Víkurfréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 36
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
I $sÁum viðs/tiptavinum oÁiQir
píefÍiíefjrajóía
orj/ansœtftar á mjju ári
me<) fö/fy /jrir viðsKÍptin
á árin u sern er a<) /iða.
Sjáumst hress,
Bylgja og Linda.
Hársnyrtistofan Klifs,
Cónhól 74, Njarðvík.
jemjsmonnum o/j
(jfiiðuniesjamönmm ö(Tum (iestu ósítir um
jarsœd (wnumdi ár.
pfiödímm samstmjiá
a annu sem er
Iðnsveinafélag Suðumesja
Gargandi snilld!
Utgáfufyrirtækið Geimsteinn var með út-
gáfutónleika á Ránni sl. fimmtudag þar
sem kynntar voru þrjár plötur sem fyr-
irtækið hefur gefið út á þessu ári.
Fyrstir á sviðið voru ungir tónlistarmenn úr
Keflavík sem kalla sig Rými. Þeir spiluðu fjögur
lög af frumburði sínum, Unity, for the first time,
sem kom út fyrr á þessu ári. Það er ljóst að þess-
ir strákar eiga eftir að vekja meiri athygli í fram-
tíðinni enda finir tónlistarmenn. Kröftugir dreng-
ir sem spila gott og vel útpælt rokk.
Það voru fleiri sem þekktu trúbadorinn sem
næstur steig á stokk, Bjartmar Guðlaugsson,
enda kallinn löngu orðinn ffægur fyrir skemmti-
lega texta. Bjartmar lék nokkur lög af nýju plötu
sinni, Vor, ásamt nokkrum gömlum og góðum.
Bjartmar hefur litlu gleymt og er enn hnitmiðað-
ur og góður textahöfundur. Nýju lögin eru auð-
veld hlustunar og hitta í mark.
Síðastur á sviðið var kóngurinn sjálfiar, Rúnar
Júlíusson, í nýjum búningi, án gítarsins og bass-
ans en með hljóðnemann að vopni. Fálkanir og
Gálan sáu um undirspil og tóku þeir lög af nýju
plötunni, Það þarf fólk eins og þig, sem fengið
hefúr frábæra dóma. Ef fólk vissi ekki af hæfi-
leikum hljóðfæraleikaranna fyrir þetta kvöld veit
fólk af þeim núna, þvílíkir snillingar. Frá fyrstu
mínútu átti Rúnni salinn, sem var orðinn þéttset-
inn þegar leið á kvöldið. Hann hefur aldrei verið
betri og tók sig vel út í hlutverki töffarans með
hljóðnemann. Nýji diskur kappans er sá besti
hingað til enda er hann með öfluga tónlistarmenn
á bakvið sig sem leika af fingrum fram. Að lok-
um tók Rúnni nokkra gamla slagara og var ekki
laust fyrir því að fólki kítlaði í iljamar enda létu
nokkrir sig vaða út á dansgólfið.
I heildina litið voru þessir tónleikar pottþéttir,
góð tónlist og mikil skemmtun.
Kiddi fálki með
létt gítarsóló.
Fálkarnir og Gálan
eru snillingar
þegar kemur að
hljóðfæraleik.
I
36
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2002