Morgunblaðið - 04.07.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Vatnskæld
kælitæki
Einstaklega hljóðlát
tæki fyrir t.d. kerfis-
loft eða á vegg
hitataekni.is
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500
• Frí heimsending lyfja
• Góð kjör fyrir eldri
borgara og öryrkja
• Gerðu verðsamanburð
• Lyfjaskömmtun á góðu verði
góð þjónusta
ogPersónuleg
Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00
Heilbrigð skynsemi
Heilsugæsla
efra Breiðholts
Gerðuberg
Lyf á lægra verði
Flóð eru algeng á regntímabilinu í
Suður-Kína en rignt hefur sér-
staklega mikið þetta árið og hafa
mörg svæði þurft að þola ofsafengið
regn undanfarnar vikur.
Stjórnvöld gáfu út viðvörun um
helgina þar sem íbúar eru varaðir
við enn meira regni í mið- og suður-
hluta Kína á komandi dögum.
Regnið olli aurskriðu á föstudag
sem varð að minnsta kosti tíu að
bana, samkvæmt upplýsingum yfir-
valda. Átti hún sér stað snemma
morguns og gróf með sér 29 íbúa
Guizhou-héraðs, að því er ríkis-
fréttastofan Xinhua greinir frá.
Óvenjumikið regn í Suður-Kína veldur banvænum aurskriðum
Einn veð-
ur og ann-
ar skýlir
AFP
Blautt Þetta par var á leið yfir mikla umferðargötu í borginni Wuhan í Hubei-héraði í Suður-Kína í gærdag.
Mannfjöldi kom
saman í New
York í gærdag til
að minnast Elie
Wiesel, eins eft-
irlifenda helfar-
arinnar og hand-
hafa friðar-
verðlauna
Nóbels, sem lést
á laugardag 87
ára að aldri.
Wiesel, sem fæddist í Rúmeníu,
hefur lengi verið þekktur fyrir
ötula vinnu sína við að halda á lofti
minningu þeirra gyðinga sem myrt-
ir voru í síðari heimsstyrjöldinni.
Þekktastur er hann fyrir bók
sína, Nótt, þar sem hann greindi frá
reynslu sinni af útrýmingarbúðum
nasista á stríðsárunum.
Wiesel var jarðaður í gær að lok-
inni athöfn í bænahúsi gyðinga á
Manhattan.
Nóbelsverðlauna-
hafinn Elie Wiesel
látinn 87 ára að aldri
Elie Wiesel
Tyrkneskt skip hlaðið hjálpar-
gögnum fyrir íbúa Gaza kom til
hafnar í Ísrael í gær, viku eftir að
nágrannaríkin tvö sömdu um að
taka upp stjórnmálasamband að
nýju, en því var slitið eftir banvæna
árás ísraelskra sérsveitarmanna á
skipalest Tyrkja árið 2010.
Skipið lagðist að bryggju í Ash-
dod-höfninni eftir að hafa lagt af
stað frá Tyrklandi á föstudag, sam-
kvæmt heimildum fréttaveitu AFP.
Undir panömskum fána voru um
borð í skipinu ellefu þúsund tonn
hjálpargagna, þar á meðal matar-
pakkar, hveiti, hrísgrjón, sykur og
leikföng, að því er ríkisfréttastofa
Tyrklands greinir frá.
Gögnin verða skoðuð af ísraelsk-
um yfirvöldum áður en þau verða
send til Gaza-svæðisins, sem sætir
herkví af hálfu Ísraela í kjölfar
þriggja stríða á undanförnum átta
árum. sh@mbl.is
Tyrkir senda hjálp
Skip með hjálpargögn til íbúa Gaza
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Að minnsta kosti 119 manns voru
myrtir þegar maður sprengdi sig í
bíl sínum á fjölfarinni verslunargötu
í Bagdad í gær. Þetta er mann-
skæðasta árás sem gerð hefur verið
í höfuðborg Íraks á árinu. Spreng-
ingin varð í Karrada-hverfinu
snemma morguns þar sem mikill
mannfjöldi hafði safnast saman til
að kaupa inn matföng vegna hátíða-
halda sem marka lok Ramadan-föst-
unnar.
Aðeins er vika síðan íraskar ör-
yggissveitir náðu aftur borginni
Fallujah úr höndum hryðjuverka-
samtakanna sem kenna sig við Ríki
íslams. Er Mosul eina íraska borgin
sem er á valdi samtakanna. Þá
særðust að minnsta kosti 140 til við-
bótar, samkvæmt upplýsingum frá
yfirvöldum í Bagdad.
Sór að refsa þeim seku
Forsætisráðherra Íraka, Haider
al-Abadi, fór á vettvang árásarinnar
og sór að „refsa“ þeim sem sök ættu
á henni, að því er fram kemur í til-
kynningu frá embætti hans.
Í kjölfar sprengingarinnar kvikn-
aði í fjölda húsa og unnu slökkviliðs-
menn enn að því að slökkva eldana
um tólf tímum síðar. Fréttamaður
AFP sá til manna bera lík tveggja
fórnarlamba út úr einni bygging-
anna á meðan hópur fólks stóð
álengdar í brakinu á götunni og
horfði á.
Hussein Ali, 24 ára fyrrverandi
hermaður, segir sex starfsmenn í
verslun fjölskyldu sinnar hafa verið
drepna í árásinni, en lík þeirra voru
svo illa brunnin að ekki var hægt að
bera kennsl á þau.
„Ég mun snúa aftur á fremstu
vígstöðvarnar. Að minnsta kosti þar
þekki ég óvininn svo ég get barist
við hann. En hérna heima, þá veit
ég ekki hvern ég á í höggi við,“ seg-
ir Ali í samtali við AFP.
Styrki aðeins staðfestuna
Ríki íslams hefur lýst árásinni á
hendur sér og segja að hún hafi ver-
ið framin af Íraka og sé hluti „ör-
yggisaðgerða“ samtakanna.
Þá segja þau skotmarkið hafa
verið sjía-múslimar, sem eru í
meirihluta í landinu, en súnní-músl-
imar líta á þá sem villutrúarmenn
og ráðast reglulega á þá í Bagdad
og annars staðar.
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna
í Írak, Jan Kubich, fordæmdi árás-
ina sem svívirðilegt heigulsverk af
dæmalausri stærðargráðu. Kallar
hann eftir því að yfirvöld dragi þá
seku til ábyrgðar.
Þá segja yfirvöld að önnur
sprenging í norðurhluta Bagdad
hafi orðið að minnsta kosti einum að
bana og sært fjóra í gær, en orsök
hennar er enn ókunn.
Talsmaður varnarmálaráðs
Bandaríkjanna segir að árásirnar
„styrki aðeins staðfestu okkar í að
styðja írösku öryggissveitirnar þar
sem þær berjast til að ná aftur
stjórn á svæðum landsins.“
AFP
Sorg Íraskir menn syrgja látna ástvini eftir að þeir misstu fimm fjölskyldumeðlimi í sjálfsmorðssprengjuárásinni.
Sprengingin varð í verslunarhverfinu Karrada þar sem mikill mannfjöldi hafði safnast til að kaupa matföng.
Á annað hundrað látn-
ir eftir sprengjuárás
Svívirðilegt heigulsverk, segir sendifulltrúi SÞ í Írak
Óvinur í felum
» „Ég mun snúa aftur á
fremstu vígstöðvarnar. Að
minnsta kosti þar þekki ég
óvininn svo ég get barist við
hann. En hérna heima, þá veit
ég ekki hvern ég á í höggi við.“