Morgunblaðið - 02.06.2016, Side 10

Morgunblaðið - 02.06.2016, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 H vað gerir þú til að líta betur út? „Jah, ég skammast mín nú fyrir hvað ég geri lítið til að bæta útlitið. Fyrir mér er góður svefn lífsnauðsynlegur sem og regluleg hreyfing. Ég veit að það hljómar klisjukennt en þannig er það nú bara. Ég er komin með þessar fínu broshrukkur í kringum augun og varirnar sem endurspegla allar þær góðu stundir sem ég hef átt til þessa.“ Hvernig hugsar þú um húðina? „Ég þríf alltaf af mér farða á kvöldin, ef ég er með hann á annað borð. Ég er mikil útivistarmanneskja og gæti þess alltaf að verja húðina í andlitinu fyrir sólinni, hún verður leið- inlega þurr og ójöfn ef ég gleymi mér í sólinni. Ég reyni að fikta sem minnst í andlitinu á mér og hef lítið verið hrifin af kornamöskum, núna er ég aftur á móti farin að nota heima- tilbúin kornamaska reglulega en hann samanstendur af kókos- olíu og matarsóda. Mér finnst líka voða gott að setja reglulega á mig rakamaska og á það til að sofna stundum með hann á andlitinu, svei mér þá ef ég er ekki frískari þá morgna. Eft- irlætisrakamaskinn minn er frá Kanebo en svo finnast mér leirmaskarnir frá Bláa lóninu líka mjög góðir.“ Hvaða húðvörur notar þú? „Ég er virkilega hrifin af hinum íslensku Taramar-vörum, þær eru einu vörurnar sem ég nota sem hafa einhverja virkni. Annars er ég hrifnust af því að nota góð rakakrem án allrar virkni og hef prófað ýmislegt í gegnum tíðina en það sem stend- ur upp úr eru Kanebo-andlitslínan með rakaandlitsvatninu, Estée Lau- der-kremin og svo Amore Pacific-kremin en þeim kynntist ég í Suður- Kóreu en mér sýndist síðast þegar ég athugaði að þau fáist í Sephora.“ Hvenær byrjaðir þú að mála þig? „Frekar seint. Ég man eftir því að hafa byrjað að nota maskara á síð- asta árinu í grunnskóla. Ég er úr sveit þannig að við vorum kannski ekk- ert mikið að pæla í þessu stelpurnar. Þetta breyttist þó þegar ég fór í menntaskóla.“ Gerðir þú einhver mistök á því sviði sem þú vilt deila með lesendum? „Já, örugglega alveg fullt enda það svosem eðlilegt þegar maður er að æfa sig. Flest mín mistök liggja í ásetningu brúnkukrema. Ég hef oft verið óttalegur klaufi og óviljandi endað eins og ég þjáist af Vitiligo- sjúkdómnum. Ég man líka eftir tímabilinu áður en sólarpúður kom til sögunnar, þá gat maður litið út fyrir að vera óttalega veiklulegur. Einu sinni lét ég líka plokka á mér augabrúnirnar og endaði á því að ganga um götur bæjarins óskaplega hissa á svip, eins og ég væri að sjá heiminn i fyrsta skipti. Síðan þá hefur enginn fengið að koma nálægt augabrún- unum mínum með plokkara.“ Ég veit að þú ert meistari í að farða þig og kannt öll heimsins trix. Get- ur þú sagt frá leyndarmálunum á þessu sviði? „Ég hef óskaplega gaman af förðun og snyrtivörum yfir höfuð en það er svo áhugavert hvað maður í rauninni er ragur við að breyta til þegar maður hefur fundið það „look“ sem manni finnst henta. Annars held ég að leyndardómurinn felist í þokkalega góðri húðumhirðu og góðum burstum eða svömpum, ég er til að mynda mjög hrifin af Beauty- blendernum og nota hann til þess að setja á mig farða. Svo finnst mér ég alltaf verða voða fín þegar ég er nýkomin úr augnhárum frá henni Jónu á Snyrtistofunni í Garðabæ.“ Hvert er besta bjútítrix allra tíma að þínu mati? „Það að hafa húmor fyrir sjálfum sér og útgeislun, það er sama hversu flott þú ert máluð eða uppstríluð ef að gleði, hlýja og almenn gamansemi fylgja ekki þá fölnar farðinn fljótt.“ OPIÐ fyrir umsóknir B A N D A R Í K I N • K A N A D A • E N G L A N D • S K O T L A N D • Í T A L Í A • S P Á N N • Þ Ý S K A L A N D Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla sem bjóða hagnýtt nám og eru í tengslum við heimsþekkt fyrirtæki. Þér gefst einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, með stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Háskólanám erlendis í hönnun, markaðsfræði, sjónlistum, miðlun, sviðslistum, eða tísku opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Your creative future starts here „Skótískan í sumar er fjölbreytt, skemmtileg og umfram allt þægi- leg,“ segir Elísabet Guðmunds- dóttir sem starfar í versluninni Bi- anco. Hún segir strigaskó hafa verið áberandi á síðustu miss- erum og að vinsældir þeirra muni ná hápunkti núna í sumar. „Strigaskór og sandalar með „chunky“ hæl verða vinsælir í sumar. Og einnig verða flatir sandalar mjög eftirsóknarverðir líkt og síðasta sumar. Þykkir hælar eru svo mjög áberandi í sum- artískunni. Það gerir skóna þægi- legri og auðveldari að ganga á,“ útskýrir Elísabet. Támjóir skór sem voru svo vin- sælir fyrir um tíu árum eru þá að koma aftur í tísku að sögn El- ísabetar. „Já, támjóir skór hafa ver- ið að koma inn og við munum sjá meira af þeim með sumrinu. Reimar eru helsta nýjungin þetta sumarið, því meira af reimum því betra. Þessi tíska hefur verið áberandi á öllum helstu tískupöll- um sem og í tímaritum síðustu mánuði, það verður ekkert lát á henni í sumar.“ Spurð út í vinsæla liti þegar kemur að skóm í sumar segir Elísabet klassíska liti vera aðalmálið. „Hvítur, nude, silfur og auðvitað svartur. Þegar á heildina er litið er tísk- an afar fjölbreytt og þægindin eru í fyrirrúmi, því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ gudnyhronn@mbl.is Sumartískan Þægilegir skór verða aðalmálið í sumar „Reimar eru helsta nýjungin þetta sum- arið, því meira af reimum því betra.“ Skór með þykk- um hæl eru bæði þægilegir og smart. Strigaskór verða áfram vinsælir í sumar. Elísabet Guðmundsdóttir segir þægi- lega skó vera númer eitt, tvö og þrjú þessa stundina. Beauty- blenderinn marg- rómaði. Kókosolía er hluti af bjútí- rútínu Friðriku. Bjútítips Rikku Friðrika kynntist kremunum frá Amore Pacific í Suður-Kóreu. Húðvörurnar frá Bláa Lóninu hafa slegið í gegn, Frið- rika er hrifin af leirmaskanum. Rikka er mjög hrifin af vör- unum frá Taram- ar og notar þær mikið. Friðrika Hjördís Geirsdóttir eða Rikka eins og hún er kölluð hugsar ákaflega vel um sig. Ég spurði hana út í bjútítrix og snyrtivörur. Marta María | martamaria@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.