Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 20
Gunnlaugur Kárason hefur einnig ný- hafið störf sem einkaþ,jálfari hjá Stúd- íói Huldu. Hann er íþróttakennari að mennt og útskrifaðist frá Iþróttakenn- araskólanum á Laugavatni vorið 1998. Undanfarin tvö ár hefur hann kennt íþróttir við Holtaskóla en sjálfur hefur hann stundað ýmsar íþróttir frá því hann man eftir sér. „Á meðan ég var í íþróttakennaraskóian- um tók ég námskeið um einkaþjálfun og við unnum mikið í tækjasal. íþróttakenn- arar eru að mínu mati gríðarlega vel und- irbúnir fyrir slíka þjálfun", segir Gunn- laugur og aðspurður segist hann jafnvel ætla að sérhæfa sig frekar á þessu sviði í framtíðinni. Gunnlaugur segir að Stúdíó Huldu sé ein- stök líkamræktarstöð að því leyti að hún er stöð fólksins. „Hér eru engir kraftabol- ar og við erum aðallega að fara í gegnum almenna líkamsþjálfun með fólki. Við bjóðum uppá líkamsrækt fyrir venjulegt fólk; eldri sem yngri, konur og karla. Eg hef stundum rekið mig á að það eru margir sem vita ekki að hér er glæsilegur tækjasalur með öllum þeim tækjum sem þörf er á. Einnig höfum við bætt við okk- ur tveimur þrektækjum sem heita Cross Trainer, en þau eru gífurlega vinsæl innan stöðvarinnar. Þessi tæki valda engu álagi, hvorki á hné né bak og gefa mjög mikla brennslu", segir Gunnlaugur og þar með er sá misskilningur leiðréttur. Gunnlaugur er þegar kominn með nokkra einstaklinga til sín í einkaþjálfun og segir að fólki frnnist mjög gott að geta leitað til ákveðins aðila og fengið leiðbeiningar. ,Áhuginn fyrir því að fólk vilji fá einka- þjálfun fer ört vaxandi. Fólk sem kemur í einkaþjálfun fær matardagbók sem við förum reglulega yfir og æfingakerfi sem við setjum upp fyrir hvem og einn. Við veitum fólki mikið aðhald og það liggur við að við hringjum í það ef það gleymir að mæta“, segir Gunnlaugur og brosir. Ingi Gunnar Ólafsson er að Ijúka einkaþjálfaranámi hjá FIA einkaþjálf- araskólanum, sem rekinn er af Jónínu Benediktsdóttur líkamsræktarfröm- uði. Ingi Gunnar hefur unnið sem leið- beinandi hjá Stúdíói Huldu síðan í september á síðasta ári en hefur sjálf- ur stundað líkanisrækt með góðum ár- angri s.l tvö ár. „Upphaflega kom ég til Huldu því ég vildi grenna mig og koma mér í betra form. Eg missti 43 kíló og síðan hef ég verið að byggja upp vöðvamassa. Ég var búin að vera sex ár á leiðinni að koma mér af stað í líkamsrækt og hugsaði alltaf ég byrja bara unt næstu mánaðarmót, spumingin var bara hvaða mánaðarmót það yrðu. Fljótlega sá ég að þessi hugs- unarháttur gengi ekki lengur og ég yrði að byrja strax. Loksins tók ég þetta stóra skref að byrja og ég sé ekki eftir því í dag. Ég skil því alveg þá aðstöðu sem fólk er í því ég hef gengið í gegnum þetta allt saman sjálfur. Það er ekki aðalmálið að vera með einhvem ofurkropp heldur að líða vel og vera sáttari við sjálfan sig“, segir Ingi Gunnar með áherslu. Ingi Gunnar segir að fólkið sem komi til hans hafi mjög ólík markmið og því sé nauðsynlegt að búa til kerfi eftir þörfum hvers og eins. ,JÞegar