Morgunblaðið - 30.05.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016
KRÍT
6. júní í 10 nætur
Netverð á mann frá kr. 139.095 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá kr. 197.295 m.v. 2 í íbúð.
Porto Platanias
Village
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
139.095
m/allt innifalið
Allt að
30.000 kr.
afsláttur á mann
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Aðeins fjórir dagar eru eftir af störf-
um þingsins. Gert er ráð fyrir reglu-
bundnum þingfundum fram á
fimmtudag, þar til sumarleyfi hefst.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, segir snemmbúin
þinglok vera vegna þess að menn vilji
gefa forsetakosningunum rými.
„Svo kemur þingið saman aftur 15.
ágúst, þar sem þingkosningar eru
áformaðar í haust. Við það er endur-
skoðuð starfsáætlun miðuð,“ segir
Helgi í samtali við Morgunblaðið.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks,
segist reikna með að lög um menntun
lögreglumanna verði afgreidd í vik-
unni.
„Það er væntanlega mál sem klára
þarf fyrir haustið svo lögregluskólinn
geti haldið störfum áfram,“ segir
Ragnheiður.
„Þá held ég að við hljótum að taka
út, með einhverjum hætti, mál úr um-
hverfisnefndinni. Þar er meðal ann-
ars inni samgönguáætlun en ég þori
þó ekki að fullyrða hversu langt hún
er komin. Mér sýnist sem við klárum
ekki búvörusamninginn né tollasamn-
inginn við Evr-
ópusambandið,
sem hangir nokk-
urn veginn á sömu
spýtunni. Ég held
að þeir þurfi meiri
umræðu.“
Svandís Svav-
arsdóttir, þing-
flokksformaður
Vinstri grænna,
segist búast við
átakalítilli viku á þinginu. Spurð hvort
hún eigi von á kosningum í október
segir Svandís:
„Það er það sem forsætisráðherra
og fjármálaráðherra hafa sagt. Sjálf-
stæðisflokkur er farinn að undirbúa
prófkjör og Framsókn getur þá varla
verið ein í ríkisstjórn. Ég held að allir
séu að búa sig undir kosningar í haust,
fyrir utan einstaka framsóknarmenn.“
Vilja afgreiða ýmis mál áður
en þingið fer í sumarleyfi
Snemmbúið sumarleyfi í ár vegna forsetakosninganna
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Helgi
Bernódusson
Svandís
Svavarsdóttir
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Alþjóðasamtök áætlunarflugfélaga,
IATA, lýsa yfir áhyggjum sínum af
afleiðingum yfirvinnubanns flug-
umferðarstjóra hér á landi. Þetta
segir Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia. „Ísland hefur skuld-
bundið sig til að veita örugga, hag-
kvæma og óslitna þjónustu,“ segir
Guðni í samtali við Morgunblaðið.
Til að gegna öryggiskröfunni þurfi
að minnka umferðina þegar ekki
tekst að manna vaktirnar, líkt og
raunin hefur stundum verið undan-
farnar vikur.
„Þá hefur þurft að senda hluta um-
ferðarinnar um íslenska flugstjórnar-
svæðið, þann hluta sem er syðst í
svæðinu, suður fyrir svæðið og inn
fyrir það skoska. Flugleiðin er þá
ekki lengur jafnhagkvæm.“
Á meðan yfirvinnubannið hefur
staðið yfir hafa af og til komið upp
veikindi í röðum
flugumferðar-
stjóra. Veldur
slíkt meiri vand-
ræðum en ella,
þar sem ekki er
hægt að kalla
aðra starfsmenn
til vinnu vegna
bannsins.
Yfirvinnubann
og veikindi flug-
umferðarstjóra hafa haft áhrif á 3.000
ferðir flugvéla á milli Evrópu og Am-
eríku. Vegna aukinnar eldsneytis-
brennslu hefur þetta kostað alþjóðleg
flugfélög sem nemur á annan milljarð
króna, líkt og fram kom í Morgun-
blaðinu á laugardag.
Engin veikindi boðuð
Þær upplýsingar fengust hjá
Isavia seint í gærkvöldi að engin
veikindi hefðu verið boðuð frá flug-
umferðarstjórum fyrir komandi vakt-
ir. Var þannig útlit fyrir að ekki
myndi reyna aftur á bannið um sinn.
Katrín Ólafsdóttir, doktor í vinnu-
markaðshagfræði og lektor við Há-
skólann í Reykjavík, segir að yfir-
vinnubann myndi líklega ekki hafa
jafnmikil áhrif annars staðar.
„Á fáum stöðum í heiminum er
treyst jafnmikið á yfirvinnu og hér á
landi. Við keyrum svo mikið á yfir-
vinnunni,“ segir Katrín í samtali við
Morgunblaðið.
Hún segist flokka aðgerðir flugum-
sem fyrst. Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að viðræðurnar séu í
hnút. „Það verður að koma í ljós á
þriðjudag hvort flugumferðarstjórar
spila út einhverju nýju af sinni hálfu.
