Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Fyrirtækjaskattur í Bretlandi gæti
lækkað niður fyrir 15% ef hug-
myndir George Osborne fjár-
málaráðherra verða að veruleika.
Í viðtali við Financial Times legg-
ur Osborne fram áætlun í fimm lið-
um sem miðar að því að laða að fyr-
irtæki og fjárfestingu og vega upp
á móti þeim óróa og neikvæðni sem
gætt hefur eftir að niðurstöður
Brexit-kosningarinnar lágu fyrir.
Í dag leggja bresk stjórnvöld 20%
skatt á hagnað fyrirtækja en ef
skattprósentan færi undir 15% yrði
það lægra en hjá nokkru öðru leið-
andi hagkerfi. Í Mið- og Vestur-
Evrópu eru aðeins Írland og Liech-
tenstein með lægri skatta, en bæði
leggja 12,5% skatt á fyrirtæki. Seg-
ir FT að svona mikil lækkun gæti
farið illa í fjármálaráðherra ESB,
sem vilja ekki hleypa af stað skatta-
samkeppni á milli landa Evrópu.
Aðrir liðir í áætlun ráðherrans
snúa að því að stuðla að aukinni
fjárfestingu frá Kína, liðka fyrir
lánveitingum, efla fjárfestingar í
norðurhluta Bretlands og styrkja
tiltrú umheimsins á fjárhag lands-
ins.
Áður hafði ráðherrann varað við
að útganga úr ESB myndi kalla á 30
milljarða punda niðurskurðar- og
skattahækkunarpakka en nú hefur
hann tekið slík plön út af borðinu af
ótta við að þau geti komið mörk-
uðum í enn meira uppnám.
ai@mbl.is
Osborne vill lækka
skatta á fyrirtæki
AFP
Freisting Með lægri sköttum gæti Osborne vegið upp á móti neikvæðum
áhrifum Brexit en mögulega styggt fjármálaráðherra ESB-ríkjanna.
4. júlí 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.36 122.94 122.65
Sterlingspund 164.66 165.46 165.06
Kanadadalur 94.51 95.07 94.79
Dönsk króna 18.327 18.435 18.381
Norsk króna 14.613 14.699 14.656
Sænsk króna 14.465 14.549 14.507
Svissn. franki 125.3 126.0 125.65
Japanskt jen 1.1886 1.1956 1.1921
SDR 171.03 172.05 171.54
Evra 136.37 137.13 136.75
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.3847
Hrávöruverð
Gull 1331.75 ($/únsa)
Ál 1635.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.21 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
in sér vel ef leigjandi er í húsinu sem
annars þyrfti að samræma alla sýn-
ingartíma með,“ útskýrir hann. „Við
sjáum líka fyrir okkur nýja mögu-
leika í að geta sýnt íslenskar eignir
kaupendum sem búsettir eru erlend-
is.“
Nýtt markaðstæki
Fasteignasala Reykjavíkur er
fyrsta fasteignasalan hér á landi til að
nýta 3D Scene og segir Brynjólfur að
auk þess að nota tæknina við sölu-
störfin vonist fyrirtækið til að geta
boðið verslunum, veitingastöðum,
listasöfnum, hótelum og ríkisstofnun-
um að láta ljósmynda hjá sér rýmin í
markaðs- og kynningartilgangi.
Spurður um veikleika tækninnar
nefnir Brynjólfur að myndavélin
vinni best í lokuðum rýmum en henti
ekki eins vel fyrir útimyndir. „Við
stundum líka þau vinnubrögð að fara
vel yfir íbúðirnar áður en byrjað er að
mynda og fjarlægja persónulega
muni og aðra hluti sem betra er að
leyfa ekki hverjum sem er að sjá á
netinu, og jafnvel að við sleppum til-
teknum herbergjum. Þá gera lögin
vitaskuld enn þá kröfu að ekki má
selja einstaklingi fasteign nema hann
eða umboðsmaður hans hafi skoðað
eignina í eigin persónu.“
Brynjólfur segir 3D Scene-mynda-
vélina hafa verið stóra fjárfestingu en
þrívíddarmyndun sé þó innifalin í 2%
sölulaunum fasteignasölunnar. „Þá
vorum við að bæta við nýrri þjónustu
á slóðinni www.minuta.is, þar sem
fólk getur fengið söluverðmat á eign-
um á innan við mínútu. Allt eru þetta
skref í þá átt að nýta tæknina til að
auðvelda fasteignaviðskipti,“ bætir
hann við.
