Víkurfréttir - 10.02.2000, Qupperneq 12
Hættulegir vegir eða
hættulegir ökumenn?
Frá vettvangi alvarlegs umferðarslyss á Reykjanesbraut.
Myndin tengist ekki efni greinarinnar.
Kæri samlandi
Mikið hefur verið rætt og ritað
um okkar ágætu Reykjanes-
braut á umliðnum ámm vegna
tíðra slysa. Sitt sýnist hverjum
en allir eru sammála um að
tvöfalda þurfi brautina. Hins
vegar fór ég að hugsa, eftir að
hafa ekið hana tvisvar til
Reykjavíkur með stuttu milli-
bili, hvað er að í raun og veru?
Þannig var að í fyrra skiptið
þegar ég ók brautina og var
staddur á Strandarheiði, var bíll
á undan mér sem ekið var á um
75-80 km hraða og ég hugsaði
með mér að fara bara fram úr
honum þegar vel stæði á eftir
að við værum komnir upp úr
Kúagerðinu. En viti menn, í
Kúagerðinu jók ökumaðurinn
hraðann og ók nú á u.þ.b. 90-
100 km hraða. En hvað, við
þetta virtist sem ökumaður
hefði ekki fulla stjóm á bifreið-
inni. Hann ók margsinnis yfir á
öfugan vegarhelming svo að
stór hætta stafaði af. Hafði ég
því símasamband við lögregl-
una í Hafnarftrði og lét þá vita.
Við kirkjugarðinn í Hafnarfirði
mættu lögreglumenn umrædd-
um bíl og óku þeir á eftir hon-
um. En þeir vom því miður of
seinir því ökumaður bifreiðar-
innar áttaði sig ekki á að rautt
Ijós var á umferðarljósunum
framundan og ók því aftan á
kyrrstæðan bíl sem beið á
rauðu ljósi. Sá ég að lögreglu-
mennimir studdu ökumann bif-
reiðarinnar úr bifreiðinni og
inn í lögreglubifreiðina og var
vel sjáanlegt að ökumaður var
ekki í ástandi til að aka bifreið.
í hitt skiptið var ég á sömu leið
og staddur á Strandarheiði er
ég veitti því athygli að framúr-
akstur var í gangi hjá öku-
manni sem var á leið til Kefla-
víkur, þrátt fyrir mikla umferð
frá Keflavík. Það skipti engum
togum að þegar ég mætti bif-
reiðinni voru þrjár bifreiðar
samsíða á brautinni. Ökumaður
bifreiðarinnar, sem verið var að
aka framúr, sá þann kost einan
að fara út á vegaröxlina til þcss
að koma í veg fyrir slys og
kann ég honum bestu þakkir
fyrir.
Eftir þessa reynslu fór ég að
hugsa, jú Reykjanesbrautin er
slæm, en eru sumir ökumenn
ekki bara snar klikkaðir. Og
síðan enn aðrir sem vanmeta
getu sína sem ökumenn og aka
of hratt miðað við aðstæður.
Ég held, kæru samlandar, að
við verðum að fara að hugsa
örlítið út í þann fjölda slysa
sem verða í umferðinni, hvers
vegna þau verða og hvað er til
ráða til að fækka þeim. Mín
skoðun er sú að bara við það að
fara eftir grunnreglum umferð-
arinnar, þ.e. að aka miðað við
aðstæður. þá væri hægt að
fækka slysum verulega. Einnig
megum við ekki gleyma góða
skapinu og tillitsemi við aðra
vegfarendur.
Kveðja, Hrafn Ásgeirsson
a\
adidas
adidas
adidas
adidas
adidas
ITOA SUHARLÍflAfl
er ranin
adidas
EQUIRMENT
P.S. Vissir þú að allir þeir
sem eiga þrek og Ijósakort
á Perlunni fá 10% afslátt af
Adidas vörum
W k ‘ * 1 * 4
PEKLllk
S O L
HAFNARGÖTU 32
SÍMI: 421 4455
Atli Heimin í Bláa lonunu
Upphafi fyrsta heila starfsárs Bláa lónsins var fagnað sl.
fimmtudag með uppákomu í Vetrargarði Bláa lónsins. Þar var
velunnurum og starfsfólki fyrirtækisins boðið að upp á léttar
veitingar og skemmtidagskrá. Bergþór Pálssons söng og
ávörp voru flutt. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Atli Heimir
Sveinsson tónskáld og Guðmundur Emilsson menningarfull-
trúi Grindavíkur á tali við Sólveigu Gránz hjúkrunarfærðing
hjá Bláa lóninu. VF-mynd: Hilmar Bragi
12