Morgunblaðið - 04.07.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 04.07.2016, Síða 2
2 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. EM Í FÓTBOLTA KARLA MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016 Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Mikill mannfjöldi safnaðist saman þar sem leikur Frakklands og Íslands var sýndur á risaskjá. Um 3.000 manns voru samankomin á Rútstúni í Kópavogi og annar eins fjöldi kom saman í Garðalundi á Akranesi. Um 2.000 manns sáu leikinn á Thorsplani í Hafnarfirði og 700-800 komu saman á Stakkagerðis-túninu í Vestmannaeyjum. Á Ráðhústorginu á Akur- eyri var mikill fjöldi. Ekki var talið á Arnarhóli en þar var mikill mannfjöldi sem og á Ingólfs- torgi. Þrátt fyrir grátleg úrslit var fólk glatt og stolt af sínu landsliði. „Thorsplanið var troðið af fólki. Við áætlum að hátt í 2.000 manns hafi verið á svæðinu að fylgjast með strákunum okkar og stemningin var mjög góð,“ segir Ár- dís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnar- fjarðarbæjar. Yndisleg stemning Hallgrímur Ólafsson, verkefnisstjóri írskra daga á Akranesi, segir að mikil stemning hafi verið í Garðalundi þar sem búið var að koma upp 300 tommu skjá. „Það var alveg pakkað af fólki. Það búa hérna um 7.000 manns og hér voru alveg ábyggilega hátt í 3.000 manns. Það var mikil stemning hérna fyrir leik en hún dofnaði aðeins þegar á leið fyrri hálfleikinn. Líklega eins og annars staðar. En það var mjög gott veður, heitt, logn og yndisleg stemn- ing.“ Heimurinn þakkaði fyrir Það voru ekki bara Íslendingar sem hvöttu íslenska landsliðið áfram því á samfélags- miðlum fengu bæði Ísland og landsliðið góðar kveðjur. Stórleikarinn Russell Crowe sendi hlýjar kveðjur, sparkspekingurinn Gary Line- ker þakkaði Íslandi fyrir magnaða frammi- stöðu og svona mætti lengi telja. Verslunar- keðjan Iceland birti auglýsingu á vef sínum eftir tapið þar sem allir starfsmenn verslunar- innar tóku hið eftirminnilega víkingaklapp í landsliðsbúningi. Þá bárust fréttir frá Kanada um að íslenska samfélagið í Gimli hefði tekið sjónvörpin sín og fært þau út í garð til að horfa á leikinn. Á vefn- um cbc.ca er rætt við Lúðvík Kristjánsson, for- stjóra JYSK í Kanada, í tilefni leiksins. For- eldrar hans eru í heimsókn og í staðinn fyrir að fara í útsýnisferð bauð fjölskyldan í fótbolta- partý. „Það er enginn Íslendingur að fara að missa af þessum leik,“ sagði forstjórinn. Morgunblaðið/Ófeigur Fjölmenni Mikill fjöldi safnaðist saman á Arnarhól þar sem gleðin var við völd þrátt fyrir stórt tap. Sömu sögu var að segja úr mörgum öðrum bæjarfélögum. Glatt á hjalla þrátt fyrir tap  Mikill mannfjöldi við risaskjái sem settir voru upp til að sýna leik Frakklands og Íslands  Stemn- ingin dofnaði aðeins þegar leið á fyrri hálfleikinn  Íslendingar í Gimli settu sjónvörpin út í garð Þeir Davíð Daníelsson, Bjarni Hall- dórsson og Hlynur Magnússon voru sáttir í Kópavoginum í gærkvöldi, þrátt fyrir skellinn. Þeir voru sam- mála um að Frakkarnir hefðu verið of stór biti, en ævintýrið myndi lifa. „Þetta eru frábærar minningar sem maður fékk. Ég fór út á þrjá leiki og þetta er alveg ógleymanlegt,“ segir Hlynur. Aðspurðir segjast þeir vissir um að liðið tryggi sér sæti á næsta heimsmeistaramóti. Morgunblaðið/Þórður Sáttir Félagarnir voru sáttir með árangur- inn og eru vissir um að þeir komist á HM. EM-ævintýrið lifir um ókomin ár Spurð um líðanina í leikslok svöruðu þau Vilborg Guðmundsdóttir og Jó- hann V. Gíslason að annað væri ekki hægt en að líða vel í sólinni á Rúts- túni. „Leikurinn hefði reyndar mátt fara öðruvísi,“ bætti Vilborg við, þótt ekki væri svekkelsið mikið, enda hefðu íslensku strákarnir náð langt. Þótt þau hefðu ekki farið til Frakklands hefði Vilborg lagt hönd á plóg og tekið að sér vaktir í vinnu fyrir Frakklandsfara. Morgunblaðið/Þórður Kát Vilborg og Jóhann hefðu viljað önnur úrslit, en nutu sín vel í sólinni á Rútstúni. Allir lögðu hönd á plóg í sigurförinni Víkingaklappið, sérkenni íslenskra áhorfenda á EM, stendur upp úr að mati Arnórs Guðmundssonar. Hann segir það góða „kurteisi“ af strák- unum að „leyfa Frökkunum að vinna“ – þannig hafi þeir launað þeim gestrisnina. Þau muni þó halda með Wales, enda séu Wales- verjar lítil þjóð eins og sú íslenska. Inga Ragnarsdóttir segist hlakka mikið til að taka á móti landsliðinu þegar það komi til landsins aftur. Morgunblaðið/Þórður Stuð Þau Elías, Guðlaugur, Arnór, Eva Diljá og Inga fögnuðu árangrinum á Rútstúni. Hlakka til að taka á móti strákunum „Takk fyrir, strákar, við erum ótrú- lega stolt af ykkur,“ segja Hörður Sigurðsson og Kristín Pálsdóttir. „Þið eruð frábærir,“ bæta Arnar Páll og Sigurður Kári við. Fjölskyldan lagði leið sína á Rúts- tún í gær til að horfa á viðureignina við Frakkland. „Liðsheild, seigla og það að gefast aldrei upp kom okkur svona langt,“ sagði Kristín. „Það er búið að vera gaman í þrjár vikur,“ bætti Hörður við. Morgunblaðið/Þórður Kát Hörður Sigurðsson, Kristín Pálsdóttir, Arnar Páll og Sigurður Kári Harðarsynir „Búið að vera gam- an í þrjár vikur“ „Það er ekki annað hægt en að vera ánægður með þessa frammistöðu,“ segir Gunnþór Jens Matthíasson. „Það var samstaða og góður andi í liðinu,“ segir Gunnþór. Hann er viss um að þessi glæsi- legi árangur eigi eftir að hafa lang- varandi áhrif hér heima. „Maður hefur séð það hversu gífurleg aukn- ing hefur orðið á þátttöku í yngri flokkum handbolta og körfubolta í kjölfar velgengni á stórmótum“ Morgunblaðið/Þórður Bros Gunnþór Jens Matthíasson lagði leið sína á Rútstún til að fylgjast með leiknum. „Það er ekki hægt að vera óánægður“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.