Geta skoðað hvern krók
og kima á tölvuskjánum
Nú má gera nákvæmt tölvumódel af íbúðum og skoða á tölvuskjá eða í sýndar-
veruleika Sparar kaupendum sporin og minnkar umstangið fyrir seljendur
Þjónusta Brynjólfur Þorkelsson
sýnir sérhæfða myndavélina.
Módel Horft ofan á þrívíddarljósmynd af íbúð sem Fasteignasala Reykja-
víkur er með til sölu. Fremst á myndinni er stofan og pallurinn er til hægri.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Fólk getur sett á sig sýndarveru-
leikagleraugun og er upplifunin þá al-
veg mögnuð; eins og að vera staddur
inni í íbúðinni. Við sjáum fyrir okkur
að geta boðið upp á þá þjónustu í
framtíðinni að væntanlegir fasteigna-
kaupendur koma hingað á skrifstof-
una til okkar og fá að skoða þær eignir
sem þeir hafa áhuga á í sýndarveru-
leika.“
Þannig lýsir Brynjólfur Þorkelsson
nýjustu þróuninni í sölu fasteigna.
Brynjólfur er framkvæmdastjóri
Fasteignasölu Reykjavíkur, en þar
var nýlega tekin í notkun ný þrívídd-
armyndatækni sem býr til mjög ná-
kvæma sýndarmynd af eignum til
sölu. Hægt er að skoða eignirnar í
sýndarveruleika, eins og Brynjólfur
lýsir, eða einfaldlega skoða þrívíddar-
myndina á tölvuskjá og er upplifunin
þá ekki ósvipuð því sem fólk á að venj-
ast úr Street View á Google Maps.
Tvo tíma að mynda íbúðina
„Tæknin er glæný og heitir 3D
Scene. Myndavélin er á stærð við
símaskrá, hefur að geyma sex linsur
og innrauða skynjara sem mæla fjar-
lægðir á meðan umhverfið er ljós-
myndað. Myndavélin stendur á þrí-
fæti, snýst í heilan hring og talar allan
tímann við þar til gert spjaldtölvufor-
rit. Forritið og myndavélin vinna sam-
an og segja til um hvar þarf að stilla
myndavélinni upp næst til að halda
myndatökunni áfram og þannig má
smátt og smátt púsla saman þrívídd-
armynd af heilli íbúð.“
Að sögn Brynjólfs þarf smávegis
eftirvinnslu til að ganga frá þrívíddar-
módelinu og þá tekur lengri tíma að
mynda fasteign í þrívídd en með
venjulegri myndavél. Segir hann rétt
að miða við að fyrir 100 fm íbúð taki
ljósmyndunin á bilinu 1,5 til 2 klst.
„En með þessu tekst okkur að bæta
þjónustuna við viðskiptavinina. Þeir
sem koma og líta á íbúðina með eigin
augum eru búnir að skoða hana vel í
þrívídd og eru reiðubúnir að taka
kaupákvörðun af meira öryggi. Fyrir
seljandann þýðir tæknin minna um-
stang við að taka á móti forvitnum
kaupendum. Munar ekki síst um
þessa tækni við sölu sumarbústaða og
annarra eigna sem kalla á langan
akstur, og sömuleiðis kemur þrívídd-
● Stjórnir tveggja
stærstu banka Abú
Dabí hafa sam-
þykkt að sameina
bankana. Morgun-
blaðið greindi frá
því fyrir tveimur
vikum að First Gulf
Bank og National
Bank of Abu Dhabi
ættu í samruna-
viðræðum. Mark-
aðsvirði hins sameinaða banka verður 29
milljarðar dala og verður bankinn sá
stærsti í Mið-Austurlöndum, með starf-
semi í 19 löndum. Að sögn FT er um að
ræða stærsta bankasamruna síðan
fjármálakreppan reið yfir árið 2008.
Lækkað heimsmarkaðsverð olíu hefur
haft neikvæð áhrif á rekstur banka við
Persaflóa og miðar samruninn meðal
annars að því að ná fram hagræðingu í
rekstri og að skera niður útgjaldaliði.
Bankinn mun starfa undir nafni National
Bank of Abu Dhabi. ai@mbl.is
Risabanki verður
til í Abú Dabí
Útibú National
Bank of Abu Dhabi.
STUTT