Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 19
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 19
Brightening Blonde þrenna
Glitrandi ljóst allan ársins hring
Nýja label.m Brightening Blonde línan er með náttúrulegum innihaldsefnum.
Hönnuð til að ná fram því besta í ljósu lokkunum þínum.
Formúlan dregur fram bjarta tóna hársins og deyfir gul/appelsínugula ,,brassy” tóna þess. Rakagefandi
og nærandi formúla sem verndar hárið gegn hitaskemmdum, utanaðkomandi raka og UV geislum.
Liturinn helst lengur – frá fyrstu notkun.
Taktu 3 skref í átt að heilbrigðari og bjartari lokkum með label.m Brightening Blonde línunni.
Hámarks glans og vörn fyrir hárið þitt.
Skref 1
Brightening
Blonde Shampoo
Skref 2
Brightening
Blonde Conditioner
Skref 3
Brightening
Blonde Balm
• Milt létt hreinsandi sjampó
• Lýsir hárið jafnt og þétt
• Nærir hárið og ver það
gegn þurrki og ,,brassy
tónum” (gul-appelsínutónar)
• Rakagefandi og nærandi
formúla
• Lýsir hárið jafnt og þétt
• Nærir hárið og ver gegn
þurrki, flóka og sliti
• Létt nærandi krem
• Lýsir hárið jafnt og þétt
• Ver hárið gegn hitatækjum,
úfningi, raka og UV geislum
• Hárið verður silkimjúkt og
afrafmagnað
TILBOÐ
Kaupir
Brightening Blonde
sjampó & hárnæringu
Færð
Brightening Blonde
BALM FRÍTT
/labelm á Íslandi
É
g fékk áhuga á ljósmyndun mjög
ung og byrjaði að mynda þegar ég
fékk fyrstu vélina mína 11 ára, sem
var reyndar fjölskylduvélin en hún
varð síðar mín. Ég hef sömuleiðis
alltaf haft mjög gaman af því að fylgjast með
fólki og þar sem ég er úr Borgarnesi var alltaf
mjög spennandi að fara til Reykjavíkur og sjá
alls konar mismunandi týpur.“
„Sú sem fékk mig til þess að byrja að mynda
„street style“-myndir myndi ég segja að væri
Hildur, eigandi Einveru. Við vorum eitthvað
að tala saman um vöntun á slíkum myndum
hérlendis svo ég tók bara upp á því að redda
þessu sjálf. Þá vann ég líka á Laugaveginum
svo ég tók vélina með mér í vinnuna. Mér
finnst sömuleiðis ótrúlega gaman að fylgjast
með mismunandi fólki og veit að aðrir gera það
líka,“ segir Birta, sem lærði ljósmyndum í
Tækniskólanum og á námskeiðum.
„Ótrúlegt en satt fer það eftir veðri og viku-
degi,“ segir Birta spurð út í hvort fólk sé yf-
irleitt jákvætt fyrir því að láta taka mynd af
sér. „Það eru allir mun afslappaðri á föstudög-
um eða laugardögum þegar veðrið er þokka-
legt eða gott. Ef það er kalt, rigning eða
sunnudagur eru allir bara að flýta sér sína
leið.“
Á Streets of Reykja-
vík má finna myndir
af Íslendingum í
bland við erlenda
ferðamenn, en
Birta hefur tekið
eftir mikilli fjölg-
un ferðamanna á
götum úti. „Mér
þykir leiðinlegt að
sjá að bara á þessu
eina ári sem ég hef verið
að mynda hefur hlutfallið
útlendinga hækkað mikið,
einfaldlega vegna þess að
meirihluti þess fólks sem
er í miðbænum núna er
ferðamenn.“
En Birta myndar ekki bara mannfólk, hún
hefur nefnilega sérstakt dálæti á að mynda
kanínurnar sínar, Lúlla og Lubba, sem eru
með sína eigin Instagram-síðu. „Já, þær eru
meira að segja með fleiri fylgjendur en ég und-
ir notendanafninu bunbunland“ segir Birta að
lokum og hlær.
Áhugasamir geta fylgst með því sem á daga
Birtu drífur á vefsíðunni streetsofreykjavik-
.com.
Morgunblaðið/Golli
Birta nýtur þess að mynda
mannlíf, viðburði og tísku.
Alltaf haft gaman af
því að fylgjast með fólki
Ljósmyndarinn Birta Rán Björgvinsdóttir heldur úti síðunni
Streets of Reykjavík, þar sem má finna fjölbreyttar ljósmyndir sem
hún hefur tekið síðan síðan var stofnuð í mars árið 2015. Svokall-
aðar „street- style“-myndir eru nokkuð áberandi á síðunni, en
Birta kveðst lengi hafa haft áhuga á stíl og klæðaburði fólks.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
„Meirihluti
þess fólks
sem er í
miðbænum
núna eru
ferða-
menn.“
Kanínurnar Lúlli
og Lubbi eru með
fleiri fylgjendur á
Instagram heldur
en Birta sjálf.