Ægir - 01.06.2016, Blaðsíða 8
Viðskiptabann Rússa hefur að
sönnu haft sín áhrif fyrir íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki, enda um
að ræða stóran afurðamarkað,
sér í lagi hvað varðar fram-
leiðslu úr uppsjávartegundum.
Óttast var að áhrifin yrðu mest
hvað varðar sölu frystra loðnu-
og makrílafurða og að hluta
hafa þær spár gengið eftir. Teit-
ur Gylfason, sölustjóri uppsjáv-
arafurða hjá Iceland Seafood,
segir enga birgðasöfnun í
makríl afurðum og að fundist
hafi nýir markaðir fyrir þær, þó
svo að verð mættu að sönnu
vera hærri en raun ber vitni.
Hins vegar segir hann fullkom-
lega ljóst að hrun sé orðið í
framleiðslu frystrar loðnu til
manneldis með lokun Rúss-
landsmarkaðar. Hliðstæðan
markað sé ekki að finna en
hann er engu að síður bjart-
sýnn á að Íslendingum muni
takast að vinna þann markað
hratt upp að nýju í Rússlandi,
verði banninu aflétt. Í viðtali
við Ægi fer Teitur yfir stöðuna í
markaðsmálum uppsjávar-
framleiðslunnar, eins og hún er
nú þegar langt er liðið á makríl-
vertíðina.
Meirihluti makrílafurðanna til
Afríku
„Sala á makríl gengur mjög vel
sem stendur en verðið er tals-
vert lægra en við hefðum kosið.
Við höfum náð um 10% hækk-
un frá í fyrra á heilum makríl og
um 30% á hausuðum makríl en
hann lækkaði líka talsvert meira
í fyrra en heili makríllinn. Þetta
er lægra verð en við höfum séð
á undanförnum árum, þrátt fyr-
ir að hafa þokast upp frá í fyrra,“
segir Teitur.
Meðan Rússlandsmarkaðar
naut við tók hann við um 40%
af makrílafurðunum og þar
fékkst að jafnaði besta verðið.
Teitur segir makrílafurðirnar frá
Íslandi nú fara að stórum hluta
til Afríku.
„Í Afríku voru þekktir makríl-
markaðir fyrir okkur en þeir
borga ekki eins vel og Rússa-
markaður gerði. Við finnum að
eins og staðan er í dag er
ógjörningur að hækka verðið á
Afríkumarkaði enn meira. Inn í
það spilar að stærsti markaður-
inn í Afríku, Nígería, er að mestu
lokaður sem stendur og því fer
makrílframleiðslan frá Íslandi að
stærstum hluta til Egyptalands
og Gana, auk auðvitað fleiri
landa sem taka minna magn,“
segir Teitur og svarar því að-
spurður að ógjörningur sé að
fullyrða um stöðu markaða í
þessum heimshluta til framtíð-
ar. Stjórnmálaástand geti spilað
inn í með skömmum fyrirvara,
líkt og raunin er í Nígeríu.
Teitur Gylfason, sölustjóri uppsjávarafurða hjá Iceland Seafood,
ræðir áhrifin af viðskiptabanni Rússa
Sala á makríl gengið
betur en á horfðist
8
Teitur Gylfason, sölustjóri hjá Iceland Seafood.
V
iðta
l