fólk fer að stunda reglubundna líkamsrækt þá fer það að njóta sín miklu betur í daglegu amstri. Ég tel aðalatriðið vera að fólk byrji að hreyfa sig. Hér hjá okkur í Stúdíói Huldu er and- rúmsloftið mjög gott og heimilislegt og fólki hér finnst það vera hluti af stöðinni þegar það kemur hingað inn. Allir leið- beinendumir hér hafa sérfræðimenntun á sviði líkamsræktar og leggja sig frarn við að láta viðskiptavinunum líða sem best og að þeir nái sínum markmiðum", segir Ingi Gunnar. Auglýsingakynning Samvinnuferðir Landsýn Sumarbæklingurinn kemur út sunnudagínn 13.febrúar. Opið verðurfrá kl. 13-16. Umboðsskrifstofan Víkurbraut 62, Grindauík sími 426 7880. SLOKAR efh VERKTAKAR Múrbrot • Kjarnaborun • Steypusögun Sími 554 4723 Holtabyggð 4*220 Hafnarfjörður i----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1 Sigrún Ólafsdóttir Hjúkrunarframkvæmdastjóri skrifar: ÞúgeturhaftmM áhrifáeiginheilsu í hugunt niargra er heilsugæslustöð einungis læknastöð. Almenningur veit um þá þjónustu sem læknar veita en fáir leiða hugann að annari þjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum almennt. Mikil áhersla er lögð á forvamarstarf innan heilsu- gæslunnar. Við mæðraeftirlit starfa tvær ljósmæður og einn sjúkraliði auk lækna. Þar er fylgst með líðan móður og fósturs á meðgöngunni, móðurinni veitt fræðsla um heilsu- samlegt líferni og boðið er uppá foreldrafræðslu. Við ungbamaeftirlit starfa þrír hjúkrunarfræðingar auk lækna. Þar fer fram mikið forvamrastarf sem er í formi bólusetninga og ýmiskonar fræðslu. Fylgst er með barninu alveg frá fæðingu. Fyrstu skoðanimar fara fram inni á heintili viðkomandi en síðan koma foreldrar með bamið á heilsugæslustöðina í bólusetningar og eftirlit alls tíu sinnunt og oftar ef þörf krefur en þá tekur skóla- heilsugæslan við. Við skólaheilsugæslu starfa þrír hjúkrunarfræðingar og einn sjúkralið auk lækna. Þar er fram haldið því forvarnarstarfi sem hófst í ungbarnaeftirliti með bólu- setningum, eftirliti og enn meiri fræðslu. Þett er eflaust sá vettvangur sem er hvað mikilvægastur m.t.t. for- vamarstarfsins. Við heimahjúkrun starfa þrír hjúkrunarfræðingar, einn sjúkraliði og fjórarófaglærðar konur. Þeir sem þiggja heimahjúkrun eru að stærstum hluta aldraðir en það er óháð aldri hverjir þurfa á þeirri þjónustu að halda. Auk þess að sinna aðhlynn- ingar- og hjúkrunarstörfum veitir heimahjúkrun skjól- stæðingum sínumfræðslu eftir því sem við á. Inni á stöðinni er hjúkr- unarfræðingur með móttöku alla virka daga frá kl 09:00 - 11:30 og sér um sprautugjafir, sáraskiptingar, blóð- þrýstingsmælingar o.fl. Einnig veitir hjúkrunar- fræðingur ráðgjöf varðandi heilbrigt lífemi, svo sem um hollt mataræði og hreyfingu og þeir sem þess óska geta komið í regluleg stuðningsviðtöl. Það þykir sjálfsagt að hafa greiðan aðgang að góðri þeilbrigðisþjónustu en gleym- um ekki að hver einstaklingur getur haft mikil áhrif á eigin heilsu. Sigrún Ólafsdóttir Hjúkrunarfram- kvœmdastjóri L J 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.