Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Blúndan kemur sterk inn í sumar AFP Blúnda var áberandi á tískupallinum hjá Giam- battista Valli þegar vor- og sumarlína þessa árs var frumsýnd. Blúndutoppa er til dæmis flott að setja saman við rifnar gallabuxur og grófa sandala. SUMARLEGT OG SÆTT Gallabuxur, Zara, 7.995 krónur. Coral verslun, 2.994 krónur. Selected, 9.590 krónur. Toppur úr Warehouse, 11.990 krónur. Kjóll frá Hunky Dory, 44.990 krónur í Mathilda. Blúndutoppur með blómamynstri. Zara, 7.995 krónur. Vila, 3.990 krónur. Kjóll frá Valent- ino, fæst á net -a-porter.com, 287.800 krónur. Hvítar og pastellitaðar flíkur verða áberandi í sum- ar og þá sérstaklega þær sem eru skreyttar með blúndu. Úrvalið af sumarlegum blúndufatnaði er gott þessa stundina enda er um dásamlega róm- antískt og sumarlegt trend að ræða. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Sandalar frá Vaga- bond, fást í Skór.is, 12.746 krónur. Þ egar grátt hár ber á góma er Björn Berg ekki bara að tala um náttúrulegt grátt hár heldur hár sem er litað grátt. Hann segir að ljóshærðar konur séu ákaflega hrifnar af gráa hárinu og hann hafi ekki undan að lita hár kvenna grátt. Það eru þó aðallega ljóshærðar kon- ur sem sækja í gráa hárið því erfiðara er að lita brúnt hár grátt (nema aflita það fyrst). Þegar Björn er spurður út í hvernig þetta hafi byrjaði segir hann að þetta hafi byrjað á tískupöllunum og hjá stjörnunum í Hollywood en nú fylgi hinar venjulegu konur þessu eftir. „Grái liturinn hefur poppað upp við og við en varð gífurlega vinsæll í fyrra. Stelpur sækja mikið í gráa litinn í dag. Það sem er skemmtilegt við þennan lit er að hann dofnar síð- an bara niður í kaldan ljósan lit með tímanum. Til eru ótal út- færslur á gráa litnum og því hentar ekki að setja sama lit í hárið á öllum. Grái liturinn er kaldur og kannski hentar hann ekki alveg öllum en það má leika sér með hann endalaust. Ég hef verið svolítið í því að setja skugga í rótina og láta litinn dofna út í ljós-gráan,“ segir hann. Ef gráa hárið er aflitað undir er mikilvægt að nota „Color Safe“-sjampó til að við- halda litnum. „Það skiptir máli að viðhalda raka í hárinu,“ segir hann. Þegar Björn er spurður út í hársíddir segir hann að síða hárið sé dálítið heitt þessa dagana. „Það er meira um sítt hár þetta sumarið en í fyrra. Við finnum mikið fyrir því á BeautyBar, þar sem ég starfa, en það er þó alltaf viss hópur sem vill örlítið styttra hár yfir sumarið,“ segir hann. Sítt grátt hár gerir allt vitlaust Björn Berg Pálsson hárgreiðslumaður segir að grátt hár hafi sjaldan verið heitara en akkúrat núna. Marta María | martamaria@mbl.is Getty Images/iStockphoto Hér má sjá konu með sítt nátt- úrulegt grátt hár. Instagram Hér er Björn bú- inn að lita sítt hár í gráum lit. Grái liturinn kemur vel út. Björn Berg Pálsson hár- greiðslu- maður á BeautyBar. www.drhauschka.com Fylgdu okkur á Fésbókinni, Dr. Hauschka Ísland Sölustaðir: Heilsuhúsin Kringlunni og Laugavegi Gló Fákafeni Heilsutorg Blómavals Fræið Fjarðarkaupum Sölustaðir: Heilsuhúsið Gló Fákafeni Heilsutorg Blómavals Fræið Fjarðarkaupum Systrasamlagið Fjallkonan Selfossi w.drhauschk . Fylgdu okkur á Fésbókinni, Dr. Hauschka Ísland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.