Morgunblaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 15
Hryðjuverkamenn samtakanna
Ríkis íslams í Írak réðust öðru sinni
í mánuðinum á stuðningsmenn Real
Madrid þar sem þeir voru saman-
komnir að fylgjast með liðinu.
Tólf voru myrtir og átta særðust
í bænum Baakouba, 50 km frá Bag-
dad, þegar fjórir menn réðust inn
þar sem fólk hafði komið saman til
þess að horfa á leik liðsins gegn
Atletico Madrid á laugardag og
hófu skothríð. Talið er að hryðju-
verkamennirnir hafi komist undan.
Sams konar árás átti sér stað fyr-
ir tveimur vikum, einnig framin af
liðsmönnum Ríkis íslams, þegar
þrír menn dulbúnir sem lög-
reglumenn og vopnaðir rifflum
myrtu sextán og særðu minnst tutt-
ugu á kaffihúsi í bænum Balad
skammt frá Baakouba. bso@mbl.is
ÍRAK
Ráðist á stuðnings-
menn Real Madrid
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Óttast er að um 700 manns hafi
drukknað í síðastliðinni viku í Mið-
jarðarhafi í hrinu skipsskaða flótta-
fólks á leið til Evrópu frá N-Afríku.
Talið er að yfir 500 hafi farist með
einum bát undan strönd Líbíu á
fimmtudag. Þá er um hundrað
manns saknað eftir að bátur sökk á
miðvikudag og 45 lík hafa fundist í
flaki báts sem fórst á föstudag.
„Við munum aldrei vita nákvæma
tölu, við munum aldrei vita hvert
þetta fólk var,“ sagði Carlotta Sami,
talskona Flóttamannastofnunar SÞ,
um atburði vikunnar en tölurnar eru
margar hverjar byggðar á vitnis-
burði þeirra sem komust lífs af úr
slysunum.
Skar á togreipið
Versta slysið átti sér stað eftir að
tveir bátar og smábátur lögðu af stað
drekkhlaðnir flóttafólki frá strönd
Líbíu. Þetta er haft eftir Giovanna di
Benedetto, talskonu Barnaheilla,
Save the Children, á Sikiley.
„Fyrsti báturinn, með um 500
manns innanborðs, var að sögn að
draga þann seinni, þar sem aðrir 500
voru um borð. Sá bátur byrjaði að
sökkva og reyndu sumir að synda yf-
ir í fremri bátinn eða héldu sér í tog-
reipið sem tengdi saman bátana.“
Samkvæmt frásögnum fólks sem
lifði slysið af skar að svo komnu hinn
súdanski skipstjóri fremri bátsins á
togreipið sem slóst til baka af slíku
afli að það tók höfuðið af konu sem
varð fyrir því. Seinni báturinn sökk
eftir þetta á skömmum tíma og dró
niður með sér flesta þá sem troðið
hafði verið inn í hann neðan þilja og
gátu enga björg sér veitt.
Þeim sem tókst að bjarga var loks
komið til hafnar í Taranto og Poz-
zallo í Ítalíu. Þar voru skipstjórinn
auk þriggja annarra handteknir við
komuna, grunaðir um mansal.
Eftirlifendur segja að um 40 börn,
mörg hver ungbörn, hafi verið meðal
þeirra sem fórust með bátnum.
Paola Mazzoni, læknir hjá Læknum
án landamæra, hefur varað við að
það sé að færast í vöxt að konur láti
reyna á ferðina yfir Miðjarðarhaf
með ung börn. Samhliða því segir
hún afar títt að konur tilkynni að
þeim hafi verið nauðgað í Líbíu en
lögleysa hefur verið ríkjandi þar í
landi frá því Gaddafi fv. einræðis-
herra landsins var steypt af stóli.
Mörg börn um borð
Meðal þeirra sem bjargað var úr
skipskaðanum á fimmtudag var
barnshafandi stúlka undir lögaldri
sem sagðist hafa verið nauðgað en
varað hefur verið við auknu ofbeldi í
Líbíu.
Haft er eftir mörgu fólki sem ný-
lega hefur komið sjóleiðina til Evr-
ópu frá Líbíu, mest Erítreumenn og
Sómalar, að það hafi hikað við að
fara um borð í bátana sem smygl-
ararnir útveguðu þeim sem hafi ver-
ið bátskænur og illa farnir gamlir
bátar. Það hafi þá verið neytt um
borð af vopnuðum mönnum.
Fimmtán bátar á dag
Ítalska fréttastofan Ansi hefur
sagt meira en fimmtán báta á hverj-
um degi hafa lagt úr höfn frá Líbíu til
Ítalíu. Flóttafólk nýkomið til lands-
ins hefur enn fremur sagt ítalska
blaðinu La Republica að maður að
nafni Osama hafi tekið yfir sem n.k.
