Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 hef mjög gaman af þessu starfi, er alltaf að gera nýja hluti og læra eitthvað nýtt. Ég myndi helst vilja vera í vöruþróun alla daga og ein- blína á umhverfisþáttinn og tækni- málin og vinna að því að koma okk- ur út úr því neyslumynstri sem tíðkast í dag á öllum sviðum, það er algjörlega úrelt,“ útskýrir Björg, sem verður þess vör að fólk velji gjarnan mikið magn fata fram yfir gæði því að það sé oft á tíðum ein- faldast ákvörðunin. „Það er komin hefð að kaupa nýtt frekar en að laga, finna, þvo eða hvað það er sem þarf að gera. En sem betur fer er ákveðin vitundarvakning hafin í sambandi við sóun og neyslu. Það er ekki lengur flott að grobba sig af því að þetta eða hitt hafi ekki kost- að meira en einhver tiltekin upp- hæð því að þýðir einfaldlega að ein- hver annar er að borga raunverulegt verð vörunnar – vinnuafl eða náttúran.“ „Reksturinn hefur alltaf verið erfiður“ Björg segir fata- hönnunarbransann að- eins vera fyrir þrjósk- asta liðið. „Reksturinn hefur alltaf verið erfiður. En ég hef alltaf átt mína frábæru viðskiptavini sem elska fötin og nota þau við alls konar tækifæri. Með árunum bæt- ast svo alltaf nýjar konur við hóp- inn og í dag eru t.d. dætur fyrstu viðskiptavinanna minna meðal minna bestu kúnna, það er ótrúlega gefandi. Markaðurinn hér heima er samt eiginlega of lítill fyrir „slow fashion“-búð eins og Spaksmanns- spjarir og það er mjög flókið að fara á erlendan markað. Til þess þarf þolinmótt fjármagn og áhættan er mikil, meðal annars þar sem krónan okkar er óútreiknanleg. Framleiðsluferlið er langt og marg- ar breytur eiga sér stað frá því að S purð hvenær hún hafi byrjað í fatahönn- unarbransanum kveðst Björg hafa byrjað ung. „Það má segja að ég hafi byrjað ferilinn fyr- ir fermingu. Þegar ég var 13 ára réði ég fyrsta starfsmanninn til mín til að sauma og breyta fötum. Það var aðallega fyrir sjálfa mig en ég fór síðan að framleiða og selja upp úr því. Sem unglingur vann ég í fataiðnaðinum á Akureyri og í fata- verslunum í Reykjavík, þar til ég fór í nám til Danmerkur,“ segir Björg, sem útskrifaðist sem fata- hönnuður árið 1987 frá Københavns Mode- og Designskole. Síðan þá hefur hún starfað sem fatahönn- uður. „Ég vann í Max og 66°N á sínum tíma við að koma útivist- arfatnaðinum á koppinn sem tísku- vöru. Á þessum tíma þótti ég ótrú- lega bjartsýn þegar ég hélt því fram að það þyrfti að gera útivist- arlínur fyrir konur. Þá dugði að eiga skíðaföt og regnjakka. Árið 1993 voru Spaksmannsspjarir svo stofnaðar og við vorum þrjár saman í byrjun. Á þeim tíma var staðan svipuð og núna, sem sagt ekki mikið um störf í þessu fagi og eina leiðin til að starfa við fagið var að stofna sitt eigið fyrirtæki. Árið 2014 keypti ég svo meðeigenda minn út úr fyrir- tækinu og seinna sama ár komu dóttir mín og eiginmaður hennar inn með mér.“ Björg og Björg í Spaksmanns- spjörum hafa fyrir löngu runnið saman í eitt Björg segir einkalífið og starfs- framann vera fyrir löngu orðið einn og sama hlutinn. „Það hefur bara ekki tekist,“ segir Björg spurð hvernig hafi gengið að púsla per- sónulega lífinu saman við vinnuna. „Ég hef ekki hugmynd um hvernig á að gera það. Björg og Björg í Spaksmannsspjörum hafa fyrir löngu runnið saman í eitt. Ég er alltaf í vinnunni en ég velti mér ekkert sérstaklega upp úr því. Ég prufur eru gerðar og þar til pening- urinn skilar sér á endanum í kass- ann frá erlendri sölu. Þess vegna er svo mikið atriði að aðal „útflutning- urinn“ fari fram hér land í formi sölu til ferðamanna.“ Björg segir miklar breytingar hafa orðið á miðbænum á und- anförnum árum, sumar góðar en aðrar ekki. „Hér er nóg af fólki alla daga vikunnar og yfirleitt mikil og góð stemming. En svokallaðar lundabúðir hafa verið að spretta upp í auknum mæli í takt við fjölg- un erlendra ferðamanna á kostnað margra lítilla sérverslana. Ég verð að viðurkenna að ég sakna fyrir- tækjanna sem hafa farið af þessum punkti sem mín verslun er á. Það hafa a.m.k. sex íslensk hönnunarfyrirtæki hætt eða flutt úr nágrenninu á undanförnum sex til sjö árum,“ segir Björg og telur upp verslanirnar ELM, STEiNUNN, Gust, Orr, Birna og ELLA. „Eft- irspurnin eftir húsnæði fyrir minja- gripaverslun er mikil og það hefur leitt af sér hækkun á leiguverði í miðbænum. Verð á húsnæði hefur að minnsta kosti tvöfaldast á síð- ustu tveimur árum. Þetta gerir það að verkum að lítil fyrirtæki eru á höttunum eftir ódýrara húsnæði en vita ekki hvert þau eiga að fara.