Morgunblaðið - 04.07.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.07.2016, Blaðsíða 4
4 KRÍT 7. júlí í 11 nætur Netverð á mann frá kr. 145.395 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 189.895 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. Porto Platanias Village Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð irá sk ilja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 145.395 m/allt innifalið Allt að 30.000kr. Ein vinsælasta gistingin afsláttur á mann EM Í FÓTBOLTA KARLA MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016 ’ Íslenska EM-ævintýrið hlaut grimman endi. Það voru hinir fjórir stóru, Olivier Giroud, Antoine Griez- mann, Dimitri Payet og Paul Pogba, sem herjuðu á Stade de France í fjórð- ungsúrslitum Evrópumeistaramótsins. Fyrir hinar óvæntu íslensku hetjur voru endalok mótsins heldur aum. Varnarlega séð var frammistaðan hroð- virknisleg og þrýstinginn í skyndisókn- unum vantaði, en hvort tveggja hafði fleytt liðinu í fjórðungsúrslitin. En hinir átta til tíu þúsund íslensku stuðningsmenn stóðu við sitt, líkt og þeir hafa gert alla keppnina, og eiga skilið gull fyrir. Og móttökurnar sem hinn reynslumikli Eiður Guðjohnsen hlaut þegar hann gekk inn á völlinn á 83. mínútu voru gífurlegar.“ Verdens Gang Au revoir, Ísland Skúli Halldórsson sh@mbl.is „Það eru miklar tilfinningar á þess- ari stundu svo það er erfitt að svara þessu blákalt,“ segir Geir Þor- steinsson, formaður Knattspyrnu- sambands Íslands, spurður um gengi íslenska liðsins á Evrópu- meistaramótinu. „Þetta mót hefur verið stórkostleg upplifun fyrir okkur og fyrir Ísland, og gríðarleg upplyfting fyrir ís- lenska knattspyrnu.“ Töluvert hefur verið fjallað um háar fjárhæðir sem KSÍ fær frá UEFA fyrir gott gengi liðsins á mótinu en Geir segist lítið hafa leitt hugann að því. „Þessi keppni, fyrir mitt leyti, snerist fyrst og fremst um knattspyrnu.“ Geir segir að frábært væri að fá fleiri unga knattspyrnuiðkendur í kjölfar mótsins. „Ég er klár á því að upp vex nú ný kynslóð sem upplifir þetta og mun stefna ennþá hærra. Frakkar voru því miður of stórir fyr- ir okkur en við lærum af þessari reynslu og reynum að fara skrefi lengra næst,“ segir Geir og bætir við að núna sé stefnan sett á næsta heimsmeistaramót. „Það er ekkert annað sem kemur til greina að mínu viti. Ég sé bara fyrir mér glæsta framtíð íslenskrar knattspyrnu.“ Þá segist hann hafa tekið á móti fjölda heillaóska hvað- anæva úr knattspyrnuheiminum. „Það sem hefur líka vakið gríðar- mikla athygli er framganga okkar stuðningsmanna. Það er það sem kannski eftir stendur, sá ótrúlegi stuðningur sem við fengum hér í Frakklandi. Maður verður að taka hattinn ofan fyrir íslensku stuðn- ingsmönnunum. Þeir hafa sett mik- inn svip á keppnina og hvernig þeir héldu áfram í stúkunni lengi eftir að leiknum hafði lokið, vakti einnig verulega athygli. Það segja margir við mig að fram- ganga Íslendinga, bæði innan og ut- an vallar, hafi verið sigur fyrir evr- ópska knattspyrnu.