Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.05.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 22.05.2003, Blaðsíða 14
Vortónleikar og skólaslit verða laugardaginn 24. maí nk. kl. 14 í Safnaðarheimilinu Sandgerði. Allir velkomnir! Skólastjóri Tónlistarskóli Sandgerðis ofeCag mynÆstarmama Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 27. maí nk. kl. 20 í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2, Keflavík, Reykjanesbæ. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin LEIKFEIA6 Aðalfundur Aðalfundur Leikfélags Keflavíkur verður haldinn í Frumleikhúsinu í kvöld, fimmtudag 22. maí, kl. 20. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Allir velkomnir. Stjórnin. \ iltu ná lil SuðunwsjíMumiui á öruggím hátt ? ií421 0000 Lyf & heilsa festi á dögun- um kaup á Apóteki Keflavíkur og hafa und- anfamir dagar og vikur farið í að stilla saman strengi. Apótek Keflavíkur hóf starfsemi í febr- úar árið 1951 og er þekkt fyrir sína persónulegu þjónustu, mikið úrval heimsþekktra snyrtivörumerkja og gott úrval heilsu- og hjúkrunarvara. Ingólfur Garðarsson markaðs- stjóri Lyf & heilsu sagði í samtali við Víkurfréttir að lyfjafræðing- amir Ásgeir Ásgeirsson og Sig- urður Gestsson muni áfram stýra apótekinu og áfram bjóða upp á ijölþætta þjónustu svo sem blóð- þrýstings- og blóðsykursmæling- ar, heimsendingar á vörum og lyfjaskömmtun svo fátt eitt sé nefnt. Þá munu eldri borgarar áfram njóta sömu afsláttarkjara og áður. Hér verður áfram ein stærsta og glæsilegasta snyrtivöruverslun landsins. Það er í sjálfu sér engin breyting á apótekinu nema hvað það eru komnir nýir aðilar að rekstrinum", segir Ingólfur. Ás- geir og Sigurður tóku undir þetta og bentu á að viðskiptavinir apó- teksins gætu haldið áfram að leita til þeirra effir upplýsingum og annarrar þjónustu. Aðspurður hvort viðskiptavinir megi búast við einhvetjum nýj- ungum segir Ingólfur að eflaust muni einhveijar nýjungar bætast við í framtíðinni ofan á það sem boðið er upp á fyrir en tíminn verði að leiða það í ljós hverjar þær verði. „Þetta samstarf er ný hafið og næstu mánuðir verða notaðir til að flnpússa það betur, varðandi merkingar og skipulag verslunarinnar. Við þurfum að læra inn á hvor aðra svo hægt sé að þjónusta markaðinn betur“, segir Ingólfur og bætir því við að með þessum kaupum aukist sóknarfæri apóteksins til muna. Með kaupunum styrkir Lyf & heilsa sig enn frekar í sessi sem leiðandi keðja í smásöluverslun með lyf og tengdar vörur. Þá er ljóst að með þessum kaupum mun hagkvæmni í rekstri aukast enn frekar og neytendur fá enn fjölbreyttara úrval en áður á hag- Iwæmu verði. „ Apótek Keflavík- ur passaði vel inn í okkar keðju og það var gagnkvæmur áhugi milli okkar að vinna saman. Við hlökkum mikið til að færa okkur inn á markaðinn á Suðumesjum enda er þetta spennandi svæði“, segir Ingólfúr. Samhliða rekstri apóteks Kefla- víkur mun Lyf & heilsa áfram reka lyfjaútibú frá apótekinu í Garði, Sandgerði og Vogum. 1/ortónleikar Tónlistarskólcms Vortónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hafa staðið yfir í þessari viku og flestir verið í Listasafni bæjarins í Duus-húsum. Á tónleikum á laugardag og mánudag komu fram nemendur á flestum stigum tónlistarnáms í einleik, einstöng og samleik. Strengjsve'rtir og kór söngdeiidar mættu á sviðið í fyrrakvöld og í gærkvöld voru tónleikar léttsveita skólans. Tíðindamaður VF var á þrennum þessara tónleika og hafði gaman af. Það er Ijóst að gríðarmikið og gott starf fer fram innan veggja skólans og framtíð tónlistar í bítlabænum björt nú sem aldrei fyrr. 14 VlKURFRÉTTIR Á NETINll www vf is LESTIJ NÝJUSTU FRÉTTIR DAGI FRAI

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.