Morgunblaðið - 04.07.2016, Page 29
» Á bæjarhátíðum sem haldnarvoru um helgina komu lands-
menn saman og glöddust og nutu
þess sem bæjarfélögin hafa upp á
að bjóða. Alls voru átta stórar há-
tíðir og fóru þær mjög vel fram
þó veðrið hafi sett örlítið strik í
reikninginn, en enginn er verri
þó hann vökni.
Mikið fjör á bæjarhátíðum víða um land
Goslokahátíð Mannfjöldi tók þátt í Goslokahátíðinni í Vestmannaeyjum en hátíðin er höfð sem næst 3. júlí. Þann dag 1973 lauk Heimaeyjargosi endanlega.
Írskt Verðlaun fyrir írskasta húsið á Akranesi
fékk Vesturgata 147 en fjöldi húsa skráði sig til
leiks. Mikill mannfjöldi kom í bæinn um helgina.
Sungið Friðrik Dór tók lagið á Goslokahátíðinni
í Vestmannaeyjum þar sem gleðin var við völd.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Spunnið Fjölmargir voru á Vopnaskaki á Vopna-
firði þar sem hagyrðingakvöld, tónleikar, dans-
leikur og Bustarfellsdagur voru meðal atriða.
Glæsileg Helga Guðrún Jónsdóttir var valin
rauðhærðasti Íslendingurinn á Írskum dögum á
Akranesi en alls tóku 34 þátt í keppninni.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Rauðage
rði 25 · 108 Rey
kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Verslunarkælar í miklu úrvali
• Hillukælar
• Tunnukælar
• Kæli- & frystikistur
• Afgreiðslukælar
• Kæli- & frystiskápar
• Hitaskápar ofl.
INDEPENDENCE DAY 2 5:30, 8, 10:30(P)
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:30, 5:45
CENTRAL INTELLIGENCE 8, 10:25
WARCRAFT 8(2D), 10:30(3D)
FLORENCE FOSTER JENKINS 5
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 22:30
Kanadíska strengjasveitin Sudbury
Youth Orchestra kemur fram í
Hörpuhorni í dag klukkan 16 og í
Perlunni á miðvikudaginn klukkan
16. Hljómsveitin, sem kemur frá
Ontario, er skipuð ungu fólki sem
hefur náð langt í sínu tónlistar-
námi. Sveitin hefur áður farið í tón-
leikaferðalög til landa á borð við
Austurríki, Tékkland, Bretland,
Grikkland og Ítalíu. Auk þess hefur
hópurinn spilað á tónlistarhátíðum
og tekið þátt í keppnum með góðum
árangri.
Stjórnandi hópsins, Jamie Arr-
owsmith, hefur unnið til verðlauna
sem fiðluleikari og fyrir kammer-
músík og er til að mynda deildar-
stjóri tónlistardeildar Cambrian
College. Auk hans hefur Brenda
Arrowsmith listræna umsjón með
starfi hljómsveitarinnar. Á efnis-
skránni í dag og á miðvikudaginn
eru meðal annars verk eftir Schu-
mann, Grieg og Sibelius auk þess
sem hljómsveitin mun leika lag með
Sigur Rós í umritun fyrir strengja-
sveit.
Strengir Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Schumann, Grieg og Sibelius.
Kanadísk strengjasveit
leikur lag með Sigur Rós
Ljósmynd/ Berghildur Fanney Hauksdóttir
Prjónað Þessi herramaður prjónaði
á Vopnaskaki á Vopnafirði.
Ljómsynd/Myndsmiðjan