Morgunblaðið - 30.05.2016, Side 2

Morgunblaðið - 30.05.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016 SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Fögnum fjölbreytileika var yfirskrift Fjölmenningardags í Reykjavík sem haldinn var í Hörpu sl. laugardag. Þar var meðal annars efnt til fjölþjóðlegs markaðar þar sem kynnt var handverk, hönnun, matur og menning frá yfir 60 sýnendum. Fjölbreytt skemmtiatriði voru í öðr- um sal og var líflegt í Hörpu. Fjölmenningardag- urinn hófst með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju þar sem fólk frá mörgum löndum tók þátt. Fjölbreytileikanum fagnað í Hörpu mbl.is/Freyja Gylfa Fjölmenningardagur haldinn í Reykjavík Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Við fylgjumst með hvað Alþjóða- heilbrigðisstofnunin er að gera sem og Alþjóðaólympíunefndin og fram- kvæmdanefnd leikanna,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, spurð um við- brögð ÍSÍ við opnu bréf sem 150 læknar, vísindamenn og fræðimenn um heim allan sendu frá sér um helgina. Hópurinn krefst þess að Ólympíuleikunum í Ríó de Janeiro í ágúst verði aflýst vegna hættunnar sem stafar af zika-veirunni. Alþjóða- heilbrigðisstofnunin (WHO) hefur hins vegar gert lítið úr áhyggjum af hættunni sem stafar af zika-veirunni og tekur ekki undir áskorun hópsins. Í yfirlýsingu frá stofnuninni segir að engin ástæða sé til þess að fresta leikunum. Bruce Aylward, yfirmað- ur hjá WHO, segir að þegar hafi ver- ið gert áhættumat. Stofnunin gæti hins vegar vissulega staðið sig betur við að útskýra málið fyrir almenn- ingi. Undirbúningur íslenska hópsins fyrir Ólympíuleikana stendur nú sem hæst og segir Líney að skipu- leggjendur og fararstjórar hópsins muni fylgjast grannt með gangi mála fram að leikunum. Hún telur þó ólík- legt að íslensku keppendurnir muni hætta við þátttöku á leikunum. „Við munum funda með ólympíuförunum og uppfræða þá, en endanleg ákvörð- un liggur hjá þeim. Við munum ekki neyða neinn til að fara á leikana.“ Landlæknir sammála WHO Embætti landlæknis gaf nýverið út leiðbeiningar um smitvarnir vegna Ólympíuleikanna, sem byggj- ast á áhættumati Sóttvarnastofn- unar Evrópusambandsins. Í leið- beiningunum er ferðamönnum ráðlagt að gæta að grundvall- arsmitgát. Mesta hættan stafi af iðrasýkingum og því er mælt með að verjast moskítóflugum og öðrum skordýrum. „Þetta bréf breytir ekki neinu hjá okkur og við erum sammála stefnu WHO í þessum málum. Við höfum ekkert breytt leiðbeiningunum og þær gilda,“ segir Guðrún Sigmunds- dóttir, yfirlæknir sóttvarna hjá Embætti landlæknis. Í bréfinu kemur meðal annars fram að óttast sé að fólk beri veiruna til síns heimalands og segir Guðrún að Ísland sé í sérstöðu í þessum efn- um þar sem hér séu ekki moskító- flugur. „Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur af því að veiran verði land- læg.“ Zika-veiran hefur nú greinst í tæplega 60 löndum. Helstu einkenni sýkingarinnar eru hiti, útbrot, táru- bólga og vöðvaverkir. Læknar í Brasilíu telja nú að zika-veiran sé enn hættulegri en talið var í fyrstu. Tengsl gætu verið á milli sjúkdóms- ins og galla í taugakerfi og það gæti haft áhrif á börn allt að fimmtungs þungaðra kvenna. Bóluefni gegn veirunni er enn ekki komið fram. Ólympíufarar hlusta á WHO  Íslenski ólympíuhópurinn stefnir ótrauður til Ríó  150 vísinda- og fræði- menn vilja að leikunum verði aflýst  Embætti landlæknis sammála stefnu WHO Líney Rut Halldórsdóttir Guðrún Sigmundsdóttir Skúli Halldórsson sh@mbl.is Vegagerðin hefur útbúið áætlanir um uppsetningu salerna við áning- arstaði sína meðfram þjóðvegum landsins. Þetta segir Hreinn Har- aldsson vegamálastjóri í samtali við mbl.is en að hans sögn er farið að gæta mjög slæmrar umgengni á mörgum áningarstaðanna. „Fólk gerir þarfir sínar úti í kanti eða í kringum þessa staði,“ segir Hreinn og bætir við að sums staðar sé svo illa komið að líklega þurfi að taka aðstöðuna niður. „Landeigendur og aðrir segja að þetta gangi ekki lengur, þessi sóða- skapur.