Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 12

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Hinn hefðbundni Íslendingur sér ekki mikið af sólinni allt árið um kring fyrir ut- an einhverjar nokkrar vikur. Þær vikur er þá sérstaklega mikilvægt að passa vel upp á húðina og nota góða sólarvörn. Sólarvörnin Ultimate Sun Protection Lo- tion frá Shiseido SPF 50+ er ein sú öfl- ugasta á markaðinum. Hún er fullkomin fyrir þá sem sjá sjaldan sól, þá sem eru með föla og viðkvæma húð og börn. Sólarvörnin er vatnsheld og hentar því vel í sundið og sjóinn. Sjá útsölustaði á www.heggis.is SILKIMJÚKAR hendur Ofurvörn fyrir föla húð Vatnshelt í sundið Sólarvörnin er góð bæði á lík- ama og andlit St. Tropez-brúnkuvörurnar þykja afar góðar og vörulína merkisins er breið. Mesta lúxusvara línunnar er Self Tan Luxe Dry Oil sem fæst annars vegar fyrir líkama og hins vegar fyrir andlit. Olían veitir húðinni raka á sama tíma og hún gefur brúnku sem endist í allt að fimm til sjö daga. Olían er létt og gefur jafna áferð. Andlitsolían þornar fljótt og stíflar ekki húðholur, henni fylgir svo dropa- teljari sem auðveldar notkunina. Önnur vara frá St. Tropez sem er að slá í gegn er Gradual Tan Tinted Body Lotion. Þessi vara er líkamskrem sem gefur húðinni örlítinn lit sem hægt er að byggja upp með reglulegri notkun. Kremið gefur ljóma og ilmar vel, sem verður að teljast sem stór plús í heimi brúnkukrems. Tan Maximizer-kremið frá Lancaster er fyrir þær sem vilja halda sem fastast í náttúrulega brúnkuna. Kremið, sem er borið á húðina eftir að hafa verið í sól, tryggir að brúnkan endist mun lengur en hún hefði annars gert. Auk þess hefur kremið róandi áhrif á húðina og veitir henni raka. Má nota bæði á líkama og í andlit. Flash Bronzer-hlaupið frá Lancôme er fullkomið fyrir þær sem vilja hugsa vel um húðina og næla sér í smá lit á sama tíma. Hlaupið er fljótlegt í notkun en það þornar hratt og gefur ekki klístraða áferð. Liturinn kemur svo í ljós eftir nokkrar klukku- stundir. Formúlan hefur að geyma meðal annars E-vítamín og önnur nærandi efni. Dove Summer Revive er nærandi húðmjólk með nátt- úrulegum litarefnum sem gefa henni sólkysst útlit. Með þessari húðmjólk er hægt að byggja upp fallegan lit með reglulegri notkun og því er lítil hætta á að húðin verði of dökk eða flekkótt á stuttum tíma, með þessu móti er hægt að stýra litnum. Dove Summer Revive kemur í tveimur litum, fyrir ljósa eða dekkri húð. Lumi drops frá danska merkinu Gosh eru sagðir vera leyni- vopnið fyrir unglegan og heilbrigðan ljóma. Droparnir innihalda agnir sem endurkasta ljósi fullkomlega og eru því flottir á svæðum sem við viljum draga fram. Lumi Drops má setja undir farða eða blanda saman við farðann til að fá auka ljóma. Einn- ig má blanda þeim saman við dagkrem eða líkamskrem til að gefa húðinni fersk- leika. Lumi drops er ilmefnalaus vara. Shimmer Leg fix frá Nip+fab er rakakrem, sérstaklega hannað fyrir fætur og leggi. Kremið hefur gyllta áferð sem gefur sanseraða og dúnmjúka áferð. Kremið kemur sérstaklega vel út á sólbrúnum fótleggjum. Rúsínan í pylsu- endanum er svo ilmurinn, en kremið ilmar af rósum og engifer. Self tanning-úðinn frá Gosh er brúnkukrem í úðaformi. Það er auðvelt í notkun og gefur áferðarfallegan lit enda er auðvelt að úða kreminu jafnt yfir líkamann. Úðinn fæst í tveimur misdökkum litum. Þess má geta að varan er ilmefna- og parabenfrí. Þær sem vilja svo taka hlutina skrefinu lengra geta baðað sig í sólarpúðrinu úr Bronze Goddess-línunni frá Estée Lauder. Þessu matta lúxuspúðri er fallegt að dusta yfir kinnbeinin, á ennið, á axlir og bringu svo dæmi séu tekin. Púðrið er olíulaust og stíflar ekki húðholur. Til að auka á ljómann er tilvalið að nota Radiance in a Flash-kremið frá Guerlain. Kremið stinnir húðina og veitir henni unglegan ljóma samstundis. Mælt er með að bera kremið yfir hefðbundið rakakrem, á andlit og niður á háls. Kremið hefur sumarlegan ilm af sítr- usávöxtum. BROT AF ÞVÍ BESTA Þegar sumarið gengur í garð þýðir lítið að vera með næpuhvíta húð og eins er ekki ráðlegt að grilla sig í sólinni því ekki viljum við skaða húðina. Þá koma brúnkukrem og -olíur að góðum notum. Úrvalið nú til dags af góðum brúnku- og ljómaaukandi vörum sem gæða húðina lífi og frísk- leika er ansi gott. Þetta er aðeins brot af því besta. Guðný Hrönn | gudnyhronn @mbl.is Brúnkukrem og ljómaaukandi vörur sem óhætt er að dásama St. Tropez and- litsolían kemur meðdropateljara. AFP Self Tan Luxe Dry-olían frá St. Tropez var borin á fyrirsæturnar fyrir tískusýningu Julien Macdo- nald þegar sum- arlína þessa árs var kynnt til leiks á tískuvikunni í London. Lúxusolía sem veitir raka og gef- ur lit. Kremið frá Nið+fab gefur gylltan ljóma. Kremið frá Dove nærir húðina samhliða því að gefa henni gyllt- an blæ. Brúnku- kremin frá Lancôme eru gæða- krem. Lumi- droparnir koma í þrem- ur litum. Radiance in a Flash stinnir húðina og veit- ir ljóma Kremið frá Lan- caster eykur á náttúrulega brúnku. Brúnkuúðinn frá Gosh er einfald- ur í notkun. Nýtt krem frá St. Tro- pez sem gefur lítinn lit í einu. Sólarpúðrið frá Estée Lauder hef- ur slegið í gegn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.