Morgunblaðið - 30.05.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.05.2016, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 3 0. M A Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  124. tölublað  104. árgangur  BJÓST VIÐ BYSSU VIÐ HNAKKANN AFBURÐA- DANSARAR FÓRU Á KOSTUM STERKAR SÖGUR Í HÖNDUM FÆRS LEIKSTJÓRA SAN FRANCISCO-BALLETTINN 29 THOMAS OSTERMEIER 26SÓLMUNDUR Í SÓLHESTUM 12 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Börn allt niður í 12 ára sýna sjálfs- skaðandi hegðun með því að skera sig og brenna, en það er leið sumra barna og unglinga til að bregðast við miklum tilfinningavanda. Þetta segir Ágústa Ingibjörg Arnardóttir sál- fræðingur. Hún segir að um helm- ingur þeirra barna og ungmenna sem til hennar leita skaði sig. „Þau eru að umbreyta andlega sársauk- anum í líkamlegan,“ segir hún. Engar rannsóknir hafa verið gerð- ar hér á landi á umfangi þessa vanda, en ný dönsk rannsókn, sem gerð var af barnaverndarráði Danmerkur, sýnir að 22% danskra 9. bekkinga skaða sjálf sig. Ágústa segir að þess- ar tölur gætu vel átt við um Ísland, ekki sé ólíklegt að umfangið sé svip- að hér. Mörg barnanna hafi orðið fyrir áföllum, m.a. kynferðisofbeldi. Flest þeirra eigi sögu um einelti, í mörgum tilvikum alvarlegt. Í viðtali við Morgunblaðið greinir Tara Ösp Tjörvadóttir frá því þegar hún skar sig um nokkurra ára skeið þegar hún var unglingur. Hún segir að það hafi verið sín leið til að fást við vanlíðan sem fylgdi þunglyndinu. Hún segir að umræða og stuðningur sé algert lykilatriði í þessu sam- bandi. „Mér leið eins og ég væri ein, að það væri enginn sem gæti hjálpað mér,“ segir Tara Ösp. Skaða sig vegna vanlíðunar  Sjálfsskaði barna og unglinga er leið sumra til að bregðast við tilfinningavanda  Mörg hafa sætt einelti eða öðru ofbeldi  Gæti átt við um 20% íslenskra barna MMeiða sig til að deyfa »10 Getty Images/iStockphoto Sjálfsskaði Mörg ungmenni sem skaða sig hafa orðið fyrir einelti. Fjórir dagar eru eftir af þingstörfum áður en þingmenn halda í sumar- leyfi. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokks, segist reikna með að fyrir þann tíma muni ríkisstjórnarflokk- arnir reyna að klára ýmis mál sem fyrir liggja í þinginu. Nefnir hún meðal annars frum- varp um almennar félagslegar íbúð- ir, frumvarp um húsnæðisbætur og ný húsaleigulög, auk frumvarps um greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjón- ustu. Svandís Svavarsdóttir, þing- flokksformaður Vinstri grænna, seg- ist búast við átakalítilli viku. „Þetta verða hefðbundnir þing- dagar þar sem við erum ekki að horfa fram á þessi venjulegu þinglok og það sem þeim fylgir. Úr því sem komið er sýnist mér sem átakamálin verði frekar með haustinu.“ Eldhúsdagsumræður verða í kvöld en áður verður sérstakur fyr- irspurnatími. „Það er verið að taka þær fyrir- spurnir sem eftir standa og gefa þeim sem eiga enn fyrirspurnir kost á að fá þeim svarað áður en þingið fer í leyfi,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. »4 4 dagar eftir af þinginu Morgunblaðið/Ómar Þing Átakalítil vika er sögð vera í vændum innan veggja Alþingis.  Ýmis mál bíða afgreiðslu þingsins Óttast er að um 700 manns, allt flóttafólk, hafi farist í fjórum skipsköðum á leiðinni frá Líbíu til Ítalíu í síðustu viku. Í mesta slysinu er talið að fimm hundruð manns hafi farist með yfirfullum bát. „Við reyndum allt til þess að hindra að sjórinn flæddi inn í bátinn og reyndum að ausa honum út. Það var gagnslaust. Það byrjaði að flæða inn í bátinn og þeir sem voru neðan þilja áttu ekki möguleika,“ sagði nígerísk stúlka sem bjargað var úr bátnum eft- ir komuna til Ítalíu. Sagt er að fimmtán bátar hið minnsta haldi frá Líbíu til Ítalíu á degi hverjum en flestir flóttamennirnir koma svo á land í Sikiley. Flugvél Landhelgisgæslunnar mun verða í mánuð við eftirlit á svæðinu í haust á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu, líkt og hún hefur verið áður. Ekki hefur verið samið um að senda varðskip í slík verkefni á næstunni. »15 Hundruð drukknuðu í hrinu skipskaða í liðinni viku AFP Bátsferðum flóttafólks yfir Miðjarðarhaf fjölgar með vorinu  Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bif- röst, segir fjarri lagi að of margir séu í há- skólanámi í til- teknum greinum, eins og t.d. lög- fræði. Hann seg- ir að unnið sé að þróun fagháskólanáms, þannig að háskólar geti boðið upp á starfs- tengdar námsbrautir í takt við þarfir atvinnulífsins. »6 Segir fagháskóla- nám í bígerð Vilhjálmur Egilsson  „Ég vildi skoða hvað það var sem hélt fólki í Grímsey og hvað gerði því kleift að búa þarna,“ segir blaðamaðurinn og verðandi mann- fræðingurinn Ómar Valdimarsson. Í meistaraprófsritgerð sinni í mannfræði fjallar hann um sam- félagið í Grímsey þar sem sam- félagið í eynni er skoðað frá sjónar- hóli mannfræðinnar. Í niðurstöðum sínum kemst Ómar meðal annars að því að hugmyndin um sameiginlegan félagsauð sé lím- ið í samfélaginu. Framtíð byggðar í eynni er í mik- illi hættu að hans mati, en þar spil- ar nútíminn, fábreytt atvinnulíf og mannlegur breyskleiki stórt hlut- verk. Tíminn einn mun þó leiða framhaldið í ljós. »11 Nútíminn, fábreytt atvinnulíf og mann- legur breyskleiki ógna byggð í Grímsey Ljósmynd/Friðþjófur Helgason. Grímsey Margt ógnar þar búsetu.  IATA, alþjóðasamtök áætlunar- flugfélaga, hafa haft samband við flugleiðsögusvið Isavia og lýst áhyggjum sínum af afleiðingum yf- irvinnubanns flugumferðarstjóra hér á landi. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir viðræðurnar í hnút. „Það er ekkert sem kallar á einhverjar sérleiðréttingar fyrir þennan há- tekjuhóp,“ segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. Katrín Ólafsdóttir, doktor í vinnumarkaðshagfræði og lektor við Háskólann í Reykjavík, sagði að yfirvinnubannið hefði líklega ekki jafn mikil áhrif annars staðar. »4 Alþjóðasamtök flugfélaga lýsa áhyggjum af yfirvinnubanni flugumferðarstjóra Morgunblaðið/RAX Flugumferðarstjórn Viðræður eru í hnút.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.