“ Varð þetta til þess að Vegagerðin hóf að skoða hvort hægt væri að bregðast við, þó ekki væri nema bara til bráðabirgða. „Við vorum að hugsa um salerni líkt og notuð eru á útihátíðum og öðru slíku á meðan verið væri að koma upp varanlegri aðstöðu.“ Áætlanir Vegagerðarinnar gera ráð fyrir uppsetningu salerna á um 50-60 áningarstöðum yfir tveggja ára tímabil. Þá er gert ráð fyrir að fyrri hluti framkvæmdanna, þ.e. uppsetning um 25-30 salerna og rekstur þeirra í eitt sumar, muni kosta um 80 milljónir króna. Áætlanirnar voru kynntar fyrir Stjórnstöð ferðamála og fleiri að- ilum í ferðaþjónustu fyrr í mán- uðinum. „Ekkert framhald hefur þó orðið á því og við höfum heldur ekki skyldur né heimildir til að reka sal- ernisaðstöðu. Vegagerðin á ekkert að sjá um salernismál þjóðarinnar, og ekki ferðamanna heldur,“ segir Hreinn og bætir við að Vegagerðin hafi heldur ekki fjármagn til að- gerðanna. „Við notum það frekar til að fylla í holur á vegunum. Við lýstum þó vilja okkar til að koma að fram- kvæmdinni ef menn teldu að gagn væri að því. Við eigum þessar áætl- anir og getum dregið þær fram ef einhver vill fara í þetta verkefni.“ Vilja setja upp 60 salerni Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Á ferð Sumir landeigendur vilja að áningarstaðir verði lagðir niður.  Vegagerðin bregst við slæmri umgengni á áningarstöðum Tæplega fjórar vikur eru nú til forsetakosninga og hefur utan- kjörfundar- atkvæðagreiðsla nú staðið yfir í fjórar vikur. Að sögn lögfræðings hjá sýslumann- inum í Reykjavík er aðsóknin á skrifstofu sýslumanns farin að aukast, en þar stendur utan- kjörfundaratkvæðagreiðslan fram til 9. júní. 27 greiddu þar atkvæði á laugardag og fleiri í gær. Að sögn lögfræðings hjá sýslumanni má bú- ast við að þeim fjölgi jafnt og þétt sem greiða atkvæði utan kjörfundar á næstu vikum. Ekki verður kosið í Laugardals- höll líkt og tíðkast hefur, en utan- kjörfundaratkvæðagreiðsla verður í Perlunni frá 9. júní. Á kjördaginn sjálfan, 25. júní, verður heldur ekki kosið í Laugardalshöll, þar sem út- skrift frá Háskóla Íslands fer þar fram sama dag. Þess í stað verða kjörstaðir í nálægum skólum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á hjúkrunarheimilum verður dagana 6.-15. júní, á sjúkrahúsum 23. og 24. júní í umdæmi sýslumannsins á höf- uðborgarsvæðinu. Nánari upplýs- ingar um dagsetningar og staðsetn- ingar má nálgast á heimasíðu sýslumannsins á höfuðborgarsvæð- inu. erla@mbl.is Nær 1.000 hafa kosið forseta Perlan í Öskjuhlíð.  Margir velja að kjósa utan kjörfundar Formannskjör Sam- fylkingarinnar hafið Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýj- an formann Samfylkingarinnar hófst á laugardag. „Kosningin er að langmestu leyti rafræn en þeir sem treysta sér ekki til að kjósa rafrænt geta haft samband við okkur og fengið pappírsseðil eða komið á skrifstofu Samfylkingarinnar og fengið aðstoð við að kjósa,“ segir Kristján Guy Burgess, fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Alls eru um 17.000 manns á kjör- skrá og í gærkvöldi höfðu 865 manns greitt atkvæði. „Það er erf- itt að spá hversu margir taka þátt, en þetta hefur farið ágætlega af stað,“ segir Kristján. Kosningunni lýkur á hádegi á föstudag, 3. júní, og verða úrslitin kynnt seinna um kvöldið á aukalandsfundi flokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.