Morgunblaðið - 30.05.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.05.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við byrjuðum smátt og tók-um engin lán, enda fórumvið af stað í kreppunni. Viðbyrjuðum með fimmtán hross, lélega hnakka og samtíninga. Nú eru hestarnir orðnir sextíu og við erum með starfsfólk allt árið. Þetta hefur vaxið jafnt og þétt og við erum að sjóast,“ segir Sólmundur Sigurðs- son, sem ásamt konu sinni Sjöfn Sveinsdóttur, á og rekur hestaleig- una Sólhesta í Borgargerði undir Ingólfsfjalli. „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í þegar við byrjuð- um, en Sjöfn grunaði að við yrðum ansi bundin, sem varð raunin,“ segir Sólmundur og Sjöfn bætir við: „Þegar maður á fyrirtæki sjálf- ur nennir maður þessu, þá leggur maður ýmislegt á sig í vinnu. Þó að þetta sé mikil vinna er þetta líka gaman. Núna þykjumst við kunna þetta og allt er orðið miklu léttara. Ég var mjög neikvæð fyrsta árið, fannst ég vera innilokuð og múl- bundin hér heima, en þetta hefur allt náð góðu jafnvægi núna. Ég fer í tvær hestaferðir yfir sumarið, eina kvennaferð með vinkonum mínum og aðra með útreiðarhópi sem við hjónin erum bæði í, en Sólmundur hefur ekki komist með í þær undan- farið. Við bætum það upp á haustin og förum alltaf til útlanda í nóvember, því þá er sumartraffíkin búin og vetrarumferðin ekki farin af stað. En hún kemur á fullum þunga í des- ember, enda er það góður mánuður, þá kemur svo mikið af norðurljósa- fólki til landsins. Bjóst við byssu við hnakkann á sér Sólmundur í Sólhestum fagnar sextugsafmæli á fimmtudaginn og ætlar að bjóða gest- um sínum upp á lambalæri beint frá eigin býli. Hann hefur rekið hestaleiguna Sól- hesta undir Ingólfsfjalli undanfarin ár ásamt konu sinni og lent í ýmsu, m.a. bjargað lífi sínu í viðureign við brjálaða Rússa með því að bjóða þeim að keyra fornbíl sinn. Gráir Sólmundur og hesturinn Steinríkur sem hefur staðið sig vel í hesta- leigunni, en hann kemur úr Landeyjum, er mjúkur og fer vel með fólk. Gleði Skælbrosandi ferðamenn koma heim í hlað úr fjöruferð á hestbaki. Að hekla er skemmtileg handavinna sem hefur heldur betur orðið vinsælt undanfarin ár. Nú þegar góða veðrið og sumarið er að koma þá er um að gera að grípa í að hekla úti við og á flakki um landið í sumarfríinu. Í tilkynningu frá Heimilisiðnaðar- skólanum kemur fram að vinsælt sé að hekla tuskur og þvottastykki „enda er þar á ferð verkefni þar sem prófa má ólík munstur og liti. Þó að- gangur að uppskriftum á netinu sé greiður jafnast fátt á við að læra nýtt mynstur með persónulegri aðstoð í góðum félagsskap.“ Einnig kemur fram að Heimilisiðnaðarskólinn við Nethyl í Reykjavík bjóði upp á örnám- skeið í hekli þar sem nemendur koma eina kvöldstund og læra ákveðna að- ferð. Tvö mismunandi örnámskeið eru í boði á næstunni. Þriðjudagana 31. maí eða 7. júní er námskeiðið Tuska eða teppi? þar sem heklað er með sínum litnum í hvorri umferð, en miðvikudagana 1. júní eða 8. júní verður námskeiðið Fyrst á réttunni svo á röngunni, þar sem kennt er teppaheklmunstur. Vefsíðan www.heimilisidnadur.is Morgunblaðið/Kristinn Heklsamvera Þessar stúlkur hekluðu í hússtjórnarskóla fyrir nokkrum árum. Boðið upp á örnámskeið í hekli Að ásaka einhvern er eitthvaðsem allir gera. Þegar eitthvaðslæmt gerist þá viljum við vita hver ber ábyrgð á því. Þegar við hins vegar byrjum að benda á maka okkar og ásaka hann þá hefur það slæm áhrif á sambandið. Þess vegna er mikilvægt að átta sig á því af hverju við viljum finna einhvern sökudólg. Með því að finna einhvern sem ber ábyrgð á neikvæðum atburð- um þá erum við að reyna að hafa stjórn á aðstæðum. Þegar við höfum stjórn á aðstæðum þá líður okkur bet- ur. Okkur líður betur þegar við get- um losað um reiði með því að kenna öðrum um, en á sama tíma erum við að skemma sambandið við þann ein- stakling. Þegar við ásökum aðra þá erum við í vörn. Þegar maki gagnrýnir okkur þá eru yfirleitt okkar fyrstu viðbrögð að verjast. Niðurstöður rannsókna sýna hins vegar að það að fara í vörn leiðir yfirleitt ekki til þess að vandamálið leysist, heldur þvert á móti. Þegar við förum í vörn verður það ekki til þess að makinn sem er að gagnrýna hætti því og biðjist afsökunar, heldur leiðir það frekar til þess að ágreiningurinn verður meiri. Þegar við verjumst þá erum við í raun að segja að við séum ekki vandamálið heldur sé það maki okkar. Með því að fara í vörn missum við af tækifærum sem við annars gætum nýtt til þess að sýna maka okkar væntumþykju og skilning. Maki okkar er að kvarta yfir ein- hverju og í stað þess að reyna að skilja af hverju, þá erum við of upp- tekin við það að finna hver á sökina. Í vörn erum við eingöngu að hlusta eft- ir því hver er sökudólgurinn í málinu og við heyrum ekki af hverju maki okkar er ósáttur. Í stað þess að fara í vörn er mikilvægt að taka ábyrgð. Við tökum ábyrgð þegar við segjumst vera tilbúin til að hjálpast að við að finna lausn á vandanum. Með því er- um við líka að segja að við séum tilbú- in til þess að breyta einhverju hjá okkur til að sambandið gangi betur. Ef við förum hins vegar í vörn þá er- um við að segja „nei, ég vil ekki breyta mér, það er allt í lagi hjá mér, það ert þú sem þarft að breytast“. Næst þegar þú færð gagnrýni prófaðu að fara ekki í vörn heldur hlusta á hvað það er sem viðkomandi er að biðja um. Það getur verið gott að æfa sig að taka ábyrgð jafnvel þótt okkur finnist að vandinn sé ekki af okkar völdum. Þá er gott að íhuga hvort sé betra að styrkja sambandið eða að hafa alltaf rétt fyrir sér. Ábyrgð frekar en ásakanir Ljósmynd/Getty Images Hugs Hvort er betra að styrkja sambandið eða að hafa alltaf rétt fyrir sér? Heilsupistill Ólöf Edda Guðjónsdóttir sálfræðingur  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafarþjón- usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. IB ehf • Fossnes 14 • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Bílar til afhendingar í maí Nánari uppl á Facebook síðu IB ehf Ford F350 Lariat Ford F350 Lariat GMC 3500 All Terrain

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.