Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 11
Halla Tómas- dóttir, launafull- trúi; Það tók mig mörg að byrja í öldung, ég hélt ég væri of gömul. Mig hafði alltaf langað til að læra meira og loks tók ég af skarið og fór í skólann. Nú finnst mér mesta syndin að hafa ekki farið fyrr af stað því þetta hefur gefið mér svo mikið. Ég fór hægt af stað, byrjaði í tveimur fögum og lærði allt frá grunni. Maður lærir allt öðruvísi sem fullorð- inn því nú læri ég fyrir sjálfa mig og legg mig meira fram við námið. Ég er kröfuhörð og vil fá góðar einkunnir, það er ekki nóg að ná prófi lengur. Ég hef verið í kvöldskólanum og einnig tekið utanskóla nokkur fög. I íyrstu stefndi ég ekki að neinu sérstöku heldur vildi ég bara auka þekkingu mína en þegar ég sá að ég gat þetta þá fór boltinn að rúlla og metnað- urinn jókst. Nú stefni ég á stúd- entspróf og það er innan seil- ingar. Það gengur ágætlega að sam- ræma vinnu og skóla ef ég tek ekki of mörg fög. Kostir þess em ótvíræðir að eiga aðgang að öldungadeild FS því þá getur fólk bæði unnið og stundað nám. Ég hef grætt hellings visku af náminu. Svo eru kennarar öldungadeildar bæði skemmtilegir og hjálpsamir. Bergþóra Vilhelmsdóttir, sjúkraliöi; Ég hef verið af og til í öldung síðastliðin 6 ár og stefni að stúdentsprófi næsta vor. Mér finnst kostir þess að stunda nám í kvöldskóla margir. Fólk Aldrei of seint aö læra Margir Suðurnesjamenn hafa látið drauminn rætast um frekari mennt- un í öldungadeild Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Deildin hefur starfað í mörg ár og hafa langflestir kennaranna mikla reynslu í fullorðins- kennslu. Það vekur athygli að enn fjölgar námsmöguleikum deildarinn- ar. Námsgreinar sem kenndar eru í dagskóla eru æ oftar einnig í boði kvöldskólans, sem gerir vinnandi fólki kleift að stunda nám og vinnu samtímis. Við leituðum uppi nokkra nemendur öldungadeildarinnar og fcrvitnuðumst um nám þeirra. fer í öld- ungadeild til þess að læra og 1 á t a drauma sína ræt- ast. Mað- ur eignast m a r g a góða vini þar og sumir sækja í félags- skapinn. Það eru ekki allir til- búnir að læra á daginn með unglingunum, alla vega ekki fyrst til að byrja með, þá er gott að vera með öðrum öld- ungum. Ef fólk hefur áhuga og möguleika á því að fara í skóla, þá á það að gera það, í stað jsess að vera alltaf að bt'ða eftir „rétta tækifærinu“. Bragi Páll Sigurðsson, verslunarmaður; Mér hefur gengið vel að sam- ræma vinnu og nám í öldunga- deild því ég á mjög skilnings- r í k a vinnuveit- e n d u r . S v o n a nám krefst þess að m a ð u r skipuleggi tímann sinn og nota ég kvöldin og helgar til þess að læra heima. Fyrst fór ég í öldung til þess að hafa eitthvað fyrir stafni. Þegar ég sá að mér gekk vel þá fylltist ég metnaði og stefni nú á að klára stúdents- próf um jól. Kannski verður framhald á námi mínu eftir það, það er aldrei að vita. Stúd- entsprófið verður alla vega lyk- ill að frekara námi ef ég vil. Námið skilur meira eftir núna, því maður hefur þroskann til þess að hlusta og man betur það sem sagt er í kennslu- stund.Það skapast einnig oft skemmti- 1 e g u r mórall í t í m u m þ e g a r nemendur og kennari ná vel saman. Þetta verður næstum því eins og að vera í góðum vinahóp. Þórhallur Ingason, húsasmiður; Mér finnst ekkert vandamál að stunda vinnu og nám um leið, maður verður bara að skipu- leggja tímann sinn. Ég lýk meistaranámi í húsasmíði á komandi jólum. Ég er alveg sérstaklega ánægður með öld- ungadeild Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Það er sama hvar maður kemur að þessum skóla - .JHJdUllitLillSu'i og starfsfólki hans, úrvalsskóli! Ég ligg ekkert á þeirri skoðun minni að kennarar öldunga- deildar eru sérstaklega hjálp- samir og áhugasamir um nem- endurna, svo eru þeir líka skemmtilegir. Þeir koma vel undirbúnir og leggja mikið á sig fyrir okkur nemendurna. Maður finnur það jregar maður kemur inn í FS að þar er góður ntórall og fólki líður vel þama. Ég er kröfuharður nemandi og hef samanburð á framhalds- skóla hér og á höfuðborgar- svæðinu og það er ólíkt betra að stunda nám ÍFS. Birna Þórðar- dóttir, nemi; I fyrstu fannst mér fjarlægt að læra eitt- hvað. Mér fannst ég orðin of gömul en ég sé það núna að maður er aldrei of gamall til að læra. Ég útskrifaðist sem stúd- ent síðastliðið vor og ætla að halda áfram að læra nú í haust. Iðnskóli á höfuðborgarsvæðinu er næsti áfangastaður því ég er að fara í dagskóla að læra tækniteiknun sem er þriggja ára nám.Ég byrjaði í öldung með því að ögra sjálfri mér og valdi erfið fög en þegar ég sá að ég náði þeim þá fannst mér allt í lagi að halda áfram. Ég kom mér fljótt inn á braut og setti mér markmið.Þetta var allt léttara en ég hélt í fyrstu. Þetta er skemmtilegt en einnig krelj- andi. Skólinn hristir nemendur saman og allir em að stefna að því sama í öldung. Ahugi nem- enda er mikill og ég eignaðist þvílíka félaga þar. Eftir þetta allt saman finnst mér núna leikur að læra. ÆTLAR ÞÚ Á UÓSANÓTT? Valdimar Einarsson Já ég fer hiklaust. Ég er reynd- ar að vinna vaktavinnu en það sleppur. Trausti Arngrímsson Já mig langar að fara því ég fór ekki í fyrra. Kristjón Freyr Hjaltstedt Ég fer örugglega ekki annars veit ég það ekki. Það var ágætt ífyrra. VF SPURNINGIN Eygló Óttarsdóttir Ég verð ekki í bænum. Guðríður Gestsdóttir Já já. Þetta var alveg ífábært í fyrra og mikil stemning í bæn- Látið okkur vita af fréttnæmum atburðum. Fréttasímar Víkurfrétta 690-2222 og 893-3717 Daglegar fréttir frá Suöurnesjum á www.vf.is 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.