Víkurfréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 2
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Frítt í strætó
í desember
w
Itengslum við verslunar-
daga í Reykjanesbæ í
desember verður boðið
frítt í strætisvagnana þennan
mánuð. Þann 1. janúar tekur
tekur svo gildi ný gjaldskrá
en samkvæmt henni fá böm
og unglingar 18 ára og yngri
frítt í strætó. Auk þess geta
öryrkjar og ellilífeyrisþegar
notað almenningssamgöngur
sér að kostnaðarlausu.
Sjö ára stelpa
varð fyrir bíl í
Grindavík
Sjö ára stúlka varð fyrir
bíl á mótum Leynis-
brautar og Heiðar-
hrauns í Grindavík fyrir
síðustu helgi. Stúlkan var að
leik ásamt hópi bama þegar
hún virðist hafa skyndilega
hlaupið út á götuna og í veg
fyrir bílinn. Hún var flutt
með sjúkrabíl á Landspítala -
háskólasjúkrahús. Sam-
kvæmt upplýsingum læknis
fékk stúlkan kúlu á höfúðið
og mar hér og þar um lík-
amann.
Hinn látni var
færeyskur
sjómaður
Maðurinn sem fannst
látinn í Grindavíkur-
höín í síðustu viku
var Færeyingur og skipvetji
á færeysku skipi sem liggur í
Grindavíkurhöín. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
Lögreglunni í Keflavík var
maðurinn að skemmta sér á
bar í Grindavík á mánudags-
kvöldið í síðustu viku. Svo
virðist sem hann hafi fallið
milli skips og bryggju á leið
um borð í skipið, en mjög
slæmt veður var á Suður-
nesjum aðfaramótt þriðju-
dagsins.
JÓLAFJÖR í NJARÐVÍK
Krakkamir sem voru á jólaballi Njarðvíkurskóla á laugardag skemmtu sér vel með jólasveininum. Jólasveinninn söng jólalög og
krakkarnir tóku hraustlega undir og foreldrarnir líka. Að sjálfsögðu var gengið í kringum jólatréð og lagið „Göngum við í kring-
um“ sungið hástöfum. Það er greinilegt að Stekkjastaur hefur tekið forskot á sæluna með því að heilsa upp á krakkana í Njarð-
víkurskóla, því samkvæmt dagatalinu á hann ekki að koma til byggða fyrr en næsta fimmtudag.
GERT RÁÐ FYRIR
REKSTRARAFGANGI
í REKSTRI BÆJARINS
Tekjur Reykjanesbæjar á
næsta ári eru áætlaðar
rúmir 2,7 ntilljarðar
króna en útgjöld eru áætluð
um 2,2 milljarðar króna.
Hagnaður af rekstri er áætl-
aður rúmar 319 milijónir
króna þegar tekið hefur verið
tillit til fjármagnsliða.
Langstærstur hluti rekstrar-
gjalda bæjarfélagsins fer til
uppeldis- og fræðslumála eða
tæpar 1.250 milljónir króna
sem eru um 46% af heildar-
rekstrarkostnaði. Til íþrótta- og
tómstundamála fara rúmar 300
milljónir króna og til menning-
armála fara rúmar 100 milljón-
ir króna. Til félagsþjónustu fara
tæpar 250 milljónir króna.
Damon John-
son brátt ís-
lendingur
Fyrir alþingi íslend-
inga liggur tillaga um
að Damon Johnson
körfuboltakappi í liði
Keflavíkur hljóti íslensk-
an ríkisborgararétt. Til-
lagan var lögð fyrir Als-
herjarnefnd alþingis í dag
og hefur Kristján Pálsson
alþingismaður unnið ötul-
lega að málinu.
Gert er ráð fyrir því að til-
lagan verði afgreidd út úr
þinginu í næstu viku.
Syntu á eftir björgunarskipinu
Tveir félagar í björgunar-
sveitinni Sigurvon í
Sandgerði syntu út að
björgunarskipinu Hannesi Þ.
Hafstein fyrir síðust helgi eft-
ir að flotbryggja sent skipið
var bundið við slitnaði upp í
miklu ólagi í höfninni. Línu-
skipið Freyja GK var einnig
bundið við bryggjuna. Sig-
urður Stefánsson kafari í fé-
lagi við annan björgunar-
sveitarmeðlim sjósettu syst-
urbát á björgunarskipinu og
fóru á honum að landi til að
sækja fleiri björgunarmenn.
A morgunflóðinu sl. fostudag-
var snælduvitlaust veður í
Sandgerðishöfh og gengu brot-
in yftr sjóvamagarða við höfh-
ina. Flotbryggjan sem skipin
voru bundin við er nú úti i
miðri höfn en þegar menn
komu að höfhinni í rnorgun ótt-
uðust menn hið versta og héldu
um tíma að björgunarskipið og
Freyja GK myndu reka upp í
fjöru. Tugir smábáta voru
eirrnig á næstu flutbryggjum og
hefðu verið í hættu ef skipin
hefðu farið á þá.
I höfninni voru einnig tveir tog-
arar Nesfisks, Sóley Siguijóns
og Berglín. Að sögn Sigurðar
var sem togararnir væru úti í
stórsjó, þvílíkur var veðurham-
urinn. Um kl. 08 um morg-
uninn gekk veðrið niður og
biðu menn birtingar svo hægt
væri að huga að festingum á
flotbryggjunni.
Nýjustu fréttir á www.vf.is
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2002
. -