Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2016, Blaðsíða 34

Ægir - 01.01.2016, Blaðsíða 34
34 Með eigin stjórnbúnað fyrir línukerfi „Við lítum fyrst og fremst á okk- ur sem þjónustuaðila og seljum tæki frá öllum innflytjendum á þessum búnaði hér á landi til okkar viðskiptavina, auk þess að veita alla viðgerðar og upp- setningarþjónustu. Það má í raun segja að við tökum að okk- ur að leysa öll þau tæknivanda- mál sem upp koma í skipum og bátum sem snúa að okkar sér- sviði, þ.e. tækjabúnaði sem byggir á rafeindatækni. Að stærstum hluta lýtur þetta að tækjum í brúnni en er líka tals- vert víðfeðmara þjónustusvið,“ segir Jóhannes Gunnar og vísar þar fyrst og fremst til stjórn- búnaðar línukerfa en Skipa- radíó hefur mikla reynslu og þekkingu í viðhaldi LineTec sem framleitt var hér á landi á sínum tíma og er í mörgum ís- lenskum bátum. „Ég hef haldið því kerfi gangandi hjá mörgum útgerðum en er líka að bjóða búnað sem ég hef sjálfur þróað fyrir línukerfin og hann er nú þegar kominn í marga báta. Þessi þjónusta hefur verið eftir- sótt hér heima en ég hef líka farið erlendis vegna slíkra verk- efna,“ segir Jóhannes Gunnar. Netsamband á sjónum vaxandi krafa Rafeindabúnaðurinn er fyrir- ferðarmestur í brú skipa og báta og Jóhannes Gunnar segir tækjunum frekar fjölga en hitt. „Það er ekki endilega þannig að með þessu séu að verða stór- stígar tækniframfarir eða bylt- ingar með hverju árinu sem líð- ur. Í grunninn eru flest þessara tækja að gera það sama og þau hafa lengi gert en framþróunin snýr að notendavænleika og framsetningu upplýsinga. Allur þessi búnaður þarf þó sitt við- hald og eftirlit og þar er okkar sérsvið,“ segir Jóhannes Gunn- ar. Netsamband verður æ mikil- vægara um borð í skipum, líkt og á öðrum sviðum atvinnulífs- ins. Bæði snýst það um al- menna notkun skipstjórnar- manna og skipverja, samskipti við útgerðir og heimili í landi en líka um tengingar við ýmis kon- ar upplýsingakerfi í landi. Þjón- usta við þennan þátt er því vax- andi hjá starfsmönnum Skipa- radíós. „Bátar og skip á grunnslóð- inni notast við 3G og 4G sam- band fyrir netþjónustu og hún gengur í flestum tilfellum þokkalega. Þau skip sem sækja dýpra þurfa hins vegar að nota gervihnattasamband og það samband tryggir samskiptin ágætlega, sér í lagi talið. Hins vegar er netsambandið frekar hægt og gagnaflutningur lítill. Enn eru því töluverðar takmark- anir á netsambandi úti á sjó en þörfin er stöðugt að vaxa,“ segir Jóhannes Gunnar. Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N NT 35/1 Tact Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. NT 45/1 Tact Te Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur, rafmagnstengill. NT 55/1 Tact Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir 2,5m 35mm barki, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. NT 25/1 Ap Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. Takki fyrir hreinsun á síu. Iðnaðarryksugur Fyrir bæði blautt og þurrt Sjálfvirk hreinsun á síu Tengill Jóhannes Gunnar í mastrinu á togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. Jón Berg Jónsson, starfsmaður Skiparadíós.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.