Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 21
skylda, ég sendi innilegar sam- úðarkveðjur til ykkar allra. Guð veri með ykkur í þessari miklu sorg. Eygló Þorgeirsdóttir (Lilla). Bryndís og ég kynntumst í húsmæðraskólanum á Varma- landi árið 1970. Bryndís var um- hyggjusöm og hlý en jafnframt ósérhlífinn baráttujaxl og stóð keik sama hvaða verkefni henni voru falin. Bryndís var mikilvægur hlekkur í hópnum hjá okkur skólasystrum, en við höfum hald- ið saman saumaklúbb frá 1980. Það má segja að Bryndís eigi heiðurinn af saumaklúbbnum okkar. Hún var í góðu sambandi við margar okkar eftir að námi á Varmalandi lauk. Bryndís átti oft upptökin að skemmtilegheitum og skipulagði margar uppákomur fyrir okkur. Í maí 2010 hringdi hún í mig, hún var ásamt Guð- mundi að halda upp á stórafmæli hans á Hótel Hamri í Borgarfirði og fékk þá snjöllu hugmynd að þetta væri einmitt staðurinn til að halda upp á 40 ára útskriftar- afmælið okkar. Mín kona fór í að semja við staðarhaldara og áttum við þar saman frábæra helgi í apríl ári seinna. Það lýsir henni svo vel að hún var búin að skipu- leggja næstu ferð fyrir okkur um Suðurlandið sem átti að fara 20. maí sl. en ákveðið var að fresta ferðinni þar til hún næði bata. Nú er það okkar að passa að ferðin verði farin í haust. Ég á eftir að sakna mikið sam- tala okkar Bryndísar sem fóru í gegnum árin oft fram í síma, til Svíþjóðar, Patreksfjarðar eða á Laugarvatn. Bryndís átti það til að koma óvænt við í heimsókn til mín. Oft færandi hendi með nýaf- skorin blóm úr Mosfellsdalnum. Erfiðasta verkefnið sem Bryn- dísi var falið var glíman við krabbameinið sem hún ætlaði sér að sigrast á. Ég dáðist að styrk hennar og æðruleysi þegar hún sagði við mig núna í vor, ég óttast ekkert er bara sátt en hef ákveð- ið að reyna allt. Við Sturla sendum Guðmundi og fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Elsku vinkona mín, megi gæf- an þig geyma og sól lýsa þína leið. Þangað til næst, Ingibjörg Haralds. Það er svo óraunverulegt að setjast niður og skrifa þessa stuttu minningu um þig, elsku Bryndís. Eftir erfiða baráttu ertu farin frá okkur allt of snemma en við trúðum því að þú myndir hafa betur. Minningarnar eru ótalmargar, en við tengdumst þegar ég var aðeins sex mánaða og þú sagðir mér að eitt það fyrsta sem pabbi hefði sagt þér væri að hann ætti litla dóttur og var það ekki síst fyrir þína tilstilli að samskiptin voru eins og þau voru. Síðustu ár hafa samskiptin verið mikil og góð, hittumst við oft þótt langt væri á milli okkar og þér fannst nú ekki mikið mál að taka strætó norður bara til að hittast, spjalla og prjóna. Samtöl okkar í síma voru nánast á hverj- um degi og þar ræddum við um hvað við vorum með á prjónun- um, barnabörnin og allt milli himins og jarðar og veittum hvor annarri styrk í því sem við vorum að kljást við. Þú vildir fylgjast vel með Kristófer og Svövu Ósk, sem þú varst ákaflega stolt af. Síðast komstu norður í útskrift Svövu Óskar og varst svo glöð með dag- inn eins og við öll. Síðustu áramót komum við svo suður og mætti þá allur skarinn í mat á Laugarvatn á nýársdag, þar voru öll börnin og barnabörnin komin saman, sem ekki hafði gerst í langan tíma og er sá dagur ómetanlegur í minningum núna. Það er mér mikilvægt að hafa getað komið nokkrum sinnum suður frá því að þú veiktist í febrúar, bæði á spít- alann þar sem þú sagðir að þér þætti gott að heyra glamrið í prjónunum og hafa mig hjá þér og einnig á Laugarvatn. Ég trúði því ekki þegar ég kom suður 18. júní að þetta væru þínir síðustu sólarhringar, en hópurinn þinn, sem þú sagðir réttilega að teldi fjóra, sat hjá þér allt til enda og reyndi að veita þér styrk og kraft. Elsku Bryndís, ég hafði svo margt fleira að segja en læt þetta duga. Við höldum áfram af sama krafti og þú hefðir gert og pössum hvert upp á annað. Takk fyrir allt. