Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2003, Page 14

Víkurfréttir - 17.07.2003, Page 14
Feður fasteignasalanna! Það fór vel á með þeim Ragnari Jónassyni og Jóni Böðvarssyni í opnunarhófinu. Ragnar erfaðir Sigurðar og Jón er faðir Böðvars fasteignasala og bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ. + Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, Jens Ingvi Arason Mávabraut 3d, Keflavík, sem lést þriðjudaginn 8. júlí verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 17. júlí kl 14:00. Hjördís Ólafsdóttir, Halldóra Jensdóttir, Ari Sigurðsson, Halldóra Ingibjörg Jensdóttir, Rúnar J. Garðarsson, Bjarney Rut Jensdóttir, Jóhann Geir Hjartarson, Fanney Jensdóttir, Jóhann Liljan Arason, Ágúst Guðjón Arason, Halldór Ari Arason, og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs frænda okkar Jóhanns Bergmanns Guðmundssonar (frænda) Melstað, Klapparstíg 16, Ytri Njarðvík Sérstakar þakkir til starfsfólks á Garðvangi, Garði. Þórunn Magnúsdóttir, Þórhanna og Hrefna Guðmundsdætur Falleg ný húsakynni að Hafnargötu 20 í Keflavík: Eignamiðlun Suðurnesja og Húsanes flytja í nýtt skrifstofu- og íbúðahús Eignamiðlun Suðumesja, Húsanes og Fasteigna- félagið Þrek opnuðu nýtt glæsilegt skrifstofuhúsnæði að Hafnargötu 20, Reykjanesbæ fyrir síöustu helgi. Auk þess voru formlega teknar í notkun fjórar ieiguíbúðir á 2. og 3. hæð hússins. Fjölmenni var við sérstaka mót- töku hjá fyrirtækjunum þremur. Eignamiðlun Suðumesja stendur á tímamótum um þessar mundir, en fyrirtækið fagnar nú 25 ára aftnæli og sagði Sigurður Ragnarsson fasteignasali að tími hafi verið komin á breytingar. „Ég þurfti að gera eitthvað meira en að mála og skipta um hús- gögn“. í ávarpi sem þeir bræður, Sigurður og Halldór Ragnars- synir héldu gestum kom fram að Húsanes er einnig að fylla aldar- fjórðunginn, en félagið var stofn- að ári síðar en Eignamiðlun Suðumesja. Húsanes hefur sam- tals byggt um 500 íbúðir á þess- um tíma og fjöldann allan af atvinnuhúsnæði bæði hér á Suðumesjum og víðar. Fasteignafélagið Þrek er síðan undir vemdarvæng Húsaness, en er í eigu þeirra og fleiri aðila. Það leigir út íbúðir á efri hæðum hússins að Hafnargötu 20 og stendur að byggingu fleiri íbúða sem verða kynntar nánar síðar. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í opnunarhófínu. 14 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.