Víkurfréttir - 10.02.2000, Síða 20
Gunnlaugur Kárason hefur einnig ný-
hafið störf sem einkaþ,jálfari hjá Stúd-
íói Huldu. Hann er íþróttakennari að
mennt og útskrifaðist frá Iþróttakenn-
araskólanum á Laugavatni vorið 1998.
Undanfarin tvö ár hefur hann kennt
íþróttir við Holtaskóla en sjálfur hefur
hann stundað ýmsar íþróttir frá því
hann man eftir sér.
„Á meðan ég var í íþróttakennaraskóian-
um tók ég námskeið um einkaþjálfun og
við unnum mikið í tækjasal. íþróttakenn-
arar eru að mínu mati gríðarlega vel und-
irbúnir fyrir slíka þjálfun", segir Gunn-
laugur og aðspurður segist hann jafnvel
ætla að sérhæfa sig frekar á þessu sviði í
framtíðinni.
Gunnlaugur segir að Stúdíó Huldu sé ein-
stök líkamræktarstöð að því leyti að hún
er stöð fólksins. „Hér eru engir kraftabol-
ar og við erum aðallega að fara í gegnum
almenna líkamsþjálfun með fólki. Við
bjóðum uppá líkamsrækt fyrir venjulegt
fólk; eldri sem yngri, konur og karla. Eg
hef stundum rekið mig á að það eru
margir sem vita ekki að hér er glæsilegur
tækjasalur með öllum þeim tækjum sem
þörf er á. Einnig höfum við bætt við okk-
ur tveimur þrektækjum sem heita Cross
Trainer, en þau eru gífurlega vinsæl innan
stöðvarinnar. Þessi tæki valda engu álagi,
hvorki á hné né bak og gefa mjög mikla
brennslu", segir Gunnlaugur og þar með
er sá misskilningur leiðréttur.
Gunnlaugur er þegar kominn með nokkra
einstaklinga til sín í einkaþjálfun og segir
að fólki frnnist mjög gott að geta leitað til
ákveðins aðila og fengið leiðbeiningar.
,Áhuginn fyrir því að fólk vilji fá einka-
þjálfun fer ört vaxandi. Fólk sem kemur í
einkaþjálfun fær matardagbók sem við
förum reglulega yfir og æfingakerfi sem
við setjum upp fyrir hvem og einn. Við
veitum fólki mikið aðhald og það liggur
við að við hringjum í það ef það gleymir
að mæta“, segir Gunnlaugur og brosir.
Ingi Gunnar Ólafsson er að Ijúka
einkaþjálfaranámi hjá FIA einkaþjálf-
araskólanum, sem rekinn er af Jónínu
Benediktsdóttur líkamsræktarfröm-
uði. Ingi Gunnar hefur unnið sem leið-
beinandi hjá Stúdíói Huldu síðan í
september á síðasta ári en hefur sjálf-
ur stundað líkanisrækt með góðum ár-
angri s.l tvö ár.
„Upphaflega kom ég til Huldu því ég
vildi grenna mig og koma mér í betra
form. Eg missti 43 kíló og síðan hef ég
verið að byggja upp vöðvamassa. Ég var
búin að vera sex ár á leiðinni að koma
mér af stað í líkamsrækt og hugsaði alltaf
ég byrja bara unt næstu mánaðarmót,
spumingin var bara hvaða mánaðarmót
það yrðu. Fljótlega sá ég að þessi hugs-
unarháttur gengi ekki lengur og ég yrði
að byrja strax. Loksins tók ég þetta stóra
skref að byrja og ég sé ekki eftir því í
dag. Ég skil því alveg þá aðstöðu sem
fólk er í því ég hef gengið í gegnum þetta
allt saman sjálfur. Það er ekki aðalmálið
að vera með einhvem ofurkropp heldur
að líða vel og vera sáttari við sjálfan sig“,
segir Ingi Gunnar með áherslu.
