Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gert er gert, nú er rétti tíminn til að
líta fram á við. Leyfðu öðrum að njóta með
þér og hóaðu í unga sem aldna til að eiga
með góða samverustund.
20. apríl - 20. maí
Naut Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér
sé mikil raun að ræða álit þitt á því verðurðu
að gera það. En varastu samt að fara yfir
strikið. Stundum má satt kyrrt liggja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér hættir til að leggja of mikið upp
úr yfirborði hlutanna. Gjöfin þarf ekki að vera
stór til að gleðja svo gerðu ekkert umfram
fjárhagslega getu þína.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til þess að snúa
við, þótt aðrir hafi ekki haldið áfram. Framtíð-
ardraumar þínir eru þér ofarlega í huga og því
horfirðu raunsæjum augum á alla möguleika.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur svo margt á þinni könnu að þú
þarft að gæta þess að lofa ekki upp í ermina á
þér. Vertu viðbúin/n. Kannski færðu loksins
ávísunina sem þú hefur beðið eftir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu það ekki hvarfla að þér að þú
getir borið allar heimsins byrðar. Vertu á
varðbergi, því minnsta yfirsjón kann að reyn-
ast dýr. Gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft ekkert að setja upp hundshaus
þótt ekki séu allir sammála því sem þú segir.
Leggðu gamaldags hugmyndir um rómantík á
hilluna, tímarnir eru að breytast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert eins og suðupottur og
þarft að fá útrás fyrir reiði þína. Beindu reið-
inni í líkamsrækt. Njóttu þess svo að fá þér
eitthvað virkilega gott að borða á eftir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er ekki rétti tíminn til að að-
greina sig, aðskilja eða vera einn. Taktu hlut-
unum eins og þeir eru og reyndu að gera það
besta úr stöðunni hverju sinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Oft er það svo að við miklum hlut-
ina fyrir okkur og útlitið er ekki eins svart og
okkur sýnist. Allt fer vel ef þú spilar bara af
fingrum fram.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að breyta á einhvern hátt
út af vananum í dag. Farðu þér hægt í um-
gengni við hitt kynið. Hittu vin sem alltaf fær
klikkuðustu hugmyndirnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú ert það þú sem átt að taka frum-
kvæðið og laða svo aðra til samstarfs við þig.
Svaraðu öllum símtölum, en eftir hent-
ugleika. Nú er þinn tími kominn.
Það var um aldamótin sem um-hverfismál og vernd íslenska há-
lendisins fengu vægi sem pólitískt
stórmál. Áform um að breyta Eyja-
bökkum fyrir austan í uppistöðulón
virkjunar mættu harðri andstöðu og
almenningur fór að hugsa málin upp
á nýtt. Það var í þessu andrúmi sem
Guðmundur Páll Ólafsson heitinn
setti saman hið snilldargóða rit Há-
lendið í náttúru Íslands sem kom út
árið 2000. Á marga lund er sú bók
dæmi um hvernig slíkar eiga al-
mennt að vera; textinn er meitlaður,
myndirnar fallegar og umbrotið
nánast listrænt. Margt hefur breyst
síðan þessi ágæta bók kom út – og
því er orðið beinlínis aðkallandi að
góður höfundur setji saman aðra há-
lendisbók í anda þeirrar sem Guð-
mundur gerði. En slík bók ætti þá
fyrst og síðast að vera um Ísland og
náttúru þess í allri sinni dýrð. Vík-
verja finnst komið nóg af kortabók-
um eða leiðarlýsingum fyrir flís-
peysufólk. Slík kver eru ágæt –
þannig séð – en dýpt í umfjöllun er
ekki mikil.