“ Spurð út í aukin viðskipti við er- lenda ferðamenn kveðst Björg alltaf fá fleiri og fleiri erlenda við- skiptavini í verslunina sína. „En ég hefði viljað sjá enn meiri vöxt í samræmi við gífurlega fjölgun ferðamanna sem koma til landsins. „Vonandi er stutt í að við getum öll prentað fötin okkar í 3D-prenturum“ Björg Ingadóttir, fatahönnuður og einn af eigendum Spaksmannsspjara, er reynslubolti í bransanum sem hún segir aðeins vera fyrir þá allra þrjóskustu, sér- staklega þessa stundina þegar neyslumynstur fólks er eins og raun ber vitni; þegar magn virðist oft skipta mestu máli. Björg er ekki hrifin af þessu neyslu- mynstri en sér fram á vitundarvakningu hjá neytendum í nákominni framtíð. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is „Ég myndi helst vilja vera í vöruþróun alla daga og ein- blína á umhverfisþáttinn og tæknimálin og vinna að því að koma okkur út úr því neyslu- mynstri sem tíðkast í dag.“ Húðfegrun er húðmeðferðarstofa sem sérhæfir sig í heildrænum húðmeðferðum án skurðaðgerða. Húðfegrun var stofnuð árið 2000 og er stofan sú eina sinnar tegundar hér á landi. Eigendur stofunnar eru mæðgurnar Bryndís Alma Gunnarsdóttir, hagfræðingur og Díana Oddsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Meðferðir á stofunni eru eingöngu framkvæmdar af hjúkrunarfræðingum sem hafa fengið sérhæfða þjálfun á öll þau tæki og meðferðir sem stofan hefur upp á að bjóða. Meðferðir stofunnar eru Laserlyfting, Gelísprautun, Dermapen, Húðslípun, Litabreytingar í húð, Háræðaslit og Rósroði, Ör og Húðslit, Háreyðing, Tattoo- eyðing, Sveppaeyðing, Cellulite vafningur, Húðþétting og Fitueyðing. „Hjá okkur geta allir fundið meðferð við sitt hæfi þar sem stofan hefur upp á að bjóða gríðarlega fjölbreytt úrval af húðmeðferðum,“ segir Bryndís. Nýtt á markaðnum: Húðþétting og Fitueyðing Starfsfólk á Húðfegrun er stöðugt að fylgjast með öllum nýjungum sem koma á markaðinn og þeim meðferðum sem skila viðskiptavinum bestum árangri. Nýjasta viðbótin hjá okkur á Húðfegrun er gríðarleg bylting í líkams- meðferðum. Meðferðirnar eru Húðþétting og Fitueyðing. Húðþétting er meðferð sem byggir upp og þéttir slappa húð. Það sem gerir meðferðina Húðþéttingu einstaka er radio frequency (RF) tæknin sem tryggir örugga og árangursríka uppbyggingu húðarinnar djúpt í undirlagi húðarinnar með náttúrulegum hætti. Hægt að framkvæma meðferðina hvar sem er á líkama og andliti. Fitueyðing er bylting í húðmeðferðum þar sem um er að ræða nýjustu tækni á sviði náttúrulegrar fitueyðingar án skurðaðagerða. Verið er að brjóta niður fitu og eyða henni. Það sem gerir Fitueyðingu einstaka er ultrasound tæknin sem tryggir stórkostlegan langtíma árangur með náttúrulegri aðferð. Engin sársauki fylgir meðferðinni. Árangur af Fitueyðingu er sam- bærilegur við árangur af fitusogi með skurðaðgerð en það sem Fitueyðing hefur fram yfir er að einstaklingur getur farið í vinnu strax eftir meðferð. Fitueyðing er meðferð sem hentar öllum sem vilja losna við fitu sem erfitt er að losna við á ákveðnum svæðum líkamans. Algengustu svæðin sem eru til vandræða þrátt fyrir heilbrigt mataræði og heilbrigðan lífstíl eru undirhaka, upphandleggir, læri og bak/hliðarfita á bæði konum og körlum. Persónuleg og fagleg þjónusta Hjá Húðfegrun er lagt mikið upp úr persónulegri og fag- legri þjónustu. Boðið er upp á viðtalstíma þar sem við- skiptavinir geta fengið ráðleggingar hjá fagaðila. „Breyti- legt er hvað hentar hverjum og einum, við leiðbeinum öllum og finnum réttu meðferðina í samráði við hvern og einn“ segir Bryndís. Húðfegrun er staðsett í Fákafeni 11, 2. hæð. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni, www.hudfegrun.is °Unnið í samstarfi við Húðfegrun Húðfegrun ehf – Fákafen 11 – Sími 533 1320 – hudfegrun@hudfegrun.is - www.hudfegrun.is Meðferðir stofunnar: • Laserlyfting • Gelísprautun • Dermapen • Húðslípun • Litabreytingar í húð • Háræðaslit & Rósroði • Ör & húðslit • Háreyðing • Tattooeyðing • Sveppaeyðing • Cellulite vafningur • Húðþétting • Fitueyðing Húðmeðferðarstofan Húðfegrun sérhæfir sig í heildrænum húðmeðferðum án skurðaðgerða Fallegri og heilbrigðari húð með náttúrulegum húðmeðferðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.