Víkurfréttir - 10.02.2000, Qupperneq 23
Topplið Grindvíkinga bætti rós í
hnappagatið með því að leggja
KR-inga 59-54 í úrslitaleik
Renault-bikarkeppni KKÍ sl.
laugrdag.
Leikurinn var ekkert augnakonfekt,
að undanskildum glæsilegum
lokakafla Ermolinskijs, en var þrátt
fyrir það afar spennandi. Mikil
barátta og afar léleg sóknamýting
einkenndi leikinn (samtals 11 af 46
úr þriggja stiga skotum) og aðeins
þrír leikmenn nýttu meira en
helming skottilrauna sinna, Pétur
Guðmundsson 60%, Alexander
Ermolinskij 50% og Keith Vassel
54%. Þegar öll sund virtust
Grindvíkingum lokuð steig
Ermolinskij fram fyrir skjöldu og
breytti leiknum Grindvíkingum í
hag, Guðlaugur Eyjólfsson kom
með 5 mikilvæg stig í röð og ungir
KR-ingar brotnuðu undan álaginu.
Fögnuður Grindvíkinga var mikill í
leikslok enda komnir með í
magann af spenningi og allt útlit
fyrir sigur Vesturbæinga þegar
gamli maðurinn tók leikinn í sínar
hendur. Stigahæstir voru Brenton
23, Pétur 13, Eyjólfur 10 og
Ermolinskij 8.
Hvcrgi betri nýting á úrslitaleiki
Enginn slær Grindvíkingum við í
árangri í bikarúrslitaleikjum.
Þrisvar í úrslit, þrír bikartitlar til
Grindavíkur. Að þessu sinni var
kastið erfitt og folaldið lítt fyrir
augað þótt eflaust verði úr
fallegasti gæðingur þegar ffam líða
stundir. Lokastaðan, 59-54, var
aðeins sex stigum betri en úrslitin í
kvennaboltanum (59-48) og mér til
efs að áður hafi úrslitaleikur karla
og kvenna unnist á sömu stigatölu.
Hetja í sínum fyrsta bikarsigri
Þeir vom nokkrir Grindvíkingamir
sem urðu bikarmeistarar í fyrsta
sinn en engum hefur þótt sigurinn
jafn sætur og „gamla manninum”
Alexandre Ermolinskij sem var
Kylfingar
öðmm fremur hetja leiksins. Eftir
35 mínútna sóknarmartröð
Grindvíkinga tók Alex sig til,
lokaði leið KR-inga að körfu
Grindvíkinga og varði 5 skot á
stuttum tíma. Liðið fékk
sjálfstraustið, sneri leikinn úr
höndum Keiths Vassel og hinna
KR-inganna (sem þó lítið bar á) og
heimti bikarinn til Grindavíkur. “-
Þetta var fyrsti úrslitaleikurinn sem
ég hef leikið á mínum 8 árum á
Islandi. Andrúmsloftið minnti á
leiki í Sovétríkjunum fyrir u.þ.b 15
árum síðan, stórt íþróttahúsið og
mikið af fjörugum áhorfendum.
Það var gaman að eiga þátt í að
landa titlinum en ég vill nú lítið
gera úr mínum hlut. Eg náði að
verja nokkur skot og við það tók
öll vömin við sér. Keith Vassel var
orðinn þreyttur og kom sér ekki inn
í leikinn og ég sá að ungu
strákamir hjá KR urðu hræddir við
að koma inn t' vítateiginn.”
Golfklúbbur Suðurnesja hefur
opnað æfingaaðstöðu I gamla
þvottahúsi SBK við Hafnargötu
í Keflavík.
Opið er virka daga frá kl. 15-21
og um helgar frá kl. 11-15.
Æfingar unglinga eru sem hér segir:
Stúlkur
mánud. og fimmtud. kl. 16-17
Piltar 12 ára og yngri
þriðjud. og fimmtud. kl. 15-16
Piltar 13-15 ára
mánud. og miðvd. 15-16
Piltar 16-18 ára
þriðjud. og föstud. kl. 17-18
Sigurður Sigurðsson golfkennari
býður upp á golfkennslu fyrir
byrjendur og lengra komna,
einnig hópa og fyrirtæki í hóptíma.
Allar upplýsingar hjá S.S.
í síma 891 9118
Vassel góður og til fyrirmyndar
Kanadamaðurinn Keith Vassel fór
langleiðina með að bera KR-inga á
herðunum að bikarmeistara-
titlinum. Hann hitti úr 7 af 13
skotum (28 stig), öllum tólf vítum
sínum og tók 17 fráköst (allt
Grindavíkurliðið tók 27 fráköst) og
varði 2 skot. Þakka Grindvíkingar
örugglega þokkadísum sínum að
KR-ingar skyldu ekki leita betur til
hans á lokamínútunum.
„Eg efaðist aldrei um hvorum
megin sigurinn myndi lenda“ ,
sagði Brenton Birmingham við VF.
.Jafnvel 12 stigum undir í seinni
hálfleik þá trúði ég engu öðm en
að við myndum sigra. Það tók
skotmenn okkar rúmlega 30
mínútur að hitna en hlutimir gengu
upp þegar það skipti virkilega máli.
Það er erfltt að skilgreina allt það
sem Ermo færir liðinu en
frammistaða hans á loka-
mínútunum var gulls ígildi. Hann,
Gulli, Pétur og Beggi skomðu allir
mikilvæg stig á 17-4 spretti okkar í
lokin.
námskeið sem byrja
í næstu uiku eru:
EXEL
Free Hand
Lotus Notes
Skrárting stendur i/fir.
Nánari upplýsingar
í síma 4,21-4,025
alla daga vikunnar
eða á heimasíðu skólans
www.tss.is
á alþjóðlegu sundmóti
tölvuskóli
suöurnesja
HAFNARGÖTU 35 • SÍMI 421 4025
Aðalfundur
KEFLAVÍK íþrótta- og ungmennafélag
heldur aðalfund sinn 29. febrúar kl. 20
á sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Allir velkomnir
Aðalstjórn KEFLAVÍKUR
Atvinna
Starfsfólk óskast til fiskvinnslu.
Upplýsingar í síma 423 7375
eða 898-9237.
Sjávargull ehf, Sandgerði.
sos - sos
Knattspyrnudeild Keflavíkur bráð-
vantar íbúðir til leigu, 2ja og 3ja
herbergja, sem allra fyrst fyrir
þjálfara og leikmenn. Upplýsingar
gefur Grétar í síma 893 4414.
23