Þeir hafa hingað til hafnað öllum
þeim tilboðum sem frá okkur hafa
komið,“ segir Þorsteinn.
„Verður ekki lengra gengið“
„Við höfum gert þeim alveg ljóst að
út frá þeim kostnaðarrramma sem
SALEK-samkomulagið setur okkur,
þá verður ekki lengra gengið í þeim
efnum,“ segir hann og bætir við að
kröfur flugumferðarstjóra séu hins
vegar umtalsvert meiri en rúmast
geti innan þess ramma.
„Við höfum sagt að launaþróun
þeirra sé mjög áþekk því sem verið
hefur hjá öðrum hópum á vinnumark-
aði. Það er ekkert sem kallar á ein-
hverjar sértækar leiðréttingar fyrir
þennan hátekjuhóp,“ segir Þorsteinn.
ferðarstjóra í hóp svokallaðra work-
to-rule-aðgerða, þar sem starfsmenn
fara eftir ítrustu reglum og hægja
þannig á starfseminni án þess þó að
brjóta nokkur lög.
Samantekin ráð væru ólögleg
„Ef veikindin væru í raun saman-
tekin ráð manna til að nota í kjara-
deilunni, þá væri það náttúrulega
ólögleg aðgerð,“ segir Katrín en tek-
ur fram að ekkert sé hægt að fullyrða
um veikindin í þessu tilfelli.
„En þegar starfsmenn eru yfirleitt
með þetta sjónarmið, work-to-rule, í
huga, þá geta þeir túlkað veikindi sín
öðruvísi. Línan er þá hugsanlega
dregin annars staðar. Það sem flug-
umferðarstjórar eru að gera virðist
alveg vera innan þess sem þeim er
heimilt að gera. Það er ekki að sjá
annað,“ segir Katrín.
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
fundar í kjaradeilunni á morgun og
vonast Isavia til að samningar náist
Flugfélög lýsa áhyggjum sínum
Bannið hefði óvíða jafnmikil áhrif að sögn doktors í vinnumarkaðshagfræði Á fáum stöðum í heim-
inum treyst jafnmikið á yfirvinnu starfsfólks Framkvæmdastjóri SA segir kjaraviðræðurnar í hnút
Katrín
Ólafsdóttir
Þorsteinn
Víglundsson
Guðni
Sigurðsson
Hann virtist ansi djúpt hugsi, mávurinn sem varð á vegi
ljósmyndara Morgunblaðsins um helgina. Félagar hans
virtust þó nokkuð uppteknir í annars konar erinda-
gjörðum. Ef veðrið er það sem hann var að velta fyrir
sér getur hann glaðst, því spár gera ráð fyrir 20 stiga
hita víða um land og léttskýjuðu er líður á vikuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbygginn mávur við Tjörnina
Í þungum þönkum við Reykjavíkurtjörn
Heimildarmyndin Andlit norðursins,
sem fjallar um Ragnar Axelsson
ljósmyndara og feril hans, fékk að-
alverðlaunin á kvikmyndahátíð í
Úkraínu, Poltava film festival. „Ég
fékk skeyti í morgun um að það
stæði til að veita henni verðlaun og
svo létu þeir vita að við hefðum feng-
ið aðalverðlaunin,“ sagði Margrét
Jónasdóttir, framleiðandi mynd-
arinnar og handritshöfundur. Hún
flutti þakkarávarp á verðlauna-
athöfninni í gegnum Skype.
Kvikmyndahátíðin er ný íslensk-
úkraínsk hátíð í borginni Poltava og
stendur Einar Þór Gunnlaugsson
kvikmyndagerðarmaður að henni
ásamt Úkraínumönnum. Sýndar
voru einar sjö gamlar og nýjar ís-
lenskar kvikmyndir og nokkrar
úkraínskar. „Mér er sagt að myndin
okkar hafi slegið í gegn,“ segir Mar-
grét.
Andlit norðursins, sem heitir á
ensku Last Days of the Arctic, var
frumsýnd á árinu 2011. Saga Film
framleiddi myndina og Magnús Við-
ar Sigurðsson leikstýrði. Myndin var
gerð í samvinnu við sjónvarps-
stöðvar í nágrannalöndunum og hef-
ur verið sýnd víða um heim. Margrét
segir að hún hafi farið á margar
kvikmyndahátíðir um allan heim og
sé enn í dreifingu. „Það skemmtileg-
ast við þetta er að Ragnar hefur
fengið mikil viðbrögð þegar myndin
hefur verið sýnd. Margir snúa sér
beint til hans,“ segir Margrét.
Texti myndarinnar var þýddur á
rússnesku fyrir tveimur árum og
stendur til að sýna hana í Rússlandi í
haust. helgi@mbl.is
Andlit norðursins
fékk aðalverðlaunin
Sló í gegn á kvikmyndahátíð í Úkraínu
Verðlaun Andlit norðursins fékk
stærsta verðlaunagripinn.