Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2016, Blaðsíða 11

Ægir - 01.01.2016, Blaðsíða 11
11 Sjávarútvegssýningin ICELAND FISHING EXPO 2016 / SJÁVARÚT- VEGUR 2016 verður haldin dag- ana 28.-30. september í Laug- ardalshöllinni. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið yfir í næstum tvö ár og hefur fjöldi fyrirtækja af öllum stærðum tekið frá sýningarsvæði. Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmda- stjóri sýningarinnar segir að það stefni í stóran atburð innan sjávarútvegsins í Laugardals- höllinni. „Mitt fyrirtæki, Ritsýn sf., hef- ur staðið fyrir ráðstefnum og sýningum af fjölbreyttum toga undanfarin 19 ár. Höfum meðal annars verið með öflugar sýn- ingar fyrir hótel- og mötuneyt- isgeirann frá 2005 og haldið fjölmargar heilsutengdar sýn- ingar svo fátt eitt sé talið. Æ fleiri fyrirtæki og stofnanir hafa leitað til okkar með hugmyndir að nýjum sýningum og ráð- stefnum. Hugmyndin um sjáv- arútvegssýningu kviknaði þeg- ar hópur fyrirtækja leitaði til  okkar með þetta verkefni sem nú er að verða að veru- leika,“ segir Ólafur um til- urð sýningarinnar. Besta sýningarhöllin Á veglegri opnunarhátíð sýn- ingarinnar miðvikudaginn 28. september verða veittar viður- kenningar til aðila er þykja hafa staðið sig vel innan sjávarút- vegsgeirans. Eftirfarandi sam- tök innan sjávarútvegsins, sem jafnframt eru stuðningsaðilar sýningarinnar, munu veita við- urkenningarnar: Sjómannasam- band Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Landssamband smábátaeigenda, VM, félag vél- stjóra- og málmtæknimanna, SFÚ, samtök fiskframleiðenda og útflytjenda, Íslenski sjávar- klasinn og Konur í sjávarútvegi. „Við kunnum ákaflega vel að meta stuðning þessara samtaka við sýninguna sem sýnir þá breidd sem hún spannar,“ segir Ólafur. Hann segir að Laugar- dalshöllin hafi orðið fyrir valinu af ýmsum ástæðum. „Hún er eina íþróttamiðstöðin sem er sérhönnuð sem sýningarhús- næði og því auðvelt að stýra þar lýsingu, hljóðvist og loft- ræstingu. Þá eru næg bílastæði í kringum höllina sem er afar mikilvægt.“ Margir samstarfsaðilar „Svona stór sýning er ekki möguleg nema í samvinnu fjöl- margra fagaðila. Þannig verða Sýningarkerfi, sem hafa starfað í 30 ár, með góð tilboð á sýning- arkerfum, Sýningarljós eru með allan búnað fyrir rafmagn, At- hygli almannatengsl verður með öfluga kynningu hér heima og erlendis og Iceland Travel annast skipulag skrán- ingar og fleiri þætti sýningar- innar svo nokkrir séu nefndir. Við leggjum afar mikið upp úr að kynna sýninguna bæði hér heima og erlendis, bæði í fag- miðlum greinarinnar og al- mennum fjölmiðlum. Auk markvissrar kynningar hér heima verður lögð áhersla á kynningu erlendis, m.a. á sjáv- arútvegssýningunni í Brussel, dagana 26.-28. apríl auk þess sem fyrirtæki á helstu markaðs- svæðum íslensks  sjávarútvegs fá reglulega sendar upplýsingar á næstu vikum og mánuðum.“   Ómissandi fyrir sjávarútveginn „Leiga sýningarbása stendur nú sem hæst og hefur mjög fjöl- breyttur hópur fyrirtækja skráð sig til leiks sem endurspegla vel þá miklu grósku sem er í ís- lenskum sjávarútvegi. Við mun- um hefja leikinn með opnunar- hátíð miðvikudaginn 28. sept- ember en svo verður sýningin opin frá kl. 10:00-18:00 á fimmtudegi og föstudegi. Þetta verður fagleg, létt og skemmti- leg sýning þar sem verður rekið glæsilegt fiskiveitingahús á pöllunum milli sýningarsvæða sem mun koma á óvart. Á þess- ari sýningu í haust hittast allir í geiranum, sem skiptir ekki litlu máli á tölvuöld þegar flest sam- skipti eru orðin um dauðan tölvuskjáinn. Slíkt örvar við- skipti og mannlífsflóran dafn- ar,“ segir Ólafur að lokum og er rokinn á næsta fund. Sjávarútvegssýningin ICELAND FISHING EXPO 2016 / SJÁVARÚTVEGUR 2016 verður haldin dagana 28.-30. september í Laugardalshöllinni og stefnir í stóra og fjölbreytta sýningu. Glæsileg sjávarútvegssýn- ing í Laugardalshöll í haust Mjög vel gengur að leigja sýningarbása á ICELAND FISHING EXPO 2016 / SJÁVARÚTVEGUR 2016 og vissara að bóka rými í tíma. Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar (olafur@kvotinn.is) sem sér um innlenda aðila. Einnig Inga hjá Athygli sem sér líka um sölu auglýsinga í veglegt sýningarrit, (sími 898 8022 og inga@ athygli.is) og Tinna hjá Iceland Travel sem sér um erlenda markaðinn (sími 897 9797 og tinna@icelandtravel.is). S ý n in g a r

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.