Morgunblaðið - 02.06.2016, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
Hefur dregið úr
förðun með árunum
Á
ttu þér uppáhaldssnyrtivörumerki? „Ég er náttúrulega hlut-
dræg varðandi uppáhaldssnyrtivörumerki því ég hef að mestu
notað vörur L‘Occitane fyrir líkama og andlit frá því að versl-
unin var sett á fót hér árið 2001. Ég hef hins vegar prófað hin
og þessi merki þegar kemur að förðunarvörum og hef und-
anfarin ár kannski mest notað Lancome, Kanebo og MAC.“
Hvað gerir þú til að halda húðinni við? „Ég hreinsa hana kvölds og
morgna með hreinsiolíu og andlitsvatni. Auk þess nota ég alltaf augn-
krem og serum og þar á eftir rakakrem eða næringarolíu. Þegar tími
gefst til nota ég líka andlitsskrúbb til að hreinsa burt dauðar húðfrumur
og djúphreinsimaska sem hreinsar húðholur og dregur þær saman.
Markmiðið er að gera þetta minnst einu sinni í viku en það næst því
miður ekki alltaf.“
Hvert er uppáhaldskrem þitt? „Ég er með frekar feita húð og því hef-
ur krem frá L‘Occitane sem heitir Immortelle Brightening Cream
hentað mér best. Það hefur létta hlaupáferð og gefur húðinni fallegan
ljóma.“
Hvernig farðar þú þig dags daglega? „Ég nota BB-krem og/eða CC-
krem frá L‘Occitane. Svo nota ég yfirleitt léttan augnskugga, eye-
liner-blýant, maskara og smá kinnalit. Á varirnar nota ég litaðan
varasalva sem gefur smá lit.“
En þegar þú ert að fara eitthvert spari? „Ég hef frekar dregið úr
förðun með árunum og það er ekki svo mikill munur á daglegri förðun
og spariförðun. Helst bæti ég við augnförðunina ef ég er að fara eitt-
hvert fínt og nota frekar varalit.“
Hvað tekur það þig langan tíma að jafnaði að gera þig til? „Ætli það
taki ekki svona 10-15 mínútur, þ.e. bæði að þrífa andlitið og farða það.“
Er eitthvað sem þú myndir ekki gera þegar kemur að förðun?
„Það er langt síðan ég hef notað svona þekjandi meik. Í dag vil ég
helst að förðunin sé frekar létt og náttúruleg.“
Hugsar þú öðruvísi um húðina á sumrin og veturna? „Nei, í rauninni
ekki. Á sumrin nota ég frekar bara CC-kremið og sleppi BB-kreminu.
CC-kremið gefur húðinni fallegan náttúrulegan ljóma en BB-kremið er
meira þekjandi. Þegar maður fær pínu freknur í framan
finnst mér oft nóg að hafa bara þennan fallega nátt-
úrulega ljóma sem CC-kremið gefur.“
Áttu þér eitthvert fegrunarleyndarmál? „Í fyrra
byrjaði ég að nota andlitsúða sem ég úða á andlit-
ið eftir að ég er búin að farða mig. Hann gefur
húðinni raka yfir daginn og farðinn helst líka mun
betur á. Svo virkar hann líka vel til þess að fríska
upp á andlitið seinni partinn. Sá sem er í mestu
uppáhaldi hjá mér er Pivoine Sublime
Perfecting Mist frá
L‘Occitane.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góður andlitsúði gerir
mikið fyrir húðina að
sögn Sigrúnar.
Bætir við
augnförðunina
þegar hún fer
eitthvað fínt.
CC-kremið sem
Sigrún notar gef-
ur húðinni ljóma
og ver hana fyrir
skaðlegum áhrif-
um sólarinnar.
Þetta krem hent-
ar feitri húð vel.
Sigrún Ásgeirsdóttir, rekstrarstjóri L‘Occitane, leggur mikið upp úr umhirðu húðar
og hefur dregið töluvert úr notkun snyrtivara á undanförnum árum. Hún hefur sett
sér það markmið að skrúbba húðina og hreinsa hana með maska um það bil einu
sinni í viku. Svo nærir hún hana með olíum og kremum og útkoman er ljómandi húð.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Sigrún sér um
rekstur L‘Occit-
ane en Provence-
verslunarinnar í
Kringlunni.
Snyrtivörumerkin Lan-
côme og MAC eru í
uppáhaldi hjá Sigrúnu.Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is Facebook/laxdal.is
Glæsilegur sparifatnaður
1 Clarisonic-hreinsiburstinn hættir ekki að vera málið.Hann hentar vel á andlitið en það má líka nudda aðra
líkamsparta með honum.
2 Les Sahariennes Bronzing Stonesfrá YSL er nýtt sólarpúður sem frískar
upp á húðina og gerir okkur ennþá sæt-
ari. Púðrið er þyngd-
arlaust og hefur svo nátt-
úrulega áferð að það er
eins og við séum ekki með
neitt í andlitinu.
3 Airbrush Sunfrá Sally
Hansen. Um er
að ræða brúnkukrem
sem gefur húðinni fal-
lega brúnan lit án þess
að konan verði of dökk.
Helsti kosturinn er að
brúnkukremslykt er í lág-
marki.
4 Aqua Di Gioia Sun ernýr ilmur frá Armani.
Þetta ilmvatn er hinn eini
sanni sumarboði og ilmar
af vanillu og sólblómum.
5 Force C Booster Fluid frá HelenaRubinstein er C-vítamínsprengja
fyrir húðina. Þetta gefur húðinni auk-
inn ljóma og svo verður hún mýkri og
stinnari. Hægt er að nota undir dag-
kremið eða bara eitt og sér.
6 Grandiôse Extrême-maskariframkallar hin fullkomnu augn-
hár. Maskarinn þykkir vel án þess
að augnhárin klessist.
7 Sourcils Styler-augabrúnagelsem er vatnshelt. Gelið gefur lit
og mótar augabrúnirnar. Með gel-
inu er ákaflega fínn bursti sem fyllir
vel upp í brúnirnar og gefur jafna
áferð.
7 atriði sem gera þig sætari í sumar
Clar-
isonic
bursti.
Airbrush
Sun frá
Sally Han-
sen.
Sourcils Styler
augabrúnagel.
Force C
booster
fluid frá
Helena
Rub-
instein.
Sun di Gioia
frá Giorgio
Armani.
Grandiose Ext-
reme maskari.
Les Sah-
ariennes
Bronzing
Stones frá
YSL.