Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.05.2003, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 22.05.2003, Blaðsíða 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njaróvik Simi 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Pált Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Fiilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hbb@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Siguijónsson, srmi 421 0001, franz@vf.is Augtýsingar: Kristin Njálsdóttir, sími 421 0008 kristin@vf.is, Jófriður Leifsdóttir, sími 421 0009 jofridur@vf.is Blaðamenn: Jóhannes Kr. Kristjánsson sími 421 0004 johannes@vf.is Sævar Sævarsson, simi 421 0003 saevar@vf.is Hönnun/umbrot: Stefan Swates, stefan@vf.is, Hattur Guðmundsson, hattur@vf.is Skrifstofa: Stefanía Jónsdóttir, Atdis Jónsdóttir Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dreifing: Fréttabtaóið dreifing s: 515 7520 Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: VF - Vikutega í Firðinum Timarit Víkurfrétta, The White Fatcon, Kapatsjónvarp Víkurfrétta. MUNDI Klukknahljóm, klukknahljóm... Kallinn á kassanum kallinn@vf.is SUMARIÐ ER SVO sannarlega komið með öllum sínum fuglasöng og tilheyrandi. Yndislegur tími og ekki skemmir fyrir að Eurovision er á næsta leiti. Söng- fúglinn hún Birgitta okkar á svo sannarlega eftir að standa sig vel og verða íslend- ingum til sóma. Kallinn verður að sjálfsögðu límdur fyrir ffarn- an sjónvarpið um helgina, með popp í annarri og kók í hinni. KALLINN VERÐUR að hrósa bæjarstjórn Sandgerðis fyrir framsýni með fyrirhugaðri byggingu ráðhúss í bænum. I Morgunblaðinu í síðustu viku mátti lesa ffóðlega grein um þetta stórkostlega og mikilvæga verkefhi Sandgerðinga. ÞAÐ ER NÁTTÚRULEGA alveg ljóst að bæjar- stjómin þarf ráðhús. Bæjarstjómin vinnur að mörgum mikilvægum málefnum og þegar ákvarðanir þarf að taka er nauðsynlegt að gera það í ráðhúsi. Gömlu bæj- arskrifstofúmar em að verða of litlar fyrir framtaks- semi og nýjungagimi bæjarstjómarinnar. RÁÐHÚSIÐ á effir að gæða atvinnulíf Sandgerðis nýju lífí. Við ráðhúsið verður klukkutum með klukku sem mun hringja á klukkustundar ffesti. Klukkan er al- ger nauðsyn fyrir starfsmenn þeirra fjölmörgu fyrir- tækja sem sest hafa að í Sandgerði siðustu ár. Starfs- menn þessara nýju fyrirtækja vinna það mikið að stór klukka í klukkutumi í miðjum bænum er nauðsynleg fyrir þá til að vakna á morgnana. KALLINUM FINNST bæjarstjórnin einnig sýna mikla framsýni með því að byggja ráðhús áður en sveitarfélög á Suðumesjum verða sameinuð. Ráðhús Sandgerðis mun þá hýsa þjónustukjarna Sandgerðis þegar sveitarfélögin hafa sameinast. Og það er alveg ljóst að vel verður að búa að starfsmönnum hins nýja sveitarfélags sem munu starfa í ráðhúsinu. ENNÞÁ MEIRI snilld verður það að teljast að fá Bú- menn til að reisa ráðhúsið og íbúðimar sem þar verða einnig. Bæjarsjóður getur þá bara leigt ráðhúsið og Kallinn efast um að það sé dýrt og það er til mikilla hagsbóta fyrir bæjarsjóð. EN AFTUR AÐ klukkutuminum! Kallinn efast ekki um það að tuminn á eftir að auka ferðamannastraum til Sandgerðis gríðarlega. Þar mun