Víkurfréttir - 17.07.2003, Page 11
Tveggja metra harfoss sem i
rennur Bláa lóns vatn setur
skemmtilegan svip á svæðið.
vikurfrettaljosmynd: Hilmar Bragi Barðarson
Gjáin er „skjálfandi
upplýsingamiðstöða
í Svartsengi
Gjáin er „skjálfandi upp-
lýsingamiðstöð” staðsett
undir Eldborg við orku-
ver Hitaveitu Suðurnesja hf„
aðeins 800 metra frá Bláa lón-
inu. Nútímatækni og einstakt
umhverfi gerir gestum kleift að
upplifa og kynnast undrum
jarðfræðinnar á Iifandi og
skemmtilegan hátt. Sýningar-
salurinn er gjá í orðsins fyllstu
merkingu en veggir hans eru
náttúrlegir hraunveggir og gefa
þeir sýningunni sérkennilegt
yfirbragð. Þeir sem heimsækja
Gjána fá auðveldlega á tilfinn-
inguna að þeir séu horfnir inn í
iður jarðar.
A 18 sýningarflötum hafa gestir
aðgang að upplýsingum: allt frá
myndum sem skýra myndun og
útlit jarðskorpunnar til mynd-
banda um eldgos á íslandi og
mótun landsins. Jarðsagan skipar
veigamikinn sess á sýningunni,
þar má finna heillandi viðfangs-
efni eins og: Jökull yfir Skandin-
avíu og ísland - suðræn paradís.
Sýningin gefur einnig góða
mynd af rannsóknum er tengjast
jarðífæði heimsins með sérstakri
áherslu á Island og er því spenn-
andi fyrir alla þá sem hafa áhuga
á þessum viðfangsefnum.
I Gjánni er fullkomið hljóðkerfi
sem gerir gestum kleift að heyra
hin ýmsu hljóð úr íslenskri nátt-
úru og skapar um leið kraftmikið
andrúmsloft. Gestir kynnast því
ekki einungis undrum jarðfræð-
innar heldur upplifa hana á ævin-
týralegan hátt.
Eldborg
Um síðustu áramót tók Bláa
Lónið hf við rekstri Eldborgar,
kynningar- og ráðstefnuhúsi
Hitaveitu Suðurnesja við orku-
verið í Svartsengi. I Eldborg eru
glæsilegir fiinda- og ráðstefhusal-
ir sem rúma allt að 500 gesti.
Felliveggir eru á milli salanna og
því auðvelt að aðskilja og sam-
eina sali. Góð lofthæð og fallegt
útsýni er úr öllum sölum Eld-
borgar, sem eru jafhframt meðal
tæknivæddustu fitndarsala lands-
ins. Eldborg er tilvalinn staður til
fundahalds og er aðeins 40 mín-
útur frá Reykjavík. Salimir í Eld-
borg hafa einnig verið notaðir og
henta vel til mannfagnaða og
veisluhalda af ýmsu tagi.
Sértilboð
Egangseyri
■niðans.
ætti:
inir350kr,börn150 kr
lir tii 1. ágúst 2003.
Gjain er „skjalfandi
upplýsingamiðstöð" staðsett
undiíjUdborg aðeins 800
metrumfrá Bláa lóninu.
IVH*e^
GJAIN
Nútímatækni og einstakt umhverfi gerir gestum kleift að upplifa og kynnast undrum
jarðfræðinnar á lifandi og skemmtilegan hátt. Sýningarsalurinn er gjá í orðsins fyllstu
merkingu en veggir hans eru náttúrlegir hraunveggir og gefa þeir sýningunni
sérkennilegt yfirbragð. Þeir sem heimsækja Gjána fá auðveldlega á tilfinninguna að
þeir séu horfnir inn í iður jarðar.
Opnunartími
15. maí-15. september: 10-17
15. september-15 maí: 10-16
HITAVEITA
SUÐURNESJA HF
VÍKURFRÉTTIR I 29.TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 17. JÚLl 2003 111