl. 16-17 Piltar 12 ára og yngri þriðjud. og fimmtud. kl. 15-16 Piltar 13-15 ára mánud. og miðvd. 15-16 Piltar 16-18 ára þriðjud. og föstud. kl. 17-18 Sigurður Sigurðsson golfkennari býður upp á golfkennslu fyrir byrjendur og lengra komna, einnig hópa og fyrirtæki í hóptíma. Allar upplýsingar hjá S.S. í síma 891 9118 Vassel góður og til fyrirmyndar Kanadamaðurinn Keith Vassel fór langleiðina með að bera KR-inga á herðunum að bikarmeistara- titlinum. Hann hitti úr 7 af 13 skotum (28 stig), öllum tólf vítum sínum og tók 17 fráköst (allt Grindavíkurliðið tók 27 fráköst) og varði 2 skot. Þakka Grindvíkingar örugglega þokkadísum sínum að KR-ingar skyldu ekki leita betur til hans á lokamínútunum. „Eg efaðist aldrei um hvorum megin sigurinn myndi lenda“ , sagði Brenton Birmingham við VF. .Jafnvel 12 stigum undir í seinni hálfleik þá trúði ég engu öðm en að við myndum sigra. Það tók skotmenn okkar rúmlega 30 mínútur að hitna en hlutimir gengu upp þegar það skipti virkilega máli. Það er erfltt að skilgreina allt það sem Ermo færir liðinu en frammistaða hans á loka- mínútunum var gulls ígildi. Hann, Gulli, Pétur og Beggi skomðu allir mikilvæg stig á 17-4 spretti okkar í lokin. námskeið sem byrja í næstu uiku eru: EXEL Free Hand Lotus Notes Skrárting stendur i/fir. Nánari upplýsingar í síma 4,21-4,025 alla daga vikunnar eða á heimasíðu skólans www.tss.is á alþjóðlegu sundmóti tölvuskóli suöurnesja HAFNARGÖTU 35 • SÍMI 421 4025 Aðalfundur KEFLAVÍK íþrótta- og ungmennafélag heldur aðalfund sinn 29. febrúar kl. 20 á sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Allir velkomnir Aðalstjórn KEFLAVÍKUR Atvinna Starfsfólk óskast til fiskvinnslu. Upplýsingar í síma 423 7375 eða 898-9237. Sjávargull ehf, Sandgerði. sos - sos Knattspyrnudeild Keflavíkur bráð- vantar íbúðir til leigu, 2ja og 3ja herbergja, sem allra fyrst fyrir þjálfara og leikmenn. Upplýsingar gefur Grétar í síma 893 4414. 23

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.