Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.05.2003, Page 15

Víkurfréttir - 22.05.2003, Page 15
 fer fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja dagana 10. og 11. júníkl. 10:00 - 16:00. Foreldrar eru hvattir tH að mœta með börnum sínum. 10 góðar ástæður fyrir því að velja Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1. FS er framsækinn framhaldsskóli sem býður bæði upp á starfsnám og bóknám. 2. Allir framhaldsskólar landsins starfa eftir sömu námsskrá og nemendur með góðar einkunnir frá FS hafa staðið sig mjög vel í háskólum og sérskólum hérlendis og erlendis. 3. Lögð er rík áhersla á aðhald og eftirlit með nemendum fyrstu tvö námsárin. Foreldrar fá reglulega sendar heim upplýsingar um mætingar nemenda og umsjónarkennar hafa samband við foreldra ef verkefnaskil eru ekki góð. 4. Með starfi sínu og námsframboði leitast skólinn við að koma til móts við þarfir nemenda. 5. Kennarar FS leita stöðugt leiða til að bæta sig í starfi. Nemendur leggja mat á störf kennara þriðju hverja önn og matinu er fylgt eftir með starfsmannasamtölum og umbótaáætlunum. 6. í leiðarljósi skólans er lögð áhersla á að starfsmenn vinni saman af fagmennsku og metnaði að því markmiði að nemendum líði vel í skólanum og þeir nái árangri með námi sínu. 8. Nemendur FS keppa við nemendur annarra framhaldsskóla landsins. Á síðasta skólaári stóðu nemendur FS sig mjög vel á þeim vettvangi. Þeir komust í undanúrslit í mælsku- og rökræðukeppninni Morfis, komust í átta liða úrslit í Gettu betur, urðu framhaldsskólameistarar í knattspyrnu, unnu til fjölda verðlauna á hestamóti framhaldsskólanna, nemandi FS var í 2. sæti í trésmíðakeppni iðnmenntaskólanna og fulltrúi nemenda í FS stóð sig frábærlega f svöngvakeppni framhaldsskólanna. 9. FS er framhaldsskóli Suðumesjamanna. Skólaakstur er frá Garði, Sandgerði, Vogum og Grindavík á sanngjörnu verði fyrir nemendur. 7. Félagslíf nemenda er í stöðugri sókn. Ýmsir áhugaverðir klúbbar eru starfræktir á vegum nemendafélagsins svo sem málfundaklúbburinn Kormákur, leikklúbburinn Vox Arena, kvikmyndaklúbburinn og kúltúrklúbburinn svo eitthvað sé nefnt. Næsta haust hefja nemendur æfingar á söngleik sem sýndur verður á vorönn 2004. Við skólann starfar einnig kór FS. lO.Þegar velja á framhaldsskóla fyrir 16 ára Suðurnesjamenn er FS besti kosturinn, bæði námslega og félagslega. VÍKURFRÉTTIR 21.TÖLUBLAÐ FIMMTUDAGUR 22. MAl 2003 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.