Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 2

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Morgunblaðið/Golli Hvað gerir þú til að verðlauna þig? „Geri mér dagamun og fer út að borða.“ Hvað er það seinasta sem þú keyptir og elskaðir? „Rúmföt frá Scintilla í Skipholti, þau eru alveg frábær.“ Hlutur sem er þér ómissandi? „Ég verð því miður að nefna símann minn.“ Uppáhaldsborg til að versla í? „Það jafnast ekkert á við að gera góð kaup í Reykjavík.“ Seinasti veitingastaður sem vakti hrifningu þína? „Steikhúsið á Tryggvagötu er falinn fjársjóður.“ Hver er besti minjagripur sem þú hefur tekið með þér heim úr ferðalagi? „Minjagripir verða bara skrýtnir þegar maður kemur heim, minningarnar eru það sem gildir.“ Uppáhaldsskart eða aukahlutur? „Hringur frá áttunda áratugnum sem mamma gaf mér.“ Snyrtivara sem þú gætir ekki verið án? „Chanel-augn- blýantar eru nýjasta uppgötvunin.“ Uppáhalds- smáforrit? „Mér finnst gaman að fíflast á In- stagram, þar á ég svo fáa vini.“ Hvað er á óskalist- anum þínum þessa stundina? „Apple-tölva eða eitthvað fallegt úr Skaparanum. Dúsa er ótrúlega flinkur fatahönnuður.“ Fagurkerinn Ragna Árnadóttir Ragna er nýbúin að uppgötva augnblýant frá Chanel. Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrverandi ráðherra, hefur smekk fyrir vandaðri hönnun. Henni finnst þó skipta mestu máli að njóta augnabliksins og gera eitthvað skemmtilegt. Marta María | martamaria@mbl.is Ragna kann að meta Steikhúsið. Rúmföt frá Scintilla. Augnblýantur frá Chanel. Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Ófeigur Lýðsson É g held að fáar konur gleymi því augnabliki þegar þær áttuðu sig á því að óveruleg fitusöfnun væri að eiga sér stað undir geirvört- unum. Við munum flestar hvað það var óþægilegt þegar þessi skyndilegi vöxtur fór að gera vart við sig. Svo hossaðist þetta til og frá í leikfimi og olli óþægindum í leik og starfi. Í stað þess að sperra sig og ýta brjóstkassanum út reyndi sú sem hér skrif- ar að fela þessa ógnvekjandi þróun með því að varpa öxlunum fram í þeirri von að minna bæri á brjóstunum, sem litu út fyrir að hafa sofið í lyftidufti. Á einhverjum tímapunkti var þó ekki hægt að fela þetta lengur enda voru brjóstin orðin eins og tveir fullþroska greipávextir þegar best lét. Á þessum árum var sú sem hér skrifar ekki ánægð með þessa þróun og óskaði þess heitast af öllu að hægt væri að jafna þess tvo greipávexti við jörðu. Svo liðu árin og á einhverjum tímapunkti neyddist ég til að sætta mig við þessa guðsgjöf. Skál fyrir stærð D. Amen. Á dögunum fór ég með sex ára son minn í sund. Í sturtunni var ég orðin sveitt við að vakúmpakka 34D inn í aðhaldsbolinn frá Speedo þegar lítil stúlka byrjaði að kalla til okkar. Ég áttaði mig ekki strax á því að upphrópin beindust að okkur fyrr en hún var búin að kalla nokkrum sinnum: „Er hún að fá brjóst?“ Ég er ekki vön að þurfa að verja hann son minn, sem er með munninn fyrir neðan nefið og sterklega byggður. Þegar ég áttaði mig á því að hann stóð niðurlútur undir sturtunni og svaraði ekki fyrir sig tók ég málin í mínar hendur og tjáði stúlkunni að hann væri ekki að fá brjóst. Þá fór annar spurningavagn af stað um það hvað hann væri þá eiginlega að gera í kvennaklefanum. Ég sagði stúlkunni að hann væri með mér í konuklefanum vegna þess að hann sæi illa og þætti betra að ég hjálpaði honum í sturtunni. Þá skyndilega rankaði móðir stúlkunnar við sér og afsakaði sig á því að dóttir hennar væri bara sex ára. Ég verð að játa að ég horfði bara á konuna án þess að koma upp orði. Ég er nefnilega ekki vön því að láta benda á mig í sturtunni og hef aldrei upplifað að barnið mitt verði fyrir aðkasti vegna eigin holdafars. Eftir á að hyggja var kannski bara gott að ég kom ekki upp orði því að orðin hefðu líklega ekki orðið mér og syni mínum til neins sóma. Vonandi vakti þessi hegðun sex ára stúlkunnar móður og dóttur til umhugsunar. Nú ef ekki, þá má benda á að það hefur enginn áhuga á spurningunni Ertu að fá brjóst? Hvorki sex ára strákur né táningsstúlkur. Getty Images/iStockphoto Ertu að fá brjóst? Marta María Jónasdóttir „Það er frekar stutt síðan ég uppgötvaði BB-krem. Ég hef aldrei notað meik af því mér finnst það alltaf svo áberandi og mér finnst ég virka miklu eldri þegar það sest í allar lín- ur. BB-krem hins vegar sést ekki neitt, aðlagast húðinni og áferðin verður mjög falleg ásamt því að það er fullt af raka sem hlýtur að vera gott. Töfralausn yfir veturinn þegar maður er allur hvítur og veðurbarinn. Líka á sumrin af því það er með sólarvörn. Ég nota BB kremið frá L’Oréal,“ segir Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni aðspurð út í sína uppáhalds snyrtivöru. „Svo er það nýr maskari sem heitir Miss Hippie frá L’Oréal sem ég elska. Hann þykkir augnhárin en ég vil hafa mikinn maskara fyrir mín stuttu augnhár,“ útskýrir Sóley sem þarf ekki mikið til að hressa upp á útlitið. „Með þetta tvennt er ég bara gull- tryggð og þyrfti ekkert annað í rauninni.“ gudnyhronn@mbl.is Í snyrtibuddunni hjá Sóleyju Ljósmynd/Yvan Rodic Sóley ásamt yngri dóttur sinni, Sunnu Freysdóttur. BB-krem og maskari sem þykkir í uppáhaldi Þetta er skothelda tvennan hennar Sóleyjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.