Ægir - 01.06.2016, Qupperneq 10
10
Hagnaður Samherja hf. jókst um tæpa 2,7 milljarða milli áranna
2014 og 2015 en hann nam í fyrra 13,9 milljörðum króna. Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri, segir árið hafa verið gott en félagið er
með rekstur í tólf löndum og er samstæðan gerð upp í átta mynt-
um. Samherji hf. er eignarhaldsfélag um eignarhluti í dóttur- og
hlutdeildarfélögum sem flest tengjast sjávarútvegi og vinnslu af-
urða hér á landi og erlendis. Rekstur útgerðar og fiskvinnslu á Ís-
landi er að mestu leyti í félögunum Samherji Ísland ehf. og Útgerð-
arfélag Akureyringa ehf. og rekstur fiskeldis er í Íslandsbleikju ehf.
Starfsemi samstæðunnar er víða um heim, mest á Íslandi og í Evr-
ópu, en einnig í Afríku og Kanada.
Óskir viðskiptavina aðalatriðið
„Við náðum að gera mikil verð-
mæti úr þeim aflaheimildum
sem sem við höfum yfir að ráða.
Við erum stolt af því að starfa í
sjávarútvegi og vinnum með
fjölmörgum aðilum að því að
gera íslenskan sjávarútveg enn
betur í stakk búinn til að mæta
þeim áskorunum sem blasa
við,“ segir Þorsteinn Már í frétt
frá Samherja hf. í tengslum við
birtingu ársuppgjörs félagsins.
Hann segir hræringar síðastliðið
ár hafa sýnt fram á að ekki sé
sjálfgefið að íslenskar sjávaraf-
urðir hafi aðgang að mikilvæg-
um markaðssvæðum.
„Þokkalegur stöðugleiki,
gott skipulag á veiðum og
vinnslu, traust viðskiptasam-
bönd sem byggst hafa upp á
löngum tíma og gríðarleg
reynsla starfsfólks sjávarútvegs-
fyrirtækja hafa orðið til þess að
verkefnin hafa verið leyst far-
sællega. Það er mikilvægt fyrir
okkur sem þjóð í forystu í sjáv-
arútvegi að gleyma ekki óskum
viðskiptavina okkar. Þjónustan
þarf að vera allt árið um kring
og nauðsynlegt er að hægt sé
að gera afhendingarsamninga
langt fram í tímann. Þau viðbót-
arverðmæti sem hægt er að ná
fram með þessum hætti sjást til
að mynda vel á árangri Norð-
manna í markaðssetningu á
laxi. Aðstæðurnar eru síbreyti-
legar í okkar rekstrarumhverfi
en með góðu starfsfólki, dugn-
aði og áræði ætlum við aðlaga
okkar rekstur og vera áfram í
fremstu röð sjávarútvegsfyrir-
tækja í Evrópu,“ segir Þorsteinn
Már.
Tekjuaukning á flestum sviðum
Rekstrartekjur samstæðu Sam-
herja voru tæpir 84 milljarðar
króna árið 2015. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam
19,9 milljörðum króna, saman-
borið við 16,4 milljarða árið á
undan. Afkoma af reglulegri
starfsemi ársins 2015 var betri
en árið á undan sem skýrist af
góðri afkomu erlendrar starf-
semi. Tekjur jukust á flestum
sviðum, nettó fjármagnsgjöld
án gengismunar voru mun
lægri vegna minni skuldsetn-
ingar en á móti kom að gengis-
munur var óhagstæðari. Hagn-
aður fyrir tekjuskatt nam 17,4
milljörðum og að teknu tilliti til
tekjuskatts var hagnaður ársins
13,9 milljarðar króna.
Í efnahagsreikningi eru eign-
ir samstæðunnar í lok árs 2015
samtals 119 milljarðar króna.
Heildarskuldir og skuldbinding-
ar voru 36 milljarðar á sama
tíma og bókfært eigið fé 83
milljarðar króna. Eiginfjárhlut-
fall samstæðunnar var 69,8% í
árslok. Veltufjármunir námu 38
milljörðum og veltufjármunir
umfram skuldir 2,5 milljörðum
króna. Tillaga er um að arð-
greiðsla til hluthafa nemi 10 %
af hagnaði félagsins eða um 1,4
milljörðum króna.
Fjárfest í skipum og
landvinnslutækni
Stærstu fjárfestingarnar á Ís-
landi voru vegna nýsmíði ísfisk-
skipa sem til stendur að af-
henda á árinu 2017 og mikilla
framkvæmda við uppbyggingu
og tæknivæðingu fiskvinnsl-
unnar á Akureyri. Erlendis voru
helstu fjárfestingar í nýsmíði
fyrir dótturfélög Samherja í
Kanada og Þýskalandi en einnig
hefur verið gengið frá samning-
um um nýsmíði tveggja skipa
fyrir dótturfélög í Frakklandi og
á Spáni.
Í frétt félagsins segir að
sterkur efnahagur sé nú nýttur
til fjárfestinga í nýjum atvinnu-
tækjum. Skuldbindingar vegna
fjárfestinga næstu 18 mánuði
nema nú um 30 milljörðum.
Þetta eru fjárfestingar í nýsmíði
skipa, landvinnslu bolfisks og
fiskeldi.
„Það er nauðsynlegt fyrir fé-
lag sem hyggst búa starfsfólki
sínu ásættanlegan aðbúnað og
vinnuaðstöðu, bæði á sjó og
landi, að fjárfesta í nýjum fram-
leiðslutækjum. Skip eru um-
fangsmiklar fjárfestingar en það
var löngu orðið tímabært að
stíga þessi skref til endurnýjun-
ar flotans og horfa með því til
framtíðar,“ segir Þorsteinn Már.
Samherji hf. skilaði tæplega 14 milljarða hagnaði í fyrra
Ætlum okkur að vera áfram
í fremstu röð sjávarútvegs-
fyrirtækja í Evrópu
segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Fiskvinnsla hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Tæknivæðing og breyting
þeirrar vinnslu var ein stærsta fjárfesting Samherjasamstæðunnar í
landvinnslu í fyrra.
F
réttir