Ægir - 01.01.2016, Side 23
23
Óskum útgerð og áhöfn Indriða Kristins
BA 751 til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
Að útgerð bátsins stendur
Guðjón Indriðason á Tálknafirði
og synir hans tveir, Magnús og
Indriði, eru skipstjórar á bátn-
um. Indriði Kristins BA hélt til
veiða fljótt eftir afhendingu og
hefur fiskað mjög vel, líkt og
flestir bátar úti fyrir Vestfjörð-
um að undanförnu.
Ný hönnun Cleopatra báta
„Þessi skrokkur heitir Cleopatra
B40 og ný gerð frá okkur sem
þó byggir á skrokklagi sem við
höfum notað í báta sem við
höfum smíðað síðustu ár fyrir
olíuiðnaðinn. Sérstaklega snert-
ir þessi nýja hönnun stefnið og í
raun fremri hlutann af bátnum.
Því til viðbótar erum við með í
bátnum blóðgunarkerfi sem er
að ryðja sér til rúms í bátum af
þessari stærð, stöðugleikabún-
aður í honum er líka mikil bylt-
ing og ýmislegt fleira,“ segir
Högni Bergþórsson, fram-
kvæmdastjóri Trefja hf.
Að áliðnum janúarmánuði
afhenti fyrirtækið samskonar
bát til norskrar útgerðar en
stærstur hluti báta sem Trefjar
hf. framleiða fer erlendis, mest
til Noregs, Frakklands og Bret-
lands. Högni segir þó nokkra
útgerðaraðila báta hér heima
vera að velta vöngum en líkt og
áður ráði kerfi og reglugerðir
mestu um hvaða stærðir og út-
færslur eru eftirsóttar á hverjum
tíma.
Útgerðarfélagið Bergdís ehf. á Tálknafirði fékk nýjan línubát í byrjun árs
Indriði Kristins BA 571 af nýrri
gerð Cleopatra fiskibáta