Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 15

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 15
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 15 Undirfarði - Illuminating Farði - Foundation Drops Lumi Drops - 002 Kinnalitur - Giant Blush Augnskuggar - 9 Shades New York 001 Maskari - Boombastic Swirl Varalitur - Velvet touch 171 Augabrúnakit Ungfrú Ísland 2015 ARNA ÝR Steldu Stílnum H lýrri tónar, styttur og hreyfing, bæði í lit og klippingu, er að koma sterkt inn. Grái tónninn er að detta aðeins út og stelpur vilja mýkri tóna í auknum mæli, eins og beislitaða, hunangs- og ferskjutóna. Það er mikið flæði og ljómi sem myndast með þessum tón- um,“ útskýrir Katrín. Katrín segir styttur í kringum and- litið vera að koma sterkar inn með hækkandi sól. „Já, beina línan í klipp- ingum er að detta út. Með þessum styttum er auð- veldara að gera fallegar krullur í hárið og það verð- ur auðveldara að búa til lyftingu fyrir þær sem vilja það. Svo er „undercut“-klipping með mynstri að koma inn í sumar fyrir þær sem vilja fara alla leið.“ Fléttur hafa tröllriðið öllu undanfarið og þær verða áfram vinsælar að sögn Katr- ínar. Sömu sögu má segja um stóra liði og bylgjur. „Allt snýst um að vera með mjúka hreyfingu. Nauðsynlegt að gefa hárinu raka „Fyrir herrana eru stuttar herra- klippingar að koma aftur inn, smá 20’s „look“ þykir enn flott og margir eru að stytta toppinn núna fyrir sum- arið,“ segir Katrín aðspurð um hár- tískuna fyrir herra. Þá segir hún nauðsynlegt að hugsa sérstaklega vel um hárið í sumar og gefa því raka, þetta þurfa bæði konur og karlar að hafa í huga. „Olíur og „leave in“- næringar eru nauðsynlegar. Þegar við erum mikið úti í sólinni og að skreppa í sund þá er gott er að eiga hárvörur með UV-vörn og góða djúp- næringu,“ segir Katrín sem mælir með að fá ráð varðandi val á vörum hjá fagmanni. Ljósmynd/Pinterest Hlýir tónar og styttur í hári verða áberandi í sumar að sögn Katrínar á Sprey. Sumarhárið Hártískan er að taka „u-beygju“ Hártískan í sumar er virkilega skemmtileg að sögn Katrínar Sifjar, hárgreiðslukonu og eins eiganda hár- greiðslustofunnar Sprey. „Hún er að taka smá u-beygju frá því sem var í tísku í vetur,“ segir Katrín. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Katrín Sif Nýjasta nýtt frá Clinique er farðastiftin sem heita Chubby in the Nude. Sá farði gefur létta þekju sem er þó hægt að byggja upp með fleiri en einni umferð. Stiftið er sér- staklega hentugt fyrir þær sem eru mikið á ferðinni því það passar vel í töskuna og er einfalt í notkun. Farð- ann er auðvelt að blanda út með fingrunum. Og rúsínan í pylsuend- anum er endingartíminn, en farðinn endist í allt að átta tíma á húðinni, jafnvel í heitu og röku veðri. Þess vegna þykir þessi létti farði fullkom- inn fyrir sumarið. Nýjasta nýtt Sumarfarðinn frá Clinique

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.