Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 4

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Hverfisgötu 105 • storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Getur þú lýst þínum fatastíl? „Í grunninn er fatastíllinn minn frekar einfaldur og klassískur en hann hefur samt alltaf tekið einhverjum breytingum. Í augnablikinu heillast ég af mynstrum og litum.“ Fyrir hverju fellur þú yfirleitt? „Ég held að það fyrsta sem ég tek eftir við flíkur sé áferðin á efninu. Ég heillast alltaf af gæða efnum með örlítið grófri áferð eða efnum sem eru í fögrum lit- um.“ Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum þessa stundina? „Persónulega finnst mér nauðsyn að eiga föt úr góðum efnum sem endast og eins að þau séu svolítið klassísk.“ Hver er nýjasta flíkin í fataskápnum þínum? „Nýjustu flíkurnar eru blái Samuji-silkikjóllinn minn og argentínska sláin mín frá Telar sem ég féll alveg fyrir.“ Hvað vantar í fataskápinn þinn? „Ég er alltaf að skima eftir öðrum klassískum svört- um hversdagskjól. Ég hef frekar ákveðna hugmynd um hann svo ég mun bíða róleg þar til ég rekst á hann einhvern daginn.“ Er eitthvað sem þú myndir aldrei klæðast? „Ég er ekki viss. Ég held að það sé erfitt að segja al- gjörlega að ég myndi ekki klæðast einhverju ákveðnu. Tíska breytist alltaf.“ Áttu þér uppáhalds hönnuð? „Já, uppáhalds hönnuður minn er finnski hönnuður- inn Samuji sem ég kynntist fyrst þegar ég byrjaði að vinna í Mýrinni. Áherslupunktar hans skipta sömuleiðis máli fyrir mig, gæða efni og sanngirni í framleiðsluferlinu. Hann blandar einhvern veg- inn klassík við nýtískulegri hugmyndir og er alltaf með efni sem ég fell fyrir.“ Er einhver frægur hönnuður, hönnun eða trend ofmetið að þínu mati? „Nei, það held ég ekki. Við erum öll með mismun- andi álit á fatnaði. Ég held að ég geti ekki sagt að eitt sé verra en annað. Annars þykir mér leið- inlegt hve algengt það er orðið að fatnaður sé framleiddur við ósanngjörn skilyrði.“ Hvað finnst þér mest heillandi í vor- og sumartískunni? „Hvert vor og sumar fer mig að kitla í að ganga í meiri lit og léttari, meira flæðandi fatnaði.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Það er engin ein fyrirmynd sem ég miða við en ég á það til að horfa aðeins til baka þegar kemur að tísku, á fágun og klassík. Coco Chanel kemur upp í hugann. Annars finnst mér líka aðdáunarvert þegar fólk þorir að vera í sterkum litum og mynstrum. Svo held ég að innblástur komi líka frá um- hverfinu, frá vinum, nátt- úrunni og myndlist til dæmis. Hvað er á óskalistanum? „Aðallega taska frá Yvonne Koné sem kallast „bum bag“, það er svona taska sem hægt er að hafa um sig miðja eða yfir öxl- ina.“ Hvaða flík og skart er í uppáhaldi hjá þér? „Uppáhaldsflíkin mín er svarti Samuji- kjóllinn minn. Hann er æðislegur, bæði þægi- legur og fallegur. Uppáhaldsskartið mitt er í raun allt skartið sem ég á frá Orra Finn, sérstaklega gull akkeris- hálsmenið mitt sem ég er alltaf með.“ KÍKT Í FATASKÁPINN Fagurkerinn Hrönn Gunnarsdóttir er myndlistarkona og starfar í Mýrinni samhliða því að stunda nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Þegar Hrönn kaupir sér föt einblínir hún helst á að flíkurnar séu úr gæðaefnum og framleiddar við sanngjörn skilyrði. Þessa stundina eru það svo litir og falleg mynstur sem ráða ríkjum í fataskáp Hrannar. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Sanngirni í framleiðsluferlinu skiptir Hrönn máli „Mér þykir leið- inlegt hve algengt það er orðið að fatnaður sé fram- leiddur við ósanngjörn skil- yrði,“ segir Hrönn sem kýs gæði fram yfir magn. Þessi silkikjóll frá Samuji er í ákveðnu uppá- haldi hjá Hrönn þessa stundina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hrönn er hrifin af skartinu frá Orra Finn. Fallegir litir og mynstur ein- kenna klæðaburð Hrannar á sumrin. Þegar sólin hækkar á lofti fara landsmenn að rífa fram sólgler- augun. Réttu sólgleraugun þjóna ekki bara þeim tilgangi að verja augun heldur setja þau punktinn yfir i-ið þegar kemur að dress- inu. Þess vegna borgar sig að vanda valið þegar kemur að sól- gleraugnakaupum. Sólgleraugu með speglagleri hafa verið afar vin- sæl undanfarið, sér- staklega í skemmti- legum litum, að sögn Halldóru Ingimundardóttur sem heldur úti vef- versluninni Day Off. Þar fást gleraugun eftirsóttu frá Quay Australia. „Það eru einhvern veginn öll form leyfileg akkúrat núna. Það er mikið um speisuð form og risastórar umgjarðir en líka minni og fíngerðari,“ segir Halldóra. „Ef ég tek mið af eftirspurninni sem við verðum vör við er aðalliturinn núna svokallaður „rose gold“ eða „rose pink“. Þessi litur er að slá í gegn hjá okkur.“ Halldóra segir þá speglagler vera mjög vinsæl um þessar mundir. „Jú, speglaglerin eru mjög heit hjá okkur og eru núna komin í nokkrum litum, við höfum ekki undan að svara fyrirspurnum um þau,“ útskýrir Halldóra. Vinsæl- asta týpan frá Quay er einmitt með slíku speglagleri. „Eftirsóttustu gleraugun heita „My Girl“, þau gleraugu hafa verið söluhæsta varan okkar frá upphafi og þau eru auðvitað með speglagleri. Annars heita uppáhaldssólgleraugun mín Vesper, þetta eru gleraugu sem voru unnin í samstarfi við leikkonuna Shay Mitchell og þau vöktu mikla athygli víða. Þau passa vel við hvaða tilefni sem er,“ segir Halldóra. gudnyhronn@mbl.is Sólgleraugnatískan 2016 Sólgleraugu með spegla- gleri vinsæl í sumar Halldóra með sólgleraugun „My Girl“. Þessi gleraugu heita „Vesper“ og eru í uppáhaldi hjá Halldóru. Sólgleraugun „My Girl“ eru þau vinsælustu frá Quay Australia.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.