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Sólveig Guðmundsdóttir. Elsku, hjartans Bryndís mín Þetta verður víst síðasta bréfið mitt til þín. Sennilega hefur mörgum fundist það fyndið, sér- staklega þegar ég var krakki, að ég væri að skrifast á við vinkonu hennar mömmu. En mér fannst það dásamlegt. Og þegar þú last upp úr bréfunum mínum í brúð- kaupinu mínu, það var óborgan- legt. Mér datt ekki í hug að þú hefðir geymt bréfin frá mér! Allt frá upptalningu á einkunnum til kvartana yfir foreldrum mínum. Þú hefur sennilega verið eins og dagbókin mín og stundum jafnvel sálfræðingur. Þú varst nú ekki sérlega dugleg að skrifa mér til baka en þú lést mömmu alltaf skila því að þér þætti vænt um bréfin og hvattir mig til að halda áfram að skrifa. Þú lést mér líða eins og ég skipti máli og eins og kynslóðabilið gerði það ekki. Takk fyrir það. Þú og Gummi voruð alltaf uppáhaldsfrænka mín og -frændi. Þið hélduð áfram að vera það eftir að ég uppgötvaði að við værum ekkert skyld! Það var í uppáhaldi að heimsækja ykkur og fá ykkur í heimsókn. Það var einhver gleði og kraftur í kring- um ykkur. Þú varst alltaf svo flott. Ég sé þig fyrir mér með rauðar varir og rauðar neglur. Alltaf svo töff líka. Okkur mús- unum að vestan fannst oft erfitt að þurfa að heimsækja fjölmarga ættingja þegar við fórum í okkar árlegu borgarferð. En það var alltaf svo gaman að hitta ykkur. Mér er sérlega minnisstætt þeg- ar þið gáfuð okkur pening svo við gætum farið út í sjoppu í Breið- holtinu og keypt okkur nammi. Það var æði. Og þið svo miklir æðibitar. BabyBjörn, pylsuvagn í Svíþjóð, sjoppa á Laugarvatni Alltaf á fullu. Flottust. Annars er allt gott að frétta af mér. Komin í land. Því ævintýri lokið. Börnin búin að endur- heimta mömmu. Þau blómstra og eru svo skemmtileg. Stelpan mín spurði mig fyrir ekki svo margt löngu: „Mamma, hvað gerist þeg- ar maður deyr?“ Ég sagði henni að það væri misjafnt hverju fólk tryði. Sumir tryðu á guð og himnaríki. Sumir tryðu að við hittum látna ættingja aftur. Sum- ir tryðu að við endurfæddumst Þá spurði hún mig hverju ég tryði. Ég sagði henni að ég tryði á núið og að við ættum að leggja okkur fram um að skapa fallegar minningar því þær lifðu með manni alla tíð. Einbeita sér að líf- inu því allt annað væri óvíst. Þú skilur svo sannarlega mikið eftir þig, Bryndís mín. Endalaust af dásamlegum minningum í hjört- um allra sem þekktu þig og elsk- uðu. Þú lifir áfram með okkur. Það er eitt sem víst er. Mér finnst erfitt að kveðja þig. Ég á eftir að sakna þín. Ég á aldrei eftir að gleyma þér. Bless, Bryndís mín! PS. Ég bið að heilsa ef þetta er svo þannig eftir allt saman. Og þá sjáumst við síðar! Þín (penna)vinkona, Sigrún. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016 Smáauglýsingar 569 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Byggingavörur TIL SÖLU Ca 1200 stk. undirsláttastoðir í ýmsum lengdum. Geymslurekkar fylgja. Guðmundur sími 893-0003 TIL SÖLU Mótabitar / dokabitar: 1400m lítið notaðir 20x4,90 dokabitar 320m/60 stk. 24x530 dokabitar. Guðmundur sími 893-0003 Ýmislegt 7.900 kr. 5.900 kr. 3.950 kr. 6.500 kr. 6.500 kr. 5.200 kr. Fylgstu með á Facebook Frú Sigurlaug Mjóddin s. 774-7377 Sundbolir • Tankini Bikini • Náttföt Undirföt • Sloppar Inniskór • Undirkjólar Aðhaldsföt Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Frú Sigurlaug Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 10.9 00. - 10.9 00. - 10.9 00. - 11.9 00. - Mikið úrval af sundfatnaði Teg: 6054 Mjúkir og þægilegir „ballerínuskór“ úr leðri og skinn- fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36 - 42 Verð: 13.950.- Teg: 6054 Mjúkir og þægilegir „ballerínuskór“ úr leðri og skinn- fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 37 - 42 Verð: 13.950.- Teg: 6053 Mjúkir og þægilegir „ballerínuskór“ úr leðri og skinn- fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36 - 42 Verð: 14.685.- Laugavegi 178 Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, lokað á laugardögum í sumar. Sendum um allt land Erum á Facebook. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Bingó kl. 13. Garðabær Heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu kl. 14-15.50. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13, félagsvist kl. 20. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Púttvöllur- inn opinn, kúlur og kylfur á staðnum. Hádegismatur kl. 11.30. Prjóna- klúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir. Íþróttafélagið Glóð Glóðargangan á þessu sumri 2016 verður frá Digranesi, Skálaheiði 2, á mánudögum kl. 10, þar til annað verður ákveðið. Upplýsingar í síma 564-1490 og á www.glod.is Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í síma 411-2760. Seltjarnarnes Tölvunámskeið í Valhúsaskóla kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11. Ganga frá Skólabraut kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.