fúlltrúi bæjarstjómar án efa sitja með bauk fyrir framan sig og telja inn ferðamennina sem vilja fara i tuminn og virða fyrir sér útsýnið yfir Sandgerði. Auk alls annars verður þetta að teljast mikil ffamsýni. KALLINN LEGGUR reyndar til að bæjarstjórn Sandgerðis fari í fúndarferð um landið til að kynna fyr- irhugað ráðhús Sandgerðinga og hvetja önnur sveitar- félög til að reisa ráðhús. I hvetju sveitarfélagi þarf að vera ráðhús til að hjól atvinnulífsins nái að snúast með eðlilegum hraða. OG NÚNA EFTIR að fiskimjölsbræðslan með sínum strompum er farin úr Sandgerði þá er það algjör snilld að reisa tuminn til minningar um þá verksmiðju. Það eina sem Kallinn getur gagnrýnt við ráðhúsið er stað- setningin. Af hverju verður ráðhúsið ekki þar sem fiskimjölsverksmiðjan var? I gegnum ráðhúsið eiga gríðarlegir fjármunir eftir að renna og ef hugað er að útsjónarsemi og framsýni verða starfsmenn bæjarins að hafa gott útsýni út á hafíð. Hjól atvinnulífsins em svo sannarlega farin að snúast í Sandgerði og Kallinn hvet- ur bæjarstjómina til að vinna áffam að spennandi verk- efnum í sveitarfélaginu. í LOKIN VILL Kallinn slá ffam hugmynd fyrir bæj- arstjómina um að reist verði tónlistarhús í Sandgerði. Það myndi gera enn meira fyrir atvinnulífíð og íbúa bæjarins. Klukkuturnakveðja, Kallinn@vf.is STYÐJUM OKKAR STULKU TIL SIGURS Vikurfréttir vilja hvetja Suðurnesjamenn að fjölmenna að skjánum á föstudagskvöld og styðja við sína stúlku í Fegurðarsamkeppni íslands til sigurs. Að loknu kjólaatriðinu verður símakosning sem gildir 30% af heildarúrslitum keppninnar og auðvitað em Suðurnesjamenn hvattir til að nýta sér hana og vera duglegir við að hringja. Krakkaskóli GS. Tvö námskeiö verða haldin fyrír krakka 13 ára og yngri ('90) í sumar. Fyrra námskeiðið byrjar 10. júní og það seinna 30. júní, bæði námskeiðin standa yfir í tvær vikur. Kennsluefni: Gripið, staðan, sveiflan, stutt högg, lengri högg, pútt og fl. umgengni á golfvelli, golfreglur, keppnisgolf og fl. í lokin verður golfkeppni og veisla. Kennarar eru: Jamie Darling, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Kjartan Kárason og Örn Ævar Hjartarson Hámarks fjöldi á hvort námskeið eru 24 krakkar. Verð kr. 8.000,- Skráning og allar nánari upplýsingar ísíma 421 4100 eða 421 4103. í dag er stóra stundin mnnin upp, stóri strákurinn okkar er orðinn 4 ára. Til hamingju með afmælið Pétur Snær. Ástarkveðja frá fjölskyldunni. Við óskum þér innlega til ham- ingju með 3ja ára afmælið þann 17. maí elsku Sædís Osk. Amma, aft og Snjólaug frænka. Elsku Alexandra Mist innilega til hamingju með 3ja ára afmælið þann 22. maí. Pabbi og mamma. 30 ára f tilefni af 30 ára afmæli mínu, þann 26/5 bfð ég ættingjum og vinum að þyggja veitingar að heimili mínu kl 20. 50 ára 24. maí nk. verður Fanney Bjamadóttir 50 ára. Tekur hún á móti vinum og vandamönnum í morgunmat kl. 10-14 í Oddfellohúsinu í Grófinni. Séleg pía er Dísa hans Geira og sexappíl hefur flestum meira. Nú varð hópurinn úr að skera, því ei gömul má pfan vera. „Alltaf sama túttan" 50 ára afmæliskveðjur. Hópur-sex. 6 VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.