x x x
Af svipuðum toga og fyrrnefnd Ís-landsbók Guðmundar Páls er
áhugavert rit um þjóðgarðana í
Bandaríkjunum. The National
Parks – 100 Years of American
Splendor. Bók þessi, sem er gefin út
af forlagi National Geographic, er
skemmtilegt ferðalag um Bandarík-
in milli þjóðgarða þar. Síðustu öldina
hafa fjölmörg svæði vestra einmitt
verið gerð að þjóðgörðum, sem aftur
hafa orðið mikið aðdráttarafl í ferða-
þjónustu. Þjóðgarðastefnan helgast
raunar af því að í þjóðfélagi innflytj-
enda, eins og Bandaríkin sannarlega
eru, vantaði einhvers konar tákn
sem sameinað gætu þjóðina. Sagan
náði ekki langt aftur – en ægifögur
náttúran fyllti í þetta félagslega hol-
rúm. Forsetar sem sagan hefur
dæmt hart, til dæmis Johnson og
Nixon, voru til dæmis áfram í þjóð-
garðamálum, það er í nefndum til-
gangi. Þá verður að nefna að sumir
garðanna eiga sér ekki hliðstæður á
veraldarvísu og má þar nefna Bryce
Canyon-þjóðgarðinn í Utah, hring-
leikahúsið á hásléttunni sem Vík-
verji heimsótti á síðasta ári.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Óttast þú eigi, því að ég er með þér.
Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn
Guð. (Jesaja. 41:10)
Þetta erindi Bjarka Karlssonar áBoðnarmiði þarfnast ekki skýringa:
Á Írafelli úldinn smaug
afturgenginn Móri
dreginn upp úr dauðs manns haug,
demónískur blóri;
sníkti, rændi, lapti, laug,
lömbum drekkti, ærnar saug,
iðkandi sitt arga spaug
eigi með nokkru slóri.
Gengur af fyrrnefndum frekjudraug
sú frétt að ennþá tóri
– því reimleikanna römm er taug –
sem ráðuneytisstjóri.
Davíð Hjálmar Haraldsson sagði á
Boðnarmiði fyrir helgi: „Það sem af
er sumri hefur verið sólskin og
þurrkur hér nyrðra. Bændur kvarta
jafnvel um að erfitt sé að slá vegna
sprettunnar.
Allt grasið sem luðra hér leggst,
á ljánum það kuðlast og heggst,
það skyggir á sól
til skaða á hól
en þar er tún þurrast og sneggst.
Ólafur Stefánsson skrifar í Leir-
inn á fimmtudag að þá um morg-
uninn hafi hann lesið í Vísnahorni að
Davíð Hjálmar hafi boðað komu sína
á Boðnarmjöð. Björn Ingólfsson,
sem Ólafur sagðist halda að væri
Leirskírteinishafi no. 2, svaraði og
sagði menn mega vera skömmótta
þar á hinum staðnum, ef þeir kynnu
að ríma. „Mér datt þá í hug spaka í
anda Jóhanns S. Hannessonar,“
bætti Ólafur við:
Þú getur reynt að fara í annað fat,
í framhjáhaldi prófa spánnýtt gat,
jafnvel ganga í glaðan Boðnarmjöð,
ef getan til að ríma’ er ekkert frat.
Hagyrðingar og skáld hafa
löngum leikið sér að öfugmælavísum
og kenndi faðir minn mér margar
þegar ég var barn, þar á meðal
þessa:
Fiskurinn hefur fögur hljóð
finnst hann oft á heiðum,
ærnar renna eina slóð
eftir sjónum breiðum.
Nú hefur Fía á Sandi upphafið
þennan leik á Leirnum
Séð hef ég káta kú með hatt,
kiðling stígvél máta,
framsóknarmann segja satt
og sjálfstæðismann játa.
Ólafur Stefánsson stenst ekki mátið:
Þó bið sé stundum býsna mikil fórn,
við bráðum munum sjá þig aftur káta.
Í nóvember við nýja fáum stjórn,
nagla, sem að aldrei mistök játa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Móri, sólskin
og öfugmælavísur
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
GET ALVEG
EINS FARIÐ
AÐ HÁTTA
HELGA,
ÉG ÆTLA Á
PÖBBINN!
SKILURÐU MIG
EINA EFTIR Á
LAUGARDAGS-
KVÖLDI?
JEMINN! HVAÐ VAR ÉG
AÐ HUGSA?!
HEPPNI EDDI, VERTU
HÉR OG HALTU HENNI
FÉLAGSSKAP!
„ÞETTA SNÝST ALLT UM SAMLEGÐARÁHRIF.
VIÐ ÆTTUM AÐ VITA MEIRA ÞEGAR VIÐ
GETUM SKILGREINT HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR.“
NÆSTA BENSÍNSTÖÐ EFTIR 42 KM
LOKUÐ
... að þekkja
engin bönd
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI