Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 17
Body Slim-gelið frá Nip+fab er
frískandi kremkennt líkamsgel. Gel-
ið þéttir, styrkir og nærir húðina.
Mælt er
með að
bera kremið
á húðina
með hring-
laga nudd-
hreyfingum á
þau svæði þar
sem húðin er
slöpp. Gelið er
ríkt af koffíni
sem þéttir húð-
ina, eins inni-
heldur það Co-
coa Butter sem
hefur mýkjandi
og sefandi áhrif
á húðina. +Un-
islim-formúla
kremsins er þá
sögð minnka um-
fang mjaðma allt að 1,9 sentimetra
með reglulegri notkun yfir einn
mánuð. Til að fá sem mesta virkni er
mælt með að bera kremið á strax
eftir æfingar eða heitt bað.
Líkamsgel sem
þéttir og sléttir
Kremið hentar
vel fyrir þá sem
eru að reyna að
losna við
slappa húð.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX FREE
af öllum snyrtivörum í júní
sumarlitirnir 2016
eru komnir til okkar
GRÉTA BOÐA verður í
Snyrtivöruversluninni Glæsibæ
fimmtudag, föstudag og laugardag
og kynnir nýju sumarlitina.
Bylgja Ýr Tryggvadóttir kynntist asískum húðvörum þegar
hún bjó í Asíu og varð fljótt heilluð. Hún segir asískar kon-
ur almennt hugsa mun meira um húðina á sér heldur en
vestrænar konur. Bylgja rekur nú vefverslunina Seoul Se-
arching, þar sem suðurkóresku vörurnar frá Mizon fást.
„Mér finnst suðurkóreskar snyrtivörur vera mun þróaðri en
aðrar, og margar af þeim nýjungum sem koma á markað í
dag eru upprunnar í Suður-Kóreu,“ útskýrir Bylgja, sem
hefur alltaf haft mikinn áhuga á snyrtivörum. „Ég var búin
að vera í fæðingarorlofi í 15 mánuði og nýútskrifuð sem
förðunarfræðingur frá Reykjavík Makeup School þegar
mig langaði að koma þessum æðislegu vörum frá Mizon á
íslenskan markað.“
Bylgja segir Mizon vera eitt vandaðasta snyrtivörumerki
í Suður-Kóreu; þess vegna varð það fyrir valinu
þegar hún opnaði vefverslun. „Mizon er stofnað
af sérfræðingum sem sérhæfa sig í rannsóknum
og þróun á húðvörum. Og Seoul Searching hefur
fengið frábærar viðtökur, reksturinn hefur farið fram
úr mínum björtustu vonum,“ segir Bylgja.
Spurð hvaða Mizon-vara sé í uppáhaldi hjá henni
segir hún 8% AHA Peeling sermið vera bjargvætt
sinn. „Ég hugsa mjög vel um húðina mína, dekra við
hana kvölds og morgna, en ég er bara eins og allir og
ég fæ mínar bólur af og til og þá bjargar 8% AHA Peeling
sermið mér. Einnig nota ég Sheet Masks 2-3 í viku, það er
slökun mín á kvöldin eftir að stelpan mín er sofnuð.“
gudnyhronn@mbl.is
Spennandi vefverslun
Framúrskarandi húðvörur
Bylgja Ýr bjó í Asíu í
átta ár og þekkir því
asískar húðvörur vel.
8% AHA Peeling
sermið er „bjarg-
vættur“ Bylgju.
Bylgja mælir
með að nota
Sheet Masks
frá Mizon til að
ná slökun.
Dolce & Gabbana hefur nú sent frá
sér nýjar útgáfur af Light Blue-
ilmunum, sumarútgáfu ársins 2016.
Ilmirnir eru tveir, annars vegar er
það Love in Capri sem ætlaður er
konum og hins vegar er það Beauty
of Capri sem ætlaður er körlum.
Love in Capri ilmar meðal annars
eins og blómið geitatoppur og
mandarína en Beauty of Capri ilmar
sem sítrusávöxtur og hefur við-
arundirtón.
Eins og nafnið gefur til kynna eru
nýju Light Blue-ilmirnir innblásnir af
eyjunni Capri og fagurbláa sjónum
sem umlykur eyjuna.
Þessir sumarlegu ilmir, sem
minna helst á sólríkan dag á strönd-
inni, fást í takmörkuðu upplagi.
Dolce & Gabb-
ana með nýja
sumarilmi
Nýjasta nýtt