“ Förum skrefi lengra næst  Framgangan sögð sigur fyrir evrópska knattspyrnu  Stefnan nú sett á HM Geir Þorsteinsson Stemmingin var góð hjá þessum fríða flokk eftir leikinn. Sögðu þau að jafnvel þótt svo hefði farið sem fór, væri framganga landsliðsins sigur fyrir íslensku þjóðina. „Það voru auðvitað vonbrigði að tapa fyrir Frökkum, en við getum ekki kvartað yfir þessu. Þetta var auð- vitað sigur, þrátt fyrir allt,“ sagði Jökull Ingi Þorvaldsson. Aðspurð hvað hefði staðið upp úr á mótinu, svöruðu þau öll einum rómi að leikur Íslands gegn Eng- landi hefði slegið öll met. „Ég er ekki mikill fótboltaaðdáandi, en ég varð ótrúlega spenntur,“ sagði Jök- ull Ingi, en heilt yfir telja þau að víkingaklapp íslensku stuðnings- mannanna hafi slegið í gegn, bæði hér á landi og erlendis. „Stemm- ingin í liðinu og í stúkunni er alveg frábær,“ sagði Kristín Trang. Miðvarðaparið Ragnar Sigurðs- son og Kári Árnason stóð sig best í landsliðshópnum að mati krakk- anna og voru þau öll sammála um að liðið hefði í leikjum sínum spilað vörn í heimsklassa. Morgunblaðið/Þórður Flott Anna Kristjana, Elín Mist, Vaka, Kjartan, Ólöf Arna, Kristín, Emilía, Jökull og Ari. „Þetta var auðvitað sigur, þrátt fyrir allt“ ’ Öllu lauk þessu með stóru „HÚH“ í íslensku horni stúkunnar í París, þar sem endi var bundinn á ævintýri Íslands á Evrópumeistaramótinu. Á regnvotum vellinum voru frönsku sendingarnar eitraðar og Íslendingar gátu ekki haldið í við Frakka, þrátt fyrir að þeir hafi verið meira innan vítateigs Frakka heldur en Frakkar í þeirra eigin. Og hví ætti íslenska liðið ekki að vera stolt af árangri sínum, jafnvel þó að gest- gjafarnir Frakkar hafi sigrað þá 5-2 í leik um sæti í undanúrslitum, þar sem Þjóð- verjar bíða nú eftir stórum bardaga.“ Politiken Hví ætti liðið ekki að vera stolt? ’ Portúgalski fyrirliðinn Cristiano Ronaldo sagði súr í bragði að Ís- land „myndi ekki afreka neitt“ eftir 1-1 jafnteflið í riðlinum. Hversu rangt hafði hann fyrir sér? Afrek Íslendinga á Evr- ópumeistaramótinu hafa ekki aðeins dreift vitneskjunni um íbúafjölda lands- ins á undraverðan hátt (329.000 ef þú vissir það ekki örugglega) heldur hrifið með sér heila þjóð og jafnframt verið ein besta sigursaga móts sem nauðsyn- lega þurfti slíkar sögur. Jafnvel eftir að þeir lentu 4-0 undir á móti hinum blá- klæddu sýndu þeir skapgerð sína og ástríðu með því að vinna seinni hálfleik- inn 2-1, og allan tímann léku þeir undir hvatningarópum sinna stórfenglegu stuðningsmanna, sem gáfu mótinu lófaklappið ótrúlega.“ BBC Sýndu skapgerð sína og ástríðu Morgunblaðið/Þorgeir Baldurss Akureyri Fjöldi ungra knattspyrnumanna horfði á leikinn á Ráðhústorginu á Akureyri og tóku undir þegar þjóðsöngurinn var leikinn fyrir leik. Morgunblaðið/Þórður Kópavogur Stemningin dofnaði örlítið þegar leið á fyrri hálfleikinn og áttu sumir erfitt með að horfa á öll ósköpin. Trúðu vart sínum eigin augum. Morgunblaðið/Óskar Pétur Fri Vestmannaeyjar Það er erfitt að horfa upp á hetjurnar sínar tapa. Ljósmynd/Hallgrímur Ólafsson Akranes Hátt í 3.000 manns voru samankomin í Garðalundi þar sem sólin skein og nutu margir bæjarbúar veður- blíðunnar. Settur var upp 300 tommu skjár og var stemningin yndisleg að sögn verkefnastjóra Írskra daga. Fjöldi Íslendinga nýtti sér risaskjái til að horfa á leikinn AFP Arnarhóll Mörgum þótti leikurinn erfiður áhorfs eftir sigurgöngu Íslendinga á EM. Morgunblaðið/Golli Spenna Mikill fjöldi Íslendinga, stórra sem smárra, fór út til að sjá hetjurnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.