„yfirsmyglari“ og stjórni nú brott-
förum frá ströndum Líbíu.
Sá er sagður bjóða farið yfir til
Ítalíu á kostakjörum, 400 evrur, til
þess að laða að sér nýja kúnna.
Innanríkisráðherra Ítalíu hefur
hvatt til „skjóts samkomulags við
Líbíu og önnur Afríkulönd“ um
flóttamannavandann.
Ítalir vilja fá Afríkulönd til þess að
loka leiðinni til Evrópu og taka aftur
við ónefndum fjölda fólks sem komið
hafi til Evrópu í skiptum fyrir
þróunaraðstoð og fjárfestingar.
Sjö hundruð manns
talin af á einni viku
Stjórnleysi í Líbíu bitnar hart á flóttafólki á leið til Evrópu
AFP
Ítalía Herskip hífir í land lík flóttamanns sem lést ásamt 44 öðrum í skip-
skaða á Miðjarðarhafi. Um 600 var bjargað um borð í skipið.
Könnun meðal breskra hagfræðinga
hefur leitt í ljós að mikill meirihluti
þeirra telur hugsanlega útgöngu
Bretlands úr Evrópusambandinu
(Brexit) munu hafa neikvæð áhrif á
hagvöxt í Bretlandi.
Helstu ástæðurnar fyrir því eru
taldar vera útganga úr sameigin-
legum markaði ESB og aukin óvissa í
efnahagsmálum sem leiða muni til
minni fjárfestingar í Bretlandi.
Niðurstöðurnar byggja á svörum
639 hagfræðinga en hún náði til 3.818
félaga í Royal Economic Society og
Society of Business Economists sem
talin eru virt samtök hagfræðinga.
Landsframleiðsla dregst saman
Áttatíu og átta prósent svarenda
sögðu líklegast að landsframleiðsla
drægist saman á næstu árum yrði
Brexit að veruleika á meðan 4% töldu
áhrifin verða jákvæð. Þegar litið var
til 10–20 ára var hlutfall þeirra sem
töldu áhrifin á landsframleiðslu lík-
legast slæm 72% en 11% töldu áhrifin
jákvæð. Spár um áhrif Brexit á
heimilistekjur voru þessu samhljóða.
Skoðanir voru mun skiptari þegar
kom að atvinnuleysi en 45% töldu at-
vinnuleysi mundu aukast næstu 10–
20 ár eftir Brexit, 33% töldu það
óbreytt og 17% lægra.
Þá töldu 68% útgöngu úr sameigin-
legum markaði ESB gera breskt hag-
kerfi berskjaldaðra fyrir alvarlegu
áfalli. Tuttugu og tvö prósent sáu
ekki mun á þessu og 8% sögðu lík-
urnar minni. bso@mbl.is
Brexit skað-
legt bresku
hagkerfi
Breskir hagfræð-
ingar veittu álit
AFP
Bretland Kosið verður um veru
landsins í ESB þann 23. júní.
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, og Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, hvöttu í gær Evr-
ópubúa til samstöðu á athöfn þar
sem þess var minnst að hundrað ár
eru liðin frá orrustunni við Verdun.
Frakkar og Þjóðverjar börðust þar
allt frá febrúar fram til desember
árið 1916. Um 300.000 manns létu
lífið í bardögunum.
AFP
Evrópa hvött til samstöðu
Hundrað ár frá orrustunni við Verdun
Sérsveitir íraska hersins hafa kom-
ið sér fyrir við borgina Fallujah,
sem hefur verið undir stjórn Ríkis
íslams síðan 2014. Borgin er ásamt
Mosul önnur af þeim stóru borgum
sem samtökin ráða enn í landinu.
Þess er vænst á næstu dögum að
herinn láti til skarar skríða í borg-
inni en síðustu viku hefur hann náð
undir sig bæjum í nágrenni borg-
arinnar í undirbúningi fyrir áhlaup
á borgina sjálfa.
Samtímis standa yfir bardagar
annars staðar á yfirráðasvæði Ríkis
íslams en þúsundir flúðu sókn þess í
norðurhluta Sýrlands gegn einu
bæjunum í austurhluta Aleppo-
héraðs sem hófsamir uppreisn-
armenn ráða enn. Þá hafa Kúrdar
með aðstoð Bandaríkjamanna hafið
sókn austan við Mosul. bso@mbl.is
ÍRAK OG SÝRLAND
Reiðubúnir til inn-
rásar í Fallujah
AFP
Írak Hermenn í nágrenni Fallujah.