Ingi Gunnar segir að fólkið sem komi til
hans hafi mjög ólík markmið og því sé
nauðsynlegt að búa til kerfi eftir þörfum
hvers og eins. ,JÞegar fólk fer að stunda
reglubundna líkamsrækt þá fer það að
njóta sín miklu betur í daglegu amstri. Ég
tel aðalatriðið vera að fólk byrji að hreyfa
sig. Hér hjá okkur í Stúdíói Huldu er and-
rúmsloftið mjög gott og heimilislegt og
fólki hér finnst það vera hluti af stöðinni
þegar það kemur hingað inn. Allir leið-
beinendumir hér hafa sérfræðimenntun á
sviði líkamsræktar og leggja sig frarn við
að láta viðskiptavinunum líða sem best
og að þeir nái sínum markmiðum", segir
Ingi Gunnar.
Auglýsingakynning
Samvinnuferðir
Landsýn
Sumarbæklingurinn kemur út
sunnudagínn 13.febrúar.
Opið verðurfrá kl. 13-16.
Umboðsskrifstofan Víkurbraut 62,
Grindauík sími 426 7880.
SLOKAR efh
VERKTAKAR
Múrbrot • Kjarnaborun • Steypusögun
Sími 554 4723
Holtabyggð 4*220 Hafnarfjörður
i----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1
Sigrún Ólafsdóttir Hjúkrunarframkvæmdastjóri skrifar:
ÞúgeturhaftmM
áhrifáeiginheilsu
í hugunt niargra er
heilsugæslustöð einungis
læknastöð. Almenningur veit
um þá þjónustu sem læknar
veita en fáir leiða hugann að
annari þjónustu sem veitt er á
heilsugæslustöðvum almennt.
Mikil áhersla er lögð á
forvamarstarf innan heilsu-
gæslunnar.
Við mæðraeftirlit starfa tvær
ljósmæður og einn sjúkraliði
auk lækna. Þar er fylgst með
líðan móður og fósturs á
meðgöngunni, móðurinni
veitt fræðsla um heilsu-
samlegt líferni og boðið er
uppá foreldrafræðslu.
Við ungbamaeftirlit starfa þrír
hjúkrunarfræðingar auk
lækna. Þar fer fram mikið
forvamrastarf sem er í formi
bólusetninga og ýmiskonar
fræðslu. Fylgst er með
barninu alveg frá fæðingu.
Fyrstu skoðanimar fara fram
inni á heintili viðkomandi en
síðan koma foreldrar með
bamið á heilsugæslustöðina í
bólusetningar og eftirlit alls
tíu sinnunt og oftar ef þörf
krefur en þá tekur skóla-
heilsugæslan við.
Við skólaheilsugæslu starfa
þrír hjúkrunarfræðingar og
einn sjúkralið auk lækna.
Þar er fram haldið því
forvarnarstarfi sem hófst í
ungbarnaeftirliti með bólu-
setningum, eftirliti og enn
meiri fræðslu. Þett er eflaust
sá vettvangur sem er hvað
mikilvægastur m.t.t. for-
vamarstarfsins.
Við heimahjúkrun starfa þrír
hjúkrunarfræðingar, einn
sjúkraliði og fjórarófaglærðar
konur. Þeir sem þiggja
heimahjúkrun eru að
stærstum hluta aldraðir en
það er óháð aldri hverjir þurfa
á þeirri þjónustu að halda.
Auk þess að sinna aðhlynn-
ingar- og hjúkrunarstörfum
veitir heimahjúkrun skjól-
stæðingum sínumfræðslu eftir
því sem við á.
Inni á stöðinni er hjúkr-
unarfræðingur með móttöku
alla virka daga frá kl 09:00 -
11:30 og sér um sprautugjafir,
sáraskiptingar, blóð-
þrýstingsmælingar o.fl.
Einnig veitir hjúkrunar-
fræðingur ráðgjöf varðandi
heilbrigt lífemi, svo sem um
hollt mataræði og hreyfingu
og þeir sem þess óska geta
komið í regluleg
stuðningsviðtöl.
Það þykir sjálfsagt að hafa
greiðan aðgang að góðri
þeilbrigðisþjónustu en gleym-
um ekki að hver einstaklingur
getur haft mikil áhrif á eigin
heilsu.
Sigrún Ólafsdóttir
Hjúkrunarfram-
kvœmdastjóri
L
J
20