Víkurfréttir - 17.07.2003, Side 18
Fimmti sigur
Grindvíkinga
Grindavík sigraði Val 2-1
á Hlíðarenda í Lands-
bankadeildinni í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld en þetta
var fimmti sigur Grindvíkinga
í röð í deildinni. Grindvíkingar
misstu mann útaf á 46. mínútu
en þrátt fyrir það að vera
manni færri höfðu þeir sigur í
hörkuleik.
Oli Stefán Flóventsson kom
Grindavík yfir á 25. mínútu eftir
góða sendingu ffá Paul McShane
og þannig var staðan í hálfleik.
Ray Jónsson fékk rauða spjaldið
á 46. mínútu fýrir brot á Sigurði
Þorsteinssyni en fiestum ber
saman að það hafi verið afar
hæpinn dómur hjá Ólafi Ragn-
arssyni, dómara leiksins.
Paul McShane kom Grindvík-
ingum yfir í 2-0 á 70. mínútu og
þá virtist þetta vera komið hjá
þeim gulklæddu en Armann
Smári Bjömsson leikmaður Vals
náði að minnka muninn á 80.
mínútu en lengra komust þeir
ekki. Axmann Smári átti reyndar
skalla í slánna í lokamínútum
leiksins en inn vildi boltinn ekki.
Bæði Þorlákur Arnason og
Bjami Jóhannsson þjálfarar lið-
anna vom sammála eftir leikinn
að rauða spjaldið hafi verið bull
og það að Valsmenn hefðu átt að
fá vítaspymu mínútu síðar.
Þetta var fimmti sigur Grindvík-
inga í röð og þeir eru komnir í
þriðja sæti deildarinnar, með 18
stig eins og Þróttur sem er í öðm
sæti deildarinnar.
Víkingur
og Keflavík
skiidujöfn
Víkingur og Keflavík skildu jöfh,
1:1, í 1. deild karla í knattspymu
fyrir helgi. Daníel Hjaltason kom
Víkingi yfir úr vítaspymu strax á
3. mínútu en Ólafur Ivar Jónsson
jafnaði fyrir Keflvíkinga á 37.
mínútu. Keflvíkingar eru með
sex stiga forystu á toppi 1. deild-
ar þegar umferðin er háfnuð.
Njarðvík vann
Aftureidingu
Njarðvíkingar unnu Aftureldingu
3-1 í 1. deild karla í knattspymu
í Njarðvík. Afturelding komst
yfir snemma leiks en Jón Fannar
Karlsson, Eyþór Guðnason og
Sverrir Þór Sverrisson svöruðu
fyrir Njarðvík.
Njarðvíkingar eru í fjórða sæti
deildarinnar með 11 stig en þijú
önnur lið í deildinni hafa sömu
stigatölu.
Meistaramót
Meistaramót golfklúbbanna eru haldin þessa vikuna. Hér er um
að ræða eitt stærsta mót sumarsins og hjá Golfklúbbi Suðurnesja
eru nær 200 þátttakendur en einnig er góð þátttaka í Sandgerði
og Grindavík. Einmuna veðurblíða leikur þessa dagana við lands-
menn eins og þessar myndir sýna sem teknar voru á Hólmsvelli í
meistaramótsstemningu. Meistaramótunum lýkur á laugardag.
Hér má sjá nokkrar hressar kvensur á 18. flöt að Ijúka leik.
í sumarblíðu!
Ástþór Valgeirsson, (t.v.) 72 ára gamall kylfingur fór holu í höggi
í annað sinn á ferlinum þegar hann setti beint í holu á 8. braut í
fyrrakvöld. Ketill Vilhjálmsson, sem var meðal spilafélaga
Ástþórs hefur farið tvisvar holu í höggi á þessari braut. Hann
lagði sinn bolta upp að pinna og fékk léttan fugl. Ástþór lét það
ekki nægja og lék holuna á einu höggi. Hér eru þeir félagar með
Þorstein Erlingsson á milli sín sem vildi heyra golfsöguna!
{ 1 -.-afe- ' nyl '1 I f ^
mmmm 3."
3m\í lyl . | 11 I
FJÖRÍ
FYRIRTÆKJA
MÓTIGS
Múr og Málningar-
þjónustan varð í efsta
sæti í Fyirtækjamóti
GS sem fram fór á Hólmsvelli
í Leiru si. föstudag. Húsanes
varð i 2. sæti, Trésmiðja
Madda og Guðna í þriðja sæti
og IGS, Keflavíkurflugvelli í 4.
sæti. Hluti verðlaunahafa sést
hér á myndinni, allir glaðbeit-
tir enda verðlaun óvenju glæsi-
leg.
18
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!