Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 21
Morgunblaðið/Ófeigur Ferðamaðurinn ætti að vera mikið tækifæri fyrir íslenska hönnun en því miður höfum við lítið náð því enn sem komið er. Þeir vita mest lítið um hönnun hér á landi, þar sem engin heildræn markaðs- setning á hönnun hefur átt sér stað fyrir ferðamenn. Við eigum enga Björk Guðmundsdóttur eða álíka snillinga sem hafa gert garðinn frægan fyrir okkur hönnuði erlend- is. Við erum á byrjunarstigi hvað þetta varðar,“ segir Björg. Smartasta fólkið ekki það sem er alltaf í nýjum fötum Þeir sem þekkja til Spaksmanns- spjara vita að þar er ekki verið að eltast blindandi við heitustu tísku- straumana. „Nei, Spaksmanns- spjarir er algjör tímaskekkja í „fast fashion“-tískunni í dag og passa ekki við almenna hugsun neytenda samtímans. Ég vinn að sjálfsögðu með alþjóðatrendin en á minn hátt. Ég er mjög praktískur hönnuður og legg mikið upp úr notagildi og sníðagerð. Smart og vel hönnuð flík virkar ekki ef sniðið er ekki nógu gott. Ég legg metnað minn í að fatnaðurinn frá Spakmannsspjörum geri þetta „litla extra“ fyrir kon- urnar.“ Eins og áður sagði er Björg ekki hrifin af neyslumynstri samtímans. Hún skilur ekki hvernig fólk nennir almennt að eiga eins mikið af fötum og alls konar hlutum og tíðkast nú til dags. „Ég er spennt fyrir fram- tíðinni og allri þeirri þróun sem mun eiga sér stað í efnum, fram- leiðsluferli og umhverfisvitund. Vonandi er stutt í að við getum öll prentað fötin okkar í 3D-prent- urum. Þá mun hönnunin skipta öllu máli en ekki framleiðslan því hún mun þá færast til neytenda og efnið í fötin verður hægt að endurnýta aftur og aftur í prentunina. Mér finnst smartasta og áhugaverðasta fólkið alls ekki vera þeir sem fara í eitthvað nýtt endalaust. En oft á tíðum er það einfaldasta lausnin og stundum er það meira að segja ódýrara; að kaupa sér nýja flík frekar en að fara með eldri flík í hreinsun. Þetta er auðvitað ekki í lagi. Alvöru hönnun á að vera hægt að nota í gegnum mismunandi tíma- bil, bara með því að stílísera fatn- aðinn á misjafnan hátt. Og það er ekkert ljótt þó að það sjáist á föt- um, en til þess að láta fatakaupin endast þarf að vanda sig við kaupin og hugsa vel um fötin sín. Það þarf að kunna að strauja, pressa, taka hnökur og laga saumsprettur.“ „Aðgengi að alls konar fatnaði hefur aldrei verið meira en í dag, né hafa fötin verið ódýrari. En gæðin og smartheitin haldast ekki alltaf í hendur við framboðið. Hér á Íslandi finnst mér oft koma upp mjög sterk trend og undanfarin ár hafa einfald- ir kjólar og toppar verið mjög áber- andi. Spaksmannsspjarir hafa ekki tekið þátt í þessu trendi nema að litlu leyti og er ástæðan sú að þetta er einfaldur fatnaður sem í raun all- ir geta auðveldlega saumað sjálfir,“ segir Björg, sem þykir jákvætt að fólk geri tilraunir í saumaskapnum og vill leggja sitt að mörkum. „Ég hef verið að undirbúa að selja snið í öllum stærðum í einfalda kjóla og toppa sem koma fljótlega í sölu. Það eina sem þarf er áhuginn, æfingin skapar meistarann,“ segir Björg. FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 21 Njótum sólarinnar áhyggjulaus með Piz Buin Piz Buin veitir hámarksvörn gegn UVA- og UVB-geislum Piz Buin sólarvörur eru ofnæmisprófaðar Piz Buin sólarvörur eru rakagefandi og innihalda E-vítamín Ofnæmisprófuð sólarvörn fyrir ljósa húð sem er viðkvæm fyrir sól, þróuð í samvinnu við húðlækna. Piz Buin Allergy inniheldur Calmanelle sem styrkir náttúrulega vörn húðar og veitir vörn fyrir ofnæmisviðbrögðum. Engin paraben-efni eru í Allergy línunni. Piz Buin Allergy Piz Buin Tan Intensifier eykur náttúrulega virkni litarfruma húðarinnar til eðlilegrar sólbrúnku og verndar um leið húðina fyrir UVA- og UVB-geislum. Árangurinn er djúpur, jafn og fallegur litur sem fæst án þess að taka áhættu. Piz Buin Tan Intensifier Sólarvörn sem gefur góðan raka og hefur fyrirbyggjandi áhrif á öldrun húðar. Piz Buin In Sun inniheldur Helioplex sem er áhrifarík vörn bæði gegn UVA- og UVB-geislum sólar. Verndar og veitir raka í langan tíma. Piz Buin In Sun „Fast fashion“ er hug- tak sem er gjarnan not- að yfir þá stefnu hönn- uðar að koma vörunni sem hraðast inn á mark- að til neytanda. Öllum „óþarfa“ þáttum er fækk- að í kaupferlinu og þannig styttist sá tími sem tekur að koma tískuvöru í verslun. Með þessum viðskiptahætti er hægt að bregðast hratt við tískustraumum og koma tískuvarningi skjótt í hendur við- skiptavina. „Fast fas- hion“-tískuföt eru oftast unnin í stórum verk- smiðjum og það er lítil sem engin leið fyrir við- skiptavin að komast að uppruna vörunnar. Föt sem unnin eru með þessum hætti eru gjarnan unnin af ódýru vinnuafli, fjöldaframleidd og einblínt er á að halda verðinu niðri fyrir viðskiptavininn. „Slow fashion“ er hugtak sem spratt upp sem mótsvar við offram- leiðslu og sóun í textíl- og hönnunarheiminum. Til að hönnun geti flokkast sem „slow fashion“ þarf hún að vera vönduð og ending- argóð. Eins er aðbúnaður þess sem framleiðir vöruna góður og neytandi á að geta rakið hvaðan varan er upprunnin. Allir sem koma að gerð vörunnar fá greitt fyrir vinnu sína og niðurstaðan er sú að neytandinn sem kaupir vöruna borgar meira fyrir hana en ef hún væri fjöldaframleidd í verksmiðju. Sanngirni í viðskiptum skiptir miklu máli í „slow fashion“-tískuheiminum. Vandað handverk og endurunnin efni einkenna gjarnan fatnað sem unninn er undir „slow-fashion“-hreyfingunni. Hvað þýðir „slow fashion“ og „fast fashion“? Hugtökin „slow fashion“ og „fast fashion“ lýsa tveimur ólíkum hönnunar- og við- skiptaháttum í tískuheiminum. Björg í Spaks- mannsspjörum. Getty Images/moodboard RF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.