Ægir - 01.01.2016, Side 29
29
Indriða Kristins
VIÐ ÓSKUM ÚTGERÐ
TIL HAMINGJU MEÐ NÝJA BÁTINN
12 METRA
YFIRBYGGÐUR LÍNUBÁTUR
MEÐ BEITNINGAVÉL
ÓSEYRARBRAUT 29 • 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI: 550 0100 • FAX: 550 0120
CLEOPATRA@TREFJAR.IS
WWW.TREFJAR.IS
búnaðinum; skrúfum, gír og
vélbúnaði hefur því gengið vel
upp og skilað þeim markmið-
um sem horft var til,“ segir
Helgi Axel.
Miðflóttaaflinu beitt til að ná
fram neiri stöðugleika
Annað áhugavert atriði í Indriða
Kristins BA er stöðugleikabún-
aðurinn frá Mitsubishi sem
Ásafl selur og er þetta þriðji ís-
lenski báturinn sem svona er
búinn. Þessi búnaður hefur
áhrif á marga þætti í bátnum,
t.d. olíueyðsluna, en í heild
sinni verður báturinn mun betri
vinnustaður fyrir áhöfn, slit og
álag á bátinn minnkar.
„Hugmyndin að baki þess-
um búnaði byggir á miðflótta-
aflinu og hún er í sjálfu sér ein-
föld. Búnaðurinn í heild er um
einn rúmmetri að rúmmáli og
er komið fyrir framskips og með
öflugum tengingum og festing-
um við bátsskrokkinn. Aðalat-
riðið er þungt kasthjól, 500-600
kg, sem snýst á um 3750 snún-
ingum á mínútu og liggur flatt.
Kraftarnir sem miðflóttaafl
hjólsins framkallar á þessum
mikla snúningshraða vega upp
á móti þeim kröftum sem leit-
ast til að velta bátnum þver-
skips og minka þar með hliðar-
veltu bátsins svo um munar.
Þetta þunga kasthjól er drifið
áfram af rafmótor sem tengdur
er við rafkerfi skipsins og þann-
ig er þessi búnaður ræstur um
leið og annar vélbúnaður þegar
haldið er til veiða. Þetta er því í
raun mjög einfaldur búnaður
en reynslan sýnir að hann er
mjög áhrifaríkur í bátum af
þessari stærð, sem og í raun í
öllum stærðum af bátum og
skipum,“ segir Helgi Axel sem
sótti námskeið og fræðslu hjá
Mitsubishi verksmiðjunum í
Japan í nóvember sl. þar sem
sérstaklega var fjallað um stöð-
ugleikabúnaðinn. Hugmyndin
að honum kviknaði út frá stöð-
ugleikabúnaði gervitungla á
sínum tíma og hefur Mitsubis-
hi-framleiðandinn þróað bún-
aðinn fyrir báta með góðum ár-
angri síðustu 25 ár.
Dregur stórlega úr veltingi
„Búnaðinum má í raun koma
fyrir hvar sem er í bátunum þar
sem rými er en lykilatriði er að
hafa öflugar festingar við báts-
skrokkinn. Reynslan sýnir að
veltingurinn minnkar umtals-
vert og það getur t.d. komið
fram í að afföll af fiskilínunni
verða minni en ella, þreyta og
álag á áhöfn minnkar, það
dregur úr slysahættu og þannig
má áfram telja. Við finnum að
margir bátaeigendur eru mjög
áhugasamir um stöðugleika-
búnaðinn enda skilar hann sér
ótvírætt í margháttuðum
ávinningi,“ segir Helgi Axel.
Stöðugleikabúnaðurinn frá Ásafli er framleiddur af Mitsubishi og er
Indriði Kristins BA þriðji báturinn hér á landi